Tíminn - 21.05.1977, Qupperneq 12
12
Laugardagur 21. mal 1977
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið,
Pick-up og vörubifreið, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 24. mai kl.
12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
íslenska járnblendifélagið hf.
Icelandic Alloys Ltd.
Lágmúli 9, Reykjavlk, Iceland.
Framkvæmdastjóri
íslenska járnblendifélagið h/f óskar að
ráða framkvæmdastjóra til að veita félag-
inu forstöðu. Skrifstofa þess verður að
Grundartanga i Hvalfirði.
Umsóknir, er greini menntun og fyrri
störf, skulu vera á islensku og jafnframt
einu Norðurlandamáli eða ensku. Senda
ber umsóknir á nafn félagsins að Lágmúla
9, Reykjavik, b/t Hjörtur Torfason, vara-
formaður, eigi siðar en 6. júni nk.
islenska járnblendifélagið hf.
lcelandic Alloys Ltd.
Lágmúli 9, Reykjavlk, Iceland.
Raforkuverkfræðingur
íslenska járnblendifélagið h/f óskar að
ráða raforkuverkfræðing til starfa við
byggingu kisiljárnverksmf.ðjunnar að
Grundartanga og siðar við rekstur og við-
hald raforkuvirkja hennar.
Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri
störfum, sendist Jóni Steingrimssyni, Is-
lenska járnblendifélaginu h/f Lágmúla 9,
Reykjavik, eigi siðar en 6. júni nk.
Orkustofnun óskar að ráða til sin
vélritara
i hálft starf. Upplýsingar um menntun og
fyrri störf sendist Orkustofnun Laugavegi
116 fyrir 25. mai.
Orkustofnun
m
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir aprilmán-
uð 1977, hafi hann ekki verið greiddur i
siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 10%, en
siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
20. mai 1977.
60 ára:
Knútur Bjarnason
bóndi á Kirkiubóli
Knútur Bjarnason bóndi á
Kirkjubóli i Dýrafirði er sextugur
þ. 23. þ.m. Hann er fæddur 23. mai
1917. Foreldrar hans þau Bjarni
M. Guömundsson fyrrum bóndi á
Kirkjubóli og Kristín Guðmunds-
dóttir.
Knútur ólst upp á Kirkjubóli og
vandist þar öllum störfum er aö
landbúnaði laut, og haföi snemma
gott auga fyrir búskap. Hann
stundaði nám I Núpsskóla í 2 vet-
ur, en lengri varð skólagangan
ekki, en ég hygg að Knútur hafi
veriö góður námsmaður.
Eins og áður sagði, vann Knút-
ur við búskap föður sins I allmörg
ár, en hóf sjálfur búskap á Kirkju-
bóli 1943, I sambýli við systur
sina, Asdisi og mann hennar,
Guðmund Jónsson. Hefur hann
búið þar siðan með móður sinni.
Mikið átak hefur veriö gert i
uppbyggingu og ræktun i búskap
þeirra Guömundar. Byggt var
nýtt ibúðarhús og flest önnur hús
hafa verið endurbyggð og reist á
ný. Ræktun er mikil á Kirkjubóli
og hafa mörg handtök verið unnin
til að bæta landið, enda bústærð
nær þrefaldast i búskapartið
þeirra Guömundar og Knúts.
A fystu búskaparárum Knúts,
fór hann á vertíð I nokkur ár, bæöi
á Akranes og Þingeyri. Reyndist
hann þar, sem annars staöar eft-
irsóttur til vinnu. En þegar
skepnum fjölgaði, hætti hann ver-
tiöarstörfum. Knútur hefur mikið
fengizt við félagsstörf. Hann er
formaður Búnaðarfélags Þing-
eyrarhrepps og hefur verið yfir 20
ár. 1 hreppsnefnd Þingeyrar-
hrepps var hann i 8 ár, þar af odd-
viti eitt kjörtimabil. Þá er hann i
stjórn Kaupfélags Dýrfiröinga á
Þingeyri og I stjórn Fáfnis h/f,
aöal útgerðarfélagi staöarins. Þá
var hann lengi einn aðal fram-
kvæmdamaður I ungmennafélagi
hreppsins og formaður þess um
skeið. Einnig hefur hann verið
kjötmatsmaður i Dýrafirði i
fjöldamörg ár. öllum þessum
störfum hefur Knútur gegnt af
stakri prýði og verið sótt eftir
hans ráðum, þar sem hann hefur
starfað. Knútur er glaðlyndur
maður og einstakt prúðmenni i
allri sinni framkomu. Er það
engum ofsögum sagt, aö hann á
marga vini en enga óvini. Sá, er
þetta ritar, á Knúti margt að
þakka fyrir einstaka hjálpsemi
bæði fyrr og siðar. Það Kirkju-
bólsfólk allt hefur verið mér og
minu fólki einstaklega góðir ná-
grannar um rúmlega þrjátiu ára
skeið.
