Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 72

Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 72
BÆKUR [UMFJÖLLUN] Öðru hverju berast okkur hing- að til lands bækur úr öðrum heimshlutum sem bera með sér sætkenndan ilm kryddjurta fjar- lægra slóða, reyk frá framandi hlóðum, skuggamyndir átaka sem við þekkjum í besta falli úr frétt- um; í stuttu máli bækur sem birta okkur í svip örlög annarra þjóða, og um leið annan skilning á hlut- verki bókmennta en við eigum nú að venjast. Þetta eru skáld- sögur einsog Hús andanna eftir Isabel Allende, sem hafði hljóm- botn sinn ¿ dýpri og sterkari en í seinni verkum höfundar ¿ úr sögu Chile á 20. öld; eða The Famished Road eftir nígeríska höfundinn Ben Okri. Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini er slík saga. Sögusvið hennar er Afganistan síðustu þrjátíu ára og samfélag afganskra útlaga í Bandaríkjun- um, saga hennar sótt í brunn þjóð- ar sem hefur mátt þola öldungis yfirgengilegar hörmungar. Afganistan, segir í bókinni, er land þar sem er svo mikið af börnum og svo lítið af bernsku og kannski er það leiðarstef verks- ins. Sagan á upphaf sitt í bernsku aðalpersónunnar, Amir, snemma á áttunda áratugnum, á þeim tíma þegar enn var hægt að eiga bernsku í Afganistan, hvað sem harðri stéttaskiptingu og trúar- bragðaátökum leið. Ósjálfrátt kemur lesandanum á óvart að ungir drengir í Kabúl skuli hafa horft á myndir Clints Eastwood, þyrpst á fótboltaleiki og flogið flugdrekum. Bókin segir frá Amir og besta vini hans Hassan, vináttu þeirra og svikum og dramatískum örlögum fjölskyldna þeirra meðan stjórnarbyltingar fara einsog far- sóttir yfir landið: Konunginum er steypt 1973, kommúnistar ræna völdum fimm árum síðar, Sovét- menn gera innrás og hrekjast svo á brott og þá hefst grimmúðlegt valdaskeið talíbana, en síðustu kaflar bókarinnar gerast undir lok þess. Flugdrekahlauparinn er hvergi nærri gallalaus skáldsaga, setji menn sig í krítískar stellingar vestrænnar bókmenntafræði. Hún ber þess reyndar merki að höfundurinn fór ungur í útlegð til Bandaríkjanna og hefur búið þar síðan; hún er ekki laus við klisjur og melódrama og fléttan er næst- um of úthugsuð. En það fellur allt í skugga þess að bókin er hreint ótrúlega áhrifamikil. Að nokkru leyti liggur það í möguleikum skáldsögunnar til að miðla okkur hversdagslífi fólks við erfiðustu aðstæður, til að komast handan við fréttamiðla og sagnfræðiverk. Höfundurinn sagði um þetta í við- tali við Morgunblaðið: Skáldsögur „geta tekið lesendur og stillt þeim upp á ákveðnum stað og tíma þannig að þeir geti nánast andað að sér andrúmsloftinu á staðnum“. Þetta gerist í Flugdrekahlaupar- anum: Við skynjum öngþveitið á basarnum í Kabúl og þess vegna líka raunalega endursköpun þess í samfélagi afganskra útlaga; við finnum dísellyktina í tanki olíu- bílsins sem flytur flóttafólk frá Afganistan, verðum bílveik með Amir þegar hann hossast yfir fjallaskörðin, við finnum nánast lyktina af þeirri botnlausu mann- vonsku sem fjölskylda Hassans má þola. Það er hinn áþreifanlegi bak- grunnur sem gerir þessa sögu um sammannlega þætti, vináttu, svik, sekt og fyrirgefningu, svona sterka. Og ljær henni líka tákn- gildi, því Vesturlönd brugðust þessu fátæka landi á örlagastundu rétt einsog Amir vini sínum, hér er líka komin dæmisaga um örlög smáþjóðar á öfgafullri öld. Flugdrekahlauparinn er fyrsta skáldsaga Khaled Hosseini sem starfar sem læknir í Bandaríkj- unum. Honum er augljóslega annt um að draga upp mynd af þjóð sinni, átakanlega en líka stundum grátbroslega og óneitanlega er gaman að sjá drætti sem minna sterkt á Íslendinga. Settu tvo Afgana í herbergi, segir á einum stað, og eftir tíu mínútur eru þeir búnir að rekja saman ættir. En umfram allt opnar þessi saga okkur eitt andartak sýn á fólk sem mest af öllu þráði bara eitt: að fá að vera í friði. Þýðingin er áferðarfalleg og læsileg að því undanskildu að enskan gægist stöku sinnum fram („Hvaða gagn hafði enda þjónn fyrir hið ritaða orð?“ segir á bls. 27). Frummál sögunnar er enska, en mörg orð úr farsí eða persnesku, einu útbreiddasta tungumálinu í Afganistan, fá að fljóta með og ljær það textanum skemmtilegan svip. - Halldór Guðmundsson Örlög þjóðar FLUGDREKAHLAUPARINN Höf: Khaled Hosseini Þýð: Anna María Hilmarsdóttir Útg: JPV Niðurstaða: Flugdrekahlauparinn er hvergi nærri gallalaus skáldsaga, setji menn sig í krít- ískar stellingar vestrænnar bókmenntafræði. En það fellur allt í skugga þess að bókin er hreint ótrúlega áhrifamikil. Fim. 29. des. örfá sæti laus Fös. 20. jan. Lau. 21. jan. Gleðileg jól! ������������������������������� ���������������������������������������� �������������������� �������������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������ ������������������������������� ��������������������������������������������������������������������������������������������� ������������ �������������������������������������������������� ��������� ���������������� ������������������������ ����� ���������������� ������� ��������������������������������������������� ������� �������������������������� ������������ �������������� �� ����������� Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. GJAFAKORT - TILVALIN JÓLAGJÖF MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700 uppselt örfá sæti laus uppselt laus sæti laus sæti laus sæti þriðjudagur miðvikudagur fimmtudagur fimmtudagur föstudagur laugardagur 27.12 28.12 29.12 05.01 13.01 14.01 Stóra svið SALKA VALKA Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20 WOYZECK Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20 KALLI Á ÞAKINU Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Fi 19/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Nýja svið/Litla svið MANNTAFL Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING BELGÍSKA KONGÓ SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í JANÚAR. MIÐAVERÐ 2.500- KR. Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST MIÐASALAN ER OPIN: 23.12. 10-20, 24.12. 10-12 AUGL†SINGASÍMI 550 5000 22. desember 2005 FIMMTUDAGUR52

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.