Fréttablaðið - 22.12.2005, Side 42
22. desember 2005 FIMMTUDAGUR
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Ný sending af
PILGRIM skarti
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Glæsileg nærfatasett
á dömur og herra
Fallegur barnafatnaður
Sparitoppar og silkibolir
15% afsláttur af öllum vörum til jóla
Opið frá 10-20 Opið Þorláksmessu 10-22
Hl íða rsmára 11 • Kópavog i • s ím i 517 6460 • www.be l l adonna . i s
Belladonna fer
líka í bæinn!
Ný verslun á Laugavegi 66 2. hæð
Opnunartilboð 15% afsláttur
af öllum vörum á Laugavegi 66
til áramóta
Opnunartímar til jóla:
Hlíðarsmára 11 til kl. 19 öll kvöld. s. 517 6460
Laugavegi 66 til kl. 20 öll kvöld. s. 578 6460
Það eru ekki allir sem vita að
við Slippinn í Reykjavíkurhöfn
má finna verslun sem selur
hátískuvörur. Verslunin heitir
Guerrilla Store og byggir hún
á mjög sérstakri markaðshug-
myndafræði.
Guðríður Inga Ingólfsdóttir, oftast
kölluð Gurrý, og Birna Reynisdótt-
ir eru tvær af fjórum stelpum sem
sjá um rekstur verslunarinnar hér
á landi en hinar tvær eru Sonja
Bent Þórisdóttir og Anna Koskin-
en. ,,Verslunin gengur út á það að
hún má ekki vera á verslunargötu
heldur á óhefðbundnum stað í
borginni. Við megum ekki auglýsa
og ekki breyta rýminu sem versl-
unin er í. Við þurfum því að finna
rými og nýta það eins og það er.
Hún má líka bara vera á sama stað
í eitt ár og svo er hún horfin. Hug-
myndin er sú að koma með nýja
vídd inn í nýja staði í borginni.
Engu á heldur að eyða í umbúðir
því hún að standa fyrir sér sjálf.
Það er ekki verið að lokka einn
eða neinn inn í búðina, allir eru
velkomnir og verslunin er fyrir
hvern sem er,“ útskýrir Gurrý.
Guerrilla Store er ákveðið
markaðskonsept út frá japanska
hátískufyrirtækinu Comme de
Garçon sem stofnað var af Rei
Kawakubo. Þau hjá Comme de
Garçon vildu koma vörum sínum
meira til almennings og má nefna
að engar Guerrilla Store-versl-
anir eru í þeim borgum þar sem
Comme de Garçon er selt í fínum
hátískuverslunum. ,,Það er verið
að taka glanspappírinn af vörun-
um og búðunum sjálfum og færa
vörurnar til annarra viðskipta-
vina,“ segir Birna.
Þegar Gurrý og Birna eru
spurðar um hvert sérkenni versl-
unarinnar sé segja þær báðar að
það sé nærveran við Slippinn og
höfnina. ,,Það er þessi tenging
okkar við land og þjóð, sem er
fiskurinn og Slippurinn,“ segir
Birna. ,,Það er líka mælst til þess
að staðsetningin tengist eitthvað
landi og þjóð og því er þetta full-
komin staðsetning,“ bætir Gurrý
við.
Þegar spurt er um einkenni
hönnunarinnar í versluninni lýsir
Birna henni sem anti-fashion
avant-garde, þar sem verið er að
taka týpísk snið og brjóta þau upp.
Aðalhönnuðir Comme de Garçon
fá oft súrrealískar hugmyndir og
þær eru þá framkvæmdar. Ilm-
vatnslína fyrirtækisins er gott
dæmi um það. Hún býður meðal
annars upp á ýmsa ólykt ef svo
mætti kalla eins og tjörulykt, bíl-
skúrslykt og fleira.
Oft er talað um arkitektúr í
fatahönnun þegar reynt er að
útskýra fatahönnun Comme
de Garçon. Einn aðalhönnuð-
ur Comme de Garçon, Junya
Watanabe, er gott dæmi um það.
Hann virðist brjóta allar regl-
ur hvað varðar snið og form en
svo þegar fólk klæðist fötum frá
honum virðist allt smella saman.
,,Þetta er merkjavara sem stend-
ur fyrir sínu. Hönnuðirnir eru að
gera það sem þá langar til að gera
og það virðist ganga,“ segir Birna
að lokum og Gurrý jánkar því.
steinthor@frettabladid.is
Arkitektúr í fatahönnun
1 dálkur 9.9.2005 15:17 P ge 1