Tíminn - 21.05.1977, Síða 13
Laugardagur 21. mal 1977
13
BÆNDUR
TORNADO
áburðardreifarinn
Austurrísk gæðaframleiðsla
Sterkbyggðari.
Rúmtak: 300 1.
Vinnslubreidd: Allt að 15 m.
Nákvæm stilling úr ekilssæti.
Tilbúnir til afgreiðslu.
Góðir greiðsluskilmálar.
Guðbjörn Guðjónsson
HEILDVERZLUN
Síðumúla 22 — Simi 8-56-94
Landsmót
Skóta 1977
Ert þú
búinn að
skrá þig?
Snjóinn tekur hratt upp
á N orðaus turlandi
Sigurvegararnir i firmakeppninni frá vinstri, Lómur sem hlaut 1. verólaun I karlaflokki, Stigur, 1. veró-
laun i kvennaflokki, og Krapi sem varö fyrstur I unglingaflokki.
Eitt hundrað og sjö fyrirtæki tóku
þátt i firmakeppni Gusts
Firmakeppni Hestamannafélags-
ins Gusts var haldin á Kjóavöll-
um laugardaginn 14. mai.
Eitt hundraö og sjö fyrirtæki
tóku þátt i keppninni. Keppnin
var þriskipt, unglingaflokkur,
kvenna- og karlaflokkur.
1 unglingaflokki voru þrjátiu
keppendur, þar var Glerskálinn
h/f Siðumúla 11, Reykjavik I
fyrsta sæti. Fyrir hann keppti
Lena Gústafsdóttir á Krapa, 12
vetra gráum.ættuðum úr Borgar-
firði, eign Vilhjálms Hannesson-
ar. Annar varð Dagblaðið Þver-
holti 2,‘ Rvik. Fyrir það keppti
Þóra Asgeirsdóttir á Tvisti,
rauðum 5 vetra og I þriðja sæti
var Vinnufatabúðin Hverfisgötu
26, Rvik og það var Oddný Jóns-
dóttir sem keppti fyrir hana á
Herði 11 vetra jörpum.
1 kvennaflokki voru keppendur
tuttugu og þrir. Þar vann Tré-
smiðjan Grein h/f Auðbrekku 49,
Kópavogi fyrstu verðlaun. Fyrir
hana keppti Sigríður Benedikts-
dóttir á Stig, 6 vetra brúnum
hesti, ættuðum úr Skagafirði.
Annar var Bilasprautun
Guðmundar Einarssonar, Alf-
hólsvegi 52, Kópavogi. Fyrir hana
keppti Ólöf Skúladóttir á Gústa,8
vetra og þriðju verölaun hlaut
verzlunin Alfhóll, Hamraborg 9,
Kópavogi. Það var Móri, 7 vetra
knapi og eigandi Elín Ingvars-
dóttir.
1 karlaflokki voru keppendur
fimmtiu og fjórir. Þar unnu
Panelofnar, Fifuhvammsvegi 23,
Kópavogi, fyrstu verðlaun. Fyrir
það fyrirtæki keppti Lómur, 10
vetra rauður ættaður úr Horna-
firði, eigandi og knapi Þorleifur
Pálsson. Annar var Iðn h/f As-
garði 20, Reykjavik og það var
Öfeigur, sem fyrir hana keppti,16
vetra rauður. Eigandi og knapi
Svanur Halldórsson og þriðji var
Smiðastofa Sverris Hallgrims-
sonar h/f Trönuhrauni 5, Hafnar-
firði. Fyrir hana keppti Grani, 9
vetra eign Siguröar Björnssonar.
Veður var hið bezta og fjöldi
áhorfenda.
Kappreiðar Gusts verða svo um
næstu helgi á Kjóavöllum, kl.
14.00 á sunnudag, en dómur gæð-
inga á lauganjaginn á sama tima.
JB-Rvik — Vorið er búiö að vera
kalt og það hefur ekkert hlýnað i
veðri fyrr en i gær, aö fór aö hlána
og tekur snjóinn hratt upp. Enn er
mikill snjór i uppsveitum, og ég
held aö um tiu ár séu slðan viö
höfðum svona mikinn snjó á
þessum árstima síðast. Þaö hcfur
verið sólbráö á daginn en frcst á
nóttunni, sem er alveg afleitt,
sagöi Stefán Skaptason ráöu-
nautur á Staöarhóli i viðtali viö
Timann.
Aðspuröur sagöi Stefán aö
hann gæti engu spáð fyrir um
kalhættuna en — snjórinn kom
ekki snemma og féll þurr, þannig
að hann náði ekki aö mynda svell.
Þaö ætti þvi ekki að vera bráð
hætta, — nema ef snjórinn helzt
eitthvað fram I júni, — sagði
Stefán.
— Við urðum fyrir miklum
skakkaföllum i fyrra af völdum
kals og megum ekki við neinu
núna. Þaö er knappt um hey,
annars eru skepnuhöld góð og
sauðburöur i fullum gangi. En
það veröur bið á þvi aö menn hefji
vorstörfin. Við höfum keypt gras-
köggla aö sunnan, en höfum ekki
fengið þá senda með skipi enn
vegna yfirvinnubannsins og það
eru þungatakmarkanir á vegum,
þannig aö við fáum þá ekki land-
leiðina heldur. Hins vegar er
Læknaritarar ^
Stöður læknaritara I Borgarspitalanum eru lausar til um-
sóknar. rÆj
Umsækjendur skulu hafa stúdents- eða verzlunarskóla-
menntun og vera leiknir i vélritun. Starfsreynsla æskileg.
Laun skv. kjarasamningum borgarstarfsmanna.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum skulu sendar
skrifstofustjóra fyrir 26. mai nk.
Reykjavik, 18. mai 1977
Borgarspitalinn
l
Tónlistarkennarar
Tónlistarskóli ólafsvikur óskar að ráða
tónlistarkennara á vetri komanda til
kennslu á blásturshljóðfæri, pianó og git-
ar.
Nánari upplýsingar veitir formaður
skólanefndar, i sima 93-6106, Ólafsvik.
Tónlistarskóli Ólafsvikur.
áburðurinn nær allur kominn, —
sagöi Stefán og kvaðst álita, að ef
sumarið væri komið, þyrftu
bændur þarna ekki aö hafa neinar
stóráhyggjur.
Bændur
Öska eftir góðu
sveitaheimili fyrir
dreng á 13, ári, þó
ekki væri nema i
mánaðartima.
Upplýsingar í sima
23280, Rvík.
Verð miðans
kr. 400
1 á kr. 500 þús
1 á kr. 300 þús
1 á kr. 200 þús.
5 á kr. 100 þús,
4 á kr. 50 þús.
4 á kr. 30 þús.
4 á kr. 20 þús.
10 á kr. 10 þús.
Vöruhappdrætti Framsóknarflokksins
Rauðarárstig 18 — Fósthólf 5531 — Reykjavík
Simi 2-44-83
í Undirr_
Samtals 2 milljónir
Dregið 10. júni 1977
Nafn
Heimili
óskar að fá senda
miða i happdrættinu
□ Greiðsla fylgir hér með.
Q Óskast sent með Giró-seðli.
Bæjar- eða sveitarfélag