Tíminn - 21.05.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.05.1977, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 21. maí 1977 Pri'stsfjölskyldan I Stöö 1903 Ingólfur Davíðsson: 174 og búið í gamla daga Stöft i Stöövarfiröi (2. ágúst 1905) Stöðvarfjörður er litill falleg- ur fjörður milli Breiðdalsvikur og Fáskrúðsfjarðar. Liggja að honum há f jöll með ótal tindum og hvössum eggjum. Láglendið er m jög grösugt. Inn af firðinum gengur Stöðvardalur og er dáiit- ið kjarr i norðurhiiðum. Hefur þar fundizt blæösp. Skammt norðan f jarðarbotnsins stendur gamli kirkjustaðurinn og prestssetrið Stöð. Fylgja tvær myndir þaðan. Hefur Benedikt Guttormsson bankafulltrúi frá Stöð léð þærog gefiö skýringar: Prestssetrið Stöð i Stöðvar- firði. Myndin tekin i ágúst 1905 af Ólafi Oddssyni ljósmyndara á Búðum i Fáskrúðsfirði. Sóknar- presturinn sira Guttormur Vig- fússon stendur i forstofudyrun- um. Yngsti sonur hans Bene- dikt, sést á túninu fyrir neðan bæinn. Sr. Guttormur var siöasti prestur i Stöð. Lét af prestskap 1925 þá áttræöur. Stöðvar- prestakall var þá lagt undir eöa sameinaö Eydalaprestakalli samkvæmt þágildandi lögum um sameiningu prestakalla. Sama ár var Stöðvarkirkja rifin og endurbyggð úti i Kirkjubóls- þorpi. Og siðan hefir Stöðvar- sókn verið þjónað af prestinum að Eydölum. Sr. Guttormur lét endur- byggja bæjarhúsin á árunum 1900 til 1902. Hann var prestur i Stöö i 37 ár. Flutti þangað frá Svalbarði i Þistilfiröi, þar sem hann þjónaðii 12 ár, en þar áður tvö ár að Saurbæ i Eyjafirði og tvö ár að Rip i Hegranesi i Skagafirði. Gamla kirkjan sést lengst t.h. á myndinni. Við enda myndar- legra bæjarhúsa stóð skemma og fjós lengst t.v. við horn mat- jurtagarðsins. Næst kemur fjöl- sjcyldumynd frá Stöð: ' Prestshjónin i Stöð sr. Gutt- ormur Vigfússon og kona hans Þórhildur Siguröardóttir ásamt börnum þeirra hjóna og dóttur sr. Guttorms frá fyrra hjóna- bandi og dótturdóttur. Af þess- ari fjölskyldu eru tveir yngstu synir prestshjónanna á lífi, Sig- urbjörn og Benedikt. Eina upp- komna dóttur vantar á mynd- ina. Myndin er tekin af Brynjólfi Sigurðssyni ljósmyndara á Seyðisfirði árið 1903. Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigurbjörn, Páll, séra Guttormur, Þórhildur kona hans, situr undir Þorbjörgu, Anna dótturdóttir séra Gutt- orms.Siguröur. Standandi, talið frá vinstri: Guðriöur, Vigfús, Helga dóttir Guttorms. Að Kirkjubóli norðan Fjarð- arins er að vaxa upp snoturt þorp. Þar er útgerð, frystihús og túnrækt mikil. Byrjað er á trjá- rækt á kirkjubóli. Leitaöi ég fræðslu hjá Arnleifi Þórðarsyni um trjáræktina. Hann gróður- setti 4 elztu reynitren við heimili sitt Kirkjubólssel 1924, en sáöi birkifræi úr Bæjarstaðaskógi 1940. En árlð 1944 var byrjað að gróðursetja i reit fyrir utan Kirkjubólsþorpið. Nokkur tré standa við heimili einstaklinga og i kirkjugaröinum á Stöö. Sjá grein um trjágróður o.fl. i Stöðvarfirði i Garðyrkjuritinu 1952. Árið áöur athuguðum við Johs. Gröntved grasafræöingur gróður i Stöðvarfiröi og fundum 224 tegundir. Hvergi hef ég séð jafnmikið af hinni fögru kletta- frú og i fjallinu Steðja upp af Kirkjubóli. Klettarnir eru sums staðar snjóhvitir af blómum hennar. Bæði ofan við Kirkjuból og ofan viö Lönd utar með firð- inum, eru óvenju fagrar og gróskumiklar blómabrekkur og veður maöur bláttog gult blóm- gresið i hné. Fremur mun vera snjóþungt. Arnleifur Þdrðarson og Snati I Kirkjubólsseli I Stöðvarfirði ( 18.8. 1969) A Stöövarfiröi (18.8. 1969)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.