Þetta áttu nú aðeins að vera fá-
ein orð i tilefni afmælisins en ég
get ekki skiliö svo við þessa grein,
að minnast ekki á, aö Knútur hef-
ur saltað og reykt hangikjöt fyrir
flesta ibúa þessa hrepps i áraráð-
ir og vilja konur hér helzt ekki
hangikjöt, nema Knútur hafi þar
um höndum farið. Þannig hefur
hann leyst öll sin störf af höndum.
A þessum timamótum i ævi
manna, er oft skyggnzt um öxl.
Þegarég lít til liðinna ára, verður
mér hugsað til samferðar okkar
Knúts i lifinu og man ég þá ekki
eftir ööru en björtum minningum.
Ég sendi þér okkar beztu af-
mæliskveöjur frá Múla. Lifðu
heill.
ÞórðurJónsson
Hana gildir einu, þessa, þó að hann rigni. Það getur komið sér
vel að eiga svona fllkur við garðvinnu og skógrækt hér sunnan
lands. —Tlmamynd: Róbert.
Hafnfirdingnm
kennd handtökin
við ræktunina
A s.l. vori efndi Skógræktar-
félag Hafnarfjarðar til sýni-
kennslu i sáningu trjáfræs og
klippingu á viðiteinungum og
niöursetningu þeirra. Þátttaka
var mjög mikil og sýndi að
margir vildu notfæra sér þær
ágætu leiðbeiningar, sem Jón
Magnússon, hinn kunni plöntu-
framleiðandi, lét þarna i té.
Það er lika vitað aö margir
þátttakenda urðu sér útium fræ
og viðisteinunga og hófu nú
ræktun sinna trjáplantna en að
sjálfsögðu með misjöfnum
árangri eins og gengur.
Nú eru vorstörfin hjá félaginu
að hefjast i græðireitnum þar
sem sýnikennslan fór fram i
fyrra, og dagana 23. mai til 28.
mai' verður unniö þarna frá kl.
17-19. Þarna ættu sem flestir
þátttakenda frá i fyrra að mæta
einhvern daginn og einnig aörir
þeir sem áhuga hafa. Þarna
getum við skipzt á skoöunum og
reynslu sem við höfum öölazt á
árinu.
Við munum sýna fólki hvernig
taka á upp plöntur úr sáðbeði og
dreifsetja i beð, læra réttu
handtökin með þvi að vinna 1-2
stundir við þessi skemmtilegu
störf.
12 ára stelpa
óskar ef tir að komast i
sveit. Er vön.
Upplýsinqar í síma
(91) 40671.
Röskur drengur
á þrettánda ári, ósk-
ar eftir dvöl i sveit i
sumar. Uppl. i sima
(91) 44266.
Firma-
keppni
hesta-
manna
að Varmá
Hestamannafélögin eru nú á fullu
i vertlð sinni og má segja að
kappreiðar og hestamót alls kon-
ar verði nú meira og minna um
hverja helgi sem framundan er.
Stöðugt eykst fjölbreytnin og
fleiri greinar eru teknar I iþróttir
hestamanna, og þósaknar maður
að sjá ekki lengur kerruakstur-
inn, sem var orðinn nokkuð viss
grein á hestaþingum.
Firmakeppni er nú að færast
mjög i vöxt en slik keppni er
raunar fjáröflun með auglýsing-
um og er allþekkt fyrirbæri i
ýmsum Iþróttagreinum.
Hestamannafélagiö Höröur i
Kjósarsýslu áformar nú að halda
sina fyrstu firmakeppni að
Varmá á laugardag og
keppa þar um það bil 30 gæöingar
á vegum einstakra verzlunar-
fyrirtækja sem hljóta verðlaunin
og skreyta með þeim skrifstofur
sinar.
Hin almenna þátttaka reiö-
manna I firmakeppnum sýnir að
þær eiga fullan rétt á sér og þá
einkum frá hinu alkunna sjónar-
miði, að allir séu meö en ekkert
aðalatriði aö vinna þó þaöaðvisu
sé i raun keppikefli keppenda.
Aðstaða á mótsstað er hin ákjós-
anlegasta, bæði fyrir hesta og á-
horfendur, en keppnin hefst kl.
14.30 laugardaginn 21. maf
Moldarsala
Lionsklúbbs-
ins Munins
í Kópavogi
F.I. Reykjavik. — Hin árlega
moldarsala Lionsklúbbsins Mun-
ins i Kópavogi verður um næstu
helgi dagana 21. og 22. mai og
mun allur ágóði af sölunni renna
tilliknarmála. Hefst salan kl. 9 aö
morgni báða dagana og stendur
til kl. 18.
Tekiö verður á móti pöntunum
nú þegar i simum 42524 kl. 17:30-
19 og 41956 kl. 10-12. Beina klúbb-
félagar þeim eindregnu tilmælum
til manna, aö þeir panti timan-
lega og undirbúi jarðveginn
heima hjá sér fyrir komu
moldarinnar. Pantanir eru send-
ar heim.