Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 46
[ ]
Landsmenn kunna æ betur að
meta hnetusteik sem jólamat.
„Eftirspurn eftir hnetusteikinni
eykst ár frá ári og það er hver
sem er sem kaupir, ekki bara fólk
í einhverjum sértrúarsöfnuðum,“
segir Helga Mogensen hjá Manni
lifandi. Hún segir æ fleiri viður-
kenna að þótt reykt kjöt sé ynd-
islega gott þá sé það erfitt fyrir
líkamann. „Margir eru farnir að
feta aðrar leiðir og finna að jólin
eyðileggjast ekkert,“ segir hún,
nýbúin að selja eldri hjónum væna
hnetusteik þegar spjallað er við
hana. „Hjónin ætla að hafa hnetu-
steikina með hinum hefðbundna
jólamat til tilbreytingar. Það finnst
mér skemmtileg leið. Konan var
hugrökk og reiðubúin að sleppa
því sem þau höfðu vanist, en mann-
inum fannst það svolítið frjálslega
farið með jólahefðir og kaus að
hafa hnetusteikina sem valkost.
Hnetusteikin er svo skemmtilega
krydduð að það er gaman að hafa
hana á borðunum og hægt að borða
allt með henni sem haft er með
öðrum steikum, svo sem rauðkál,
rauðrófur og slíkt,“ segir Helga
og bætir við. „Ég er búin að búa til
hnetusteik í mörg ár. Það er bara
partur af jólahefðinni.“
Verðlaunavín frá Pujol bregst ekki með hátíðarmatnum. Gert úr
fjórum þrúgum og gefur okkur sól og hita frá frönsku Katal-
óníu úr hverjum dropa! Lífræn ræktun frá búgarðinum La
Rourede sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá 1785.
Sumar plönturnar eru orðnar 95 ára gamlar og gefa
vín með frábæra fyllingu. Þroskun í eikartunnum í
eitt ár gefur enn meiri karakter. Vín með sólberja- og
skógarilmi. Í munni er það kryddað, með svörtum
berjum og plómum. Það passar með villibráð
og grilluðu sem steiktu kjöti, rauðu sem hvítu,
einnig gott með saltfiski og frábært með mjúk-
um ostum. Bragðmikið, fíngert, mikil lengd.
Flott vín með alvöru mat. Verð í vínbúðum
1.490 kr.
Matgæðingar landsins eru
löngu farnir að huga að
jólaskötunni á Þorláksmessu.
Kjartan Halldórsson, eigandi
Sægreifans á Geirsgötu byrjaði
að selja svöngum viðskiptavin-
um sínum skötu í síðustu viku.
Skatan er mörgum jafn mikil-
væg á Þorláksmessu og jólagjaf-
irnar á aðfangadag. Ein mest
sjarmerandi fiskbúð landsins,
Sægreifinn við Geirsgötu, byrj-
aði um síðustu helga að bjóða við-
skiptavinum sínum upp á skötu.
Sægreifinn sjálfur, Kjartan Hall-
dórsson, segir skötuna alltaf vera
jafn vinsæla. ,,Þessi hefð er alls
ekki að deyja út, frekar að verða
sterkari,“ segir Kjartan.
Hjá Sægreifanum er hægt að
koma alla daga fram að jólum
og fá sér skötu í hádeginu. Auk
skötunnar býður Sægreifinn upp
á fjölmarga aðra rétti, en hum-
arsúpan hans er löngu orðin víð-
fræg sem og síldarbarinn hans
sem er einn sá veglegasti sem
hægt er að finna. Állinn er samt
helsta ástríða Kjartans enda
mikill áhugamaður um veiðar á
honum og hjá Sægreifanum er
meðal annars hægt að fá bragð-
góðan reyktan ál. Hann segir að
bændur og sjómenn ættu að vera
duglegri að veiða álinn því hann
finnist víða, meðal annars við
Grindavík.
Kjartan segir að það sé afar
einfalt að elda skötuna. ,,Hún er
bara soðin í svona fimm til sjö
mínútur. Svo er bara að fá sér
rúgbrauð með smjöri með. Svo
vilja menn náttúrulega líka allt-
af fá hnoðmör og hamsatólg.“
Kjartan segir svo að í eftirrétt sé
gott að fá sér Steingrím með rús-
ínum. ,,Gamli forsætisráðherr-
ann, Steingrímur Hermannsson,
hvatti fólk til þess að borða mik-
inn grjónagraut því hann væri
hollur.“
Kjartan telur að hann geti tekið
á móti um 25 manns á Sægreifan-
um og eins og áður segir er þar
hægt að fá skötu alla daga fram
að jólum auk fjölbreytts úrvals
fiskrétta.
Jólaskatan hjá Sægreifanum
Sægreifinn Kjartan Halldórsson segir skötuna vera algjört lostæti. E.ÓL
PUJOL: Njótum þess að drekka
lífrænt um jólin
Marqués de Cáceres er eitt þekkt-
asta vínhús frá Rioja á Spáni. Þeirra
þekktasta afurð er Marqués de Cáceres
Crianza sem er frægt fyrir að vera uppá-
haldsvín Spánarkonungs. Tímaritið Wine
& Spirits velur á hverju ári vinsælasta
vínið frá Spáni og sigraði Marques de
Cáceres fjórða árið í röð með miklum
yfirburðum. Vín sem svíkur engan og er
löngu orðið sígilt í vínheiminum. Vínið
er framleitt úr 85% tempranillo- og
15% garnacha- og graciano-þrúgum og
hefur verið í 15 til 18 mánuði í eik og 14
mánuði í flösku áður en það er sett á
markað. Þurrt rauðvín með eik, reyk og
mildri vanillu.
Verð í vínbúðum 1.290 kr.
MARQUES DE CÁCERES:
Vinsælasta vínið fjórða
árið í röð!
40 g smjör
40 g hveiti
40 ml mjólk
150 g rauðbeður
175 ml safi
3 epli
1 tsk. sinnep
1/4 tsk. salt
2 tsk. sykur
Eplin afhýdd og skorin í fínar ræmur. Sama
með rauðbeðurnar, sett til hliðar.
Smjörið brætt í potti og hveitinu jafnað
saman við, þynnt með hitaðri mjólk og
rauðbeðusafanum, sem má vera kaldur.
Sósan soðin í nokkrar mínútur, hrært vel
í á meðan, en gott er að taka pottinn af
hellunni meðan hrært er í.
Sinnepi, sykrinum og saltinu bætt í, og
segir María að ef fólk vilji rauðari lit í sós-
una megi bæta ávaxtalit út í á þessu stigi.
Þegar sósan er orðin köld er eplum og
rauðbeðum bætt út í og salatinu svo hrært
varlega saman.
Salatið er síðan borið fram kalt með
hangikjötinu á jóladag.
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR SEGIR
EPLASALAT MÓÐUR SINNAR VERA
ÓMISSANDI MEÐ HANGKJÖTINU Á
JÓLADAG.
Jólasalat með
hangikjötinu
Hnetusteik á hátíðaborðið
Hnetusteikin er þannig
krydduð að hægt er að
borða allt með henni
sem haft er með öðrum
steikum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Frí heimsending • Pöntunarsími: 554-6999
www.jumbo.is
Gerið sjálf
ykkar gæðavín
Hangikjöt er ágætt að sjóða daginn áður en það er borðað ef
það á að vera kalt. Margir sjóða hangikjötið á Þorláksmessu hvort
sem þeir hafa það á aðfangadag eða jóladag.