Tíminn - 21.05.1977, Síða 15
Laugardagur 21. mal 1977
15
Sovétmenn hafa lagt til að
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna banni sem fyrst að hafa á-
hrif á loftslag I hernaðarlegum
tilgangi. Oldungadeild Banda-
rikjaþings hefur gert drög að
tillögu sem beinir þvi til forset-
ans að hefja samningaviðræður
um máliö, en lengra er það ekki
komið.
Engar sannanir
bað sem er einna óhugnanleg-
ast við veðurstyrjöld, er aö hún
getur hafizt án striðsyfirlýsing-
ar — án þess að sá aðilinn sem
fyrir árás verður, geti verið viss
um að um árás sé að ræða, eða
hvort þetta veðurfar er einn af
duttlungum náttúrunnar. Veð-
urstyrjöld getur verið háð i
leynum um lengri tima. „Frið-
samlegir” kinverskir veður-
fræðingar gætu til dæmis komið
ýmsu til leiðar i Sovétrikjunum,
eins og uppskerubresti, eða
þurrkum og enginn getur sann-
að að þetta sé gert viljandi.
— Vill mannkynið eiga á
hættu að verða fyrir barðinu á
veðurhernaði auk alls annars,
sem það hefur kallað yfir sig?
Spúrningin er lögð fyrir Noel
LeSeut, prófessor og veðurfræö-
ing við háskólann i Miami.
— Það eru engar sannanir
fyrir þvi að gerðar séu tilraunir
með veðurstjórn i hernaðarleg-
um tilgangi, hvorki i Bandarikj-
unum né Sovétrikjunum, svarar
hann. — Þetta eru vangaveltur,
sem gera meira ógagn en gagn.
Enginn, sem tekur veðurfræði-
visindi alvarlega, færi að gera
neitt slikt.
— Er tæknilega mögulegt að
senda fellibyl til óvinalands?
— Það er ekki hægt að búa til
fellibyl úr engu, segir dr. Le-
Seut. — Ekki er heldur hægt aö
fjarlægja hann alveg. Það er að-
eins hægt að auka hann eða
minnka. Veðuráhrif er hentugra
orð en veðurstjórn. Hér I Miami
höfum við gert tilraunir með aö
draga úr áhrifum fellibylja.
Komið hefur i ljós, að þeir auka
styrk sinn aftur eftir sólarhring
frá þvi silfurjoði er sprautað yf-
ir þá. Það þarf að endurtaka
þetta og þaö er aðalvandamálið
ennþá.
— En að gera gat á ózonlag-
ið? Hvaða afleiðingar hefði
það?
— Ef ózonlagið minnkar, get-
ur það haft óæskilegar afleið-
ingar — en aðeins að vissu
marki. Ollu eru takmörk sett,
það má ekki bara horfa á hlut-
ina sem svart og hvitt. Að gera
gat.... það er óhugsandi, segir
prófessorinn og brosir. — bað
gæti aldrei verkað ....
— Hvað eru úðunarbrúsarnir
hættulegir? Þrýstigasið?
— Freongasið getur komið af
staö efnafræðilegri keðjuverkun
og þynnt ózonið — en gasið næði
upp i 25 þúsund metra hæð. Tal-
ið er að þynnra ózonlag geti or-
sakað húökrabba — en hann er
mun algengari á hitabeltissvæð-
unum, þar sem sólargeislarnir
þurfa skemmri leið til jarðar.
Spurningin er hvort náttúran
endurbyggir ekki jafnóðum það
sem eyðilagt er, þannig að þétt-
leiki ózonlagsins sé alltaf sá
sami. Mælingar sýna frá þvi
þær hófust um 1960, að ózonlagið
hefur heldur þykknað en hitt á
þessum tima — þrátt fyrir allar
þoturnar og eldflaugarnar, sem
gert hafa „göt” á himininn.
