Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 88
22. desember 2005 FIMMTUDAGUR68
JÓLAGJÖF SEM GEFUR LÍF
„Hjálpum þeim” er söfnunarátak fyrir Hjálparstarf kirkjunnar vegna hamfaranna
í Pakistan. Ný útgáfa af laginu er flutt af landsliði íslenskra tónlistarmanna.
Söluandvirði þessarar geislaplötu, utan við virðisaukaskatt, rennur óskipt til
söfnunarátaksins.
FÓTBOLTI Það var mikil gleði í jóla-
teiti Manchester United eins og
hjá flestum öðrum félögum. Mesta
athygli í teitinu vakti leikrit sem
hinir ungu leikmenn liðsins settu
upp.
Mest var hlegið þegar einn
leikmannanna kom fram klæddur
eins og Roy Keane og kallaði alla
þá sem sátu fremst við sviðið aum-
ingja en það var skírskotun í frægt
viðtal á MUTV sem fór aldrei í
loftið. Það var reyndar sýnt leik-
mönnum félagsins og Keane en
ekki fleirum. Samkvæmt fréttum
á þeim tíma fóru orð Keane ekki
illa ofan í leikmenn liðsins enda
vanir að hlusta á Keane lesa þeim
pistilinn.
Atriðið endaði á því að Keane
sagðist vera farinn, reif sig síðan
úr treyjunni og þá var hann í Celt-
ic-treyju innan undir.
Í leikritinu var sonur Guðs
nefndur Wayne, í höfuðið á Roon-
ey, en hann var leikinn af Shrek
enda Rooney oft líkt við þann kar-
akter af breskum fjölmiðlamönn-
um. Hestur í leikritinu var síðan
í treyju Ruuds van Nistelrooy
og menn geta dregið sínar eigin
ályktanir af því. ■
Fjör í jólagleði Man. Utd.:
Ungu strákarnir gerðu
grín að Roy Keane
ROY KEANE Ekki gleymdur á Old Trafford og aðalatriði jólateitisins var helgað honum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þeir eru líklega fáir sem
átta sig á því hversu magnað afrek
það er hjá Trínidad og Tóbagó að
hafa tryggt sér þáttökurétt á HM.
Þessi rúmlega milljón manna
eyja í Karíbahafinu hefur hing-
að til verið þekkt fyrir allt annað
en knattspyrnuhefð og til að sjá
hversu vanþróað knattspyrnu-
samband landsins var áður en
undankeppnin fyrir HM hófst þarf
ekki annað en að rifja upp auglýs-
ingu sem birtist á heimasíðu sam-
bandsins fyrir tveimur árum. Þar
stóð meðal annars:
„Átt þú ættir að rekja til Tríni-
dad og Tóbagó? Ert þú með tvöfalt
ríkisfang þar sem annað þeirra er
Trínidad? Ef svo er, heldurðu að þú
sért nógu góður til að spila fyrir
landslið þjóðarinnar í fótbolta?
Smelltu hér til að vita meira...“
Ekki fylgdi sögunni hvort þessi
auglýsing bar tilætlaðan árangur
en þó er víst að nokkrir af þeim
leikmönnum sem í landsliðinu
eru hafa bókstaflega verið tíndir
af götunni. Chris Birchall, leik-
manni Port Vale á Englandi, var
til dæmis tilkynnt að það að móðir
hans hefði fæðst í Trínidad væri
nóg til að veita honum rétt til að
leika fyrir hönd Trínidad. Birchall
þáði boðið með þökkum og í júní
varð hann fyrsti hvíti leikmað-
urinn til að spila fyrir Trínidad í
sextíu ár. Og nú er hann á leið á
HM þar sem hann fær miðjuslag
gegn Frank Lampard og Steven
Gerrard í riðlakeppninni.
