Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 48
[ ]Jólasímtöl eru alltaf skemmtileg. Það getur verið notalegt að eyða síðustu kvöldunum fyrir jól í það að hringja í vini og ættingja sem maður heyrir kannski ekki oft í og gefa sér smá tíma til þess að spjalla um leið og maður óskar þeim gleðilegra jóla. Katrín Dagmar Jónsdóttir og Elínborg Lorens eru þátt- takendur í Mentor-verkefninu vináttu. Fyrr í haust sögðu þær frá því hvernig það fór af stað hjá þeim en þær eru búnar að gera ýmislegt síðan þá. Þann fyrsta desember var jóla- stund Velferðarsjóðs barna haldin í húsnæði Íslenskrar erfðagrein- ingar. Kallý og Ella fóru þangað og hittu aðra mentora og börn. „Þetta var rosalega skemmtilegt,“ segir Kallý. Eftir að skipulagðri dagskrá lauk var öllum gestum boðið upp á veitingar. „Heilsuleikskólinn var með atriði og þess vegna var líka boðið upp á grænmeti,“ segir Kallý. „Svo voru bekkjarbræður mínir, sem við köllum tvíburana, þarna,“ segir Ella. „Það eru tveir strákar sem eru með sama ment- orinn. Þeir eru vinir og eru jafn- stórir og alltaf með eins húfur. Þess vegna köllum við þá tvíbur- ana,“ útskýrir Kallý. Kallý og Ella bökuðu síðan piparkökur um miðjan desember og skemmtu sér konunglega við það. Þá hitti Ella bróður Kallýj- ar sem er að verða sautján ára og þau náðu strax mjög vel saman. „Hann er svo skemmtilegur,“ segir Ella. Þegar þær voru búnar að baka piparkökurnar kom hann og hjálpaði þeim að skreyta þær. „Hann gerði svona E á jólasvein,“ segir Ella og hlær. „Hann sagði að hann ætti þessa köku því hún væri merkt honum en hann heitir Eyjólfur,“ segir Kallý. „Þá sagði ég að ég héti Elínborg svo þetta gæti alveg eins verið mín kaka,“ segir Ella. Kallý og Ella segjast alltaf vera að verða nánari. „Það er oft ekkert eins og það séu þrettán ár á milli okkar og hún er bara eins og besta vinkona mín,“ segir Kallý. „Við getum talað um allt mögu- legt,“ segir Ella. „Við tölum um lífið og tilveruna, hvernig gengur í skólanum hjá okkur báðum og vinina,“ bætir Kallý við. Kallý og Ella hittast ekki aftur fyrr en eftir áramót en þær eru búnar að gefa hvorri annarri jóla- gjafir. Þær vilja samt alls ekki gefa upp hvað er í pökkunum og segja að það komi bara í ljós. emilia@frettabladid.is Talað um allt mögulegt Kallý og Ella hittast í síðasta skipti fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kallý og Ella baka piparkökur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kallý og Ella á jólastund Velferðarsjóðs barna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ljósaserían gengur fyrir batterí- um og fékk Kolbrún hana að gjöf frá móður sinni. Aðspurð að því hvort hún ætli að setja upp serí- una fyrir þessi jól segir Kolbrún að svo sé. Líklegast þó bara á Þor- láksmessu og kannski eitthvað örlítið meir, en hún segist ekki tíma frekari pening í batterí því ljósaserían sé mjög frek á þau, hún þurfi að skipta um rafhlöður á þriggja tíma fresti. „Viðskiptavinirnir tóku fram- takinu bara mjög vel og einhverjir sögðu mér að þeir væru ánægðir með þetta hjá mér,“ segir Kolbrún. Aðspurð að því hvort nokkur óþægindi svo sem hausverkur eða ofhitnun fylgi því að bera seríuna segir hún að svo sé alls ekki, það hafi að minnsta kosti ekki borið á því hingað til. Kolbrún er þó mikið meira en stúlka með jólaseríu í hárinu, hún er í fornámi við Myndlist- arskólann í Reykjavík og segist vera mjög ánægð þar. Aðspurð segist hún vel geta hugsað sér að reyna frekar fyrir sér í list- námi, þá helst erlendis. Hún hefur starfað í rúm tvö ár á Kaffitári Í Kringlunni og því liðtækur kaffi- barþjónn. „Það er mjög gaman að vinna um jólin, kannski fyrir utan sjálfan aðfangadaginn en þá er fólk í miklu stressi eftir að hafa uppgötvað að það hefur gleymt öllum jólagjöfunum, en hins vegar er mjög gaman að vinna á Þorláksmessu. Þá er góð stemn- ing í Kringlunni og fólk er í jóla- skapinu, svo drekkum við púrtvín saman á meðan við lokum það kvöldið. Það er mikið partí hérna í Kringlunni á Þorláksmessu,“ segir Kolbrún eiturhress. jonragnar@frettabladid.is Með jólin í hárinu Kolbrún Ýr með seríuna góðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.