Getur þá verið aö náttúran
haldi verndarhendi sinni yfir
okkur þrátt fyrir allt — að við
höfum eins konar „englavörð”
yfir okkur, sem bjargar okkur
frá vitleysunum, sem við kunn-
um að þvæla okkur i, rétt eins og
óþægu börnin?
breyttust i rústir á hafsbotni, og
skýjakljúfar New York stæðu
upp úr sjónum eins og yfirgefin
minnismerki.
Loftslag fyrri tíma
Heimskautasvæðin eru mikil-
væg i veðurkerfinu. Hvitar is-
breiöurnar endurkasta sólar-
ljósinu, kæla loftið og koma þar
með miklum loftstraumum af
stað. Ef isinn hyrfi, breyttist allt
loftstraumakerfið. Afleiðing-
arnar yrðu örlagarikar fyrir
mörg lönd. Jastrow prófessor
telur að minnkun heimskauta-
issins yrði ekki til að bæta lofts-
lag á jörðinni, heldur þvert á
móti.
Þurrkurinn, vatnsskorturinn
er mikið vandamál viða. Mikill
hluti yfirborðs jarðar eru gróð-
urlausar eyðimerkur. En þær
hafa ekki alltaf verið þarna.
Fyrir nokkrum þúsundum ára
var mun meira vatn i Norður-
Afriku og Mið-Austurlöndum en
nú. Veðurfræðingar reyna að
komast að þvi hvað hefur valdið
þurrkunum. Ef til vill verður
hægt að öðlast fyrri tima lofts-
lag aftur á þessum slóðum.
Ein aðferðin gæti verið sú aö
„mála eyðimörkina svarta” —
sprauta kolsvörtu dufti á sand-
inn til að drekka i sig meira af
hita sólarinnar. Þetta getur
virzt hljóta aö hafa öfug áhrif að
gera eyöimörkina enn heitari en
hún er, en það mundi breyta
loftstraumum á þessum svæð-
um. Heitt eyðimerkurloftið stigi
upp og rakamettað sjávarloft
streymdi inn yfir eyðimörkina i
staðinn. Þannig væri hægt aö
stjórna regni og breyta miklum
hluta Sahara og Arabiueyði-
merkurinnar i ræktanlega jörð.
— En —ekki er enn vitað, hvaða
áhrif slikt hefði á loftslag ann-
ars staðar.
Með veðrið að vopni
Sagt hefur verið, að sá sem
nær valdi yfir veðrinu, muni
einnig stjórna heiminum. Þvi er
haldið fram, að stórveldin séu
að búa til urmul af skelfilegum
„veðurvopnum”, og styrjöld, ef
til kæmi, gæti orðið hrein mar-
tröð.
Veðurvopn er ekki lengur
hugarfóstur. I Vietnam-striðinu
reyndu Bandarikjamenn að
hefta framsókn kommúnista
með gerviregni Regnið var 30%
meira en venjulega — afleiðing-
arnar urðu skriðuföll og flóð
sem eyðilögðu brýr og breyttu
vegum i siki. En þetta má kall-
ast smáræði i samanburöi við
framtiðarspár:
Hernaðarveðurfræði gerir ráð
fyrir þeim möguleikum að
stjórna eldingum og fellibylj-
um, að þvi er brezk veðurfræði-
stofnun upplýsir. Talið er að
veðrið geti beinlinis orðið að
vopni: Þrumuveður og réttar
tegundir eldinga geta orsakað
mikla skógarelda i óvinalandi.
Fellibylur, sem sleppt er laus-
um á strönd lands, getur lamað
flota viðkomandi.
Það sem næst okkur er þessa
stundina, er ekki svona stór-
fenglegt. Það má flytja her-
deildir i skjóli gerviþoku. Slikt
getur kallað á beitingu gagn-
vopna, til að leysa upp þoku og
ský. Með þvi að upphefja regn-
myndun er lika hægt að fram-
kalla þurrkatið i óvinalandi,
eyðileggja landbúnaðinn og or-
saka hungursneyð.