„Þegar ég kom fyrst til Tríni-
dad voru hér tuttugu ágætis ein-
staklingar en ekkert lið. Ég hef
verið fjörutíu ár í boltanum og
aldrei lent í því að þurfa að kenna
mönnum að spila saman,“ segir
hinn kunni þjálfari landsliðsins,
Leo Beenhakker, sem hefur meðal
annars þjálfað Real Madrid, Ajax
og hollenska landsliðið. Flestir
leikmanna Trínidad leynast í neðri
deildunum en þeirra kunnastur
er án efa Dwight Yorke, fyrrum
leikmaður Manchester United
en núverandi leikmaður Sydney
FC. Þrátt fyrir að vera orðinn 33
ára gamall og kominn af léttasta
skeiði er Yorke algjör lykilmaður
hjá Trínidad. Hann er fyrirliði,
spilar sem leikstjórnandi liðsins á
miðjunni og tekur allar spyrnur.
Trínidad lenti í fjórða sæti
í sex liða Mið-Ameríkuriðlin-
um fyrir HM og náði þannig að
komast í umspil um laust sæti þar
sem liðið mætti Barein. Þar vann
liðið 2-1 samanlagðan sigur og
fjarstæðukenndur HM-draumur
hafði því ræst. „Við ætlum ekki að
vera neinir túristar í Þýskalandi,“
segir Beenhakker aðspurður um
möguleika sinna manna á HM, en
þar er liðið í riðli með Englandi,
Svíþjóð og Paragvæ.
„Ég hef unnið Sven-Göran
Eriksson áður, þá var ég þjálfari
Feyenoord og hann hjá Roma.
Af hverju ætti það ekki að geta
gerst aftur?“ segir Beenhakker
og glottir. „Íbúar Karíbahafs-
ins munu ekki búast við miklu af
okkur en það er engin stærðfræði
eða líkindareikningur fólginn í
fótbolta. Hann er leikur og allt
getur gerst.“ - vig
Auglýst eftir leikmönnum á netinu
Það lið sem flestir telja ólíklegast til afreka á HM í Þýskalandi er Trínidad og Tóbagó þar sem hinn gamal-
kunni Dwight Yorke er allt í öllu. Fyrir tveimur árum var auglýst eftir leikmönnum í landsliðið á netinu.
ANDSTÆÐINGAR Leo Beenhakker, þjálfari
Trínidad, stillir sér upp með kollega sínum
hjá Englandi, Sven-Göran Eriksson, eftir
að dregið hafði verið í riðla á HM í síðustu
viku. Beenhakker segist hafa unnið Eriks-
son áður og geti vel gert það aftur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
DRAUMURINN HEFUR RÆST Leikmenn Trínidad ærðust hreinilega af fögnuði eftir að þeir höfðu tryggt sér sæti á HM með 2-1 samanlögð-
um sigri á Barein í umspili. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Umboðsmaður gríska
framherjans Angelos Charisteas
hefur neitað þeim sögusögnum að
skjólstæðingur hans sé á leið til
Sunderland í janúar. Charisteas er
í herbúðum Ajax en hefur fengið
fá tækifæri upp á síðkastið og því
var talið að hann yrði lánaður eða
seldur frá félaginu í janúar.
„Hann er með samning til árs-
ins 2008 og þann samning ætlum
við að virða,“ sagði umboðsmað-
urinn. - hbg
Angelos Charisteas:
Ekki á leið til
Sunderland
TENNIS Martina Hingis frá Sviss,
sem eitt sinn var besta tenniskona
heims, er harðákveðin í því að
reyna fyrir sér á ný og hún hefur
nú staðfest að hún muni taka þátt
á opna ástralska mótinu sem fram
fer í janúar.
Hingis, sem er aðeins 25 ára,
hefur ekki spilað tennis í fjögur
ár en hún varð að hætta vegna
meiðsla. Hún vann á sínum tíma
opna ástralska mótið í þrígang og
var á toppi heimslistans í nánast
fjögur ár. - hbg
Martina Hingis:
Ætlar á opna
ástralska
MARTINA HINGIS Snýr aftur á tennisvöllinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES