Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 22. desember 2005
Fjölskylduráð hefur hrint af
stað átaki til að hvetja fólk að
minnast þess hvað gerir jólin
sérstök. Eru það gjafirnar,
maturinn eða samverustund-
irnar? Höfum við tapað okkur
í neyslu og gleymt innihaldi
jólanna?
„Það kom upp umræða í fjölskyldu-
ráðinu að það þyrfti að breyta
íslensku jólahaldi,“ segir Björg
Kjartansdóttir, vefstjóri vefs fjöl-
skylduráðs www.fjolskylda.is. Í
kjölfar þess ályktaði fjölskylduráð
að fjölskyldan ætti að njóta jólanna
á eigin forsendum í stað þess að
taka þátt í neyslukapphlaupinu. Í
það var ráðist að hvetja fólk til að
hugsa til þess hverju það man best
eftir frá fyrri jólum. „Við héldum
málþing undir yfirskriftinni Að
neyta eða njóta jólanna? og opnuð-
um síðu á vef okkar þar sem hægt
er að skrá niður jólaminningar,“
segir Björg.
Með þessu vill fjölskylduráð
benda á að það eru ekki stórar gjaf-
ir eða vegleg hlaðborð sem helst
mynda minningar heldur samveru-
stundir fjölskyldu og vina. „Við
viljum að fólk staldri við og átti sig
á hverju það man eftir frá bernsku-
jólum sínum,“ segir Björg.
Jólahluti fjölskylduvefsins er
öllum opinn en þrátt fyrir jákvæð
viðbrögð eru fáir sem skrifa. Björg
mælir með því að foreldrar spyrji
börn sín hvers þau minnist frá
fyrri jólum. Svarið gæti komið á
óvart. „Þegar ég spurði 10 ára son
minn svaraði hann að það hefði
verið þegar við bjuggum til pasta,
hann vildi gera það að árlegri
hefð,“ segir Björg. „Það tók allan
daginn og fjölskyldan stóð saman í
þessu og þetta þótti honum minni-
stæðast.“ tryggvi@frettabladid.is
Samvera býr til
góðar minningar
Þessi roskna kona vildi örugglega heldur
eyða jólunum með fjölskyldunni en pakka-
hrúgu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Gáttaþefur heimsækir Þjóðminja-
safnið kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu - Jón Hallur
Stefánsson les úr bók sinni Krosstré í
Þjóðmenningarhúsinu kl. 12.15.
Kertaljósatónleikar Camerarctica í
Dómkirkjunni kl. 21.
Sólrún Bragadóttir sópransöngkona
og Kári Þormar orgelleikari flytja
Maríusöngva í Fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 18.
á jóladöfinni }
22.desember
Nonni GULL