Sovézk skýrsla um veður-
hernað sýnir sitt af hverju. Að
visu höföar hún að mestu til
bandariskra sérfræðinga, en þó
má á henni sjá að Sovétmenn
standa hinum ekkert að baki.
Eyöandi flóðöldur er hægt að
senda að ströndum óvinalanda
með kjarnasprengingum á hafs-
botni. Kjarnasprengingar á suð-
urskautslandinu, sem steypa is-
björgum i sjóinn, geta beint
flóðöldum i ýmsar áttir. önnur
hugsanleg aöferð er áð „gera
göt” i gufuhvolfiö, eða ózonlag
þess, og hleypa þar i gegn út-
fjólubláum geislum sólarinnar
— dauðageislum — og beina
þeim gegn mönnum, dýrum og
gróðri.
Enn eitt afbrigði veðurhern-
aðar er með breytingum á raf-
kerfi gufuhvolfsins, sem hafa á-
hrif á starfsemi mannsheilans.
Ekki er óalgengt að fólk finni til
óeðlilegrar þreytu eða fái höfuð-
verk þegar þrumuveður er i
nánd. Verði þessi áhrif marg-
földuö, er hægt aö lama heilu
herina.
Blómstrandi eyðimerkur
og bráðin ísfjöll.
Hægt er að breyta eyðimörk-
unum i suðvesturhluta Banda-
rikjanna i blómagarða með
gerviregni. En það þýðir hins
vegar að landbúnaðurinn i
Mexikó eða annars staðar verð-
ur þurrkum að bráð. En innan
tiu ára getum við farið að gera
stóra hluti, segir dr. Jastrow.
Stórveldin eru i kapphlaupi —
hægu kapphlaupi að visu, um að
ná valdi yfir veðrinu. Banda-
riskir sérfræðingar hafa varað
stjórn sina við yfirburðum So-
vétmanna i þessu efni. Sovét-.
menn gera tilraunir með það
fyrir augum að bæta loftslagið i
vissum hlutum Siberiu, en slikt
gæti haft neikvæð áhrif á banda-
riska meginlandinu. Slikt gæti
jafnvel breytt valdajafnvægi i
heiminum.
Bandariskir visindamenn
lögðu fyrir nokkrum árum fram
áætlanir um að gera loftslag
Norður-íshafssvæðanna nota-
legra. Um var að ræða gerð
mikillar stiflu þvert yfir Ber-
ingsundið. I sundinu, sem er 85
km breitt og aðeins 40 metra
djúpt, mæta kaldir ishafs-
straumar hlýrri straumum úr
Kyrrahafinu, en við slikt mynd-
ast isborgir, þoka og lágþrýsti-
svæði, sem gera svæöið einkar
óaðlaðandi.
Fariö yfir bandariskt veöurtungl, áður en það er sent út f geiminn til að safna nýjum upplýsingum um
gufuhvoif jarðar.
Noel LeSeut prófessor skýrir hvernig hægt er að draga úr styrk
felliby 1 ja__
afkastameiri. Gallinn er bara
sá, að þeir dæla úr sér þeim
ósköpum af staðreyndum, að
tölvur hafa ekki undan að taka
við. Stofnun prófessors
Jastrows hefur yfir aö ráða
tölvu, sem reiknað getur 16
milljón dæmi á einni sekúndu,
en það er ekki nóg!
Bráðlega kemur að þvi að
gervitungl og tölva i einu og
sama tækinu veitir okkur mögu-
leika til að stjórna veörinu, seg-
ir dr. Jastrow. — Smátt og
smáttlærum við að breyta veðr-
inu eftir okkar höfði. En við
verðum alltaf að vita fyrirfram,
hverjar afleiðingarnar geta orð-
ið.
Tilgangurinn með stiflunni
var að hluta að koma i veg fyrir
að kaldir straumar færu suður á
við, og að hluta til að dæla heit-
um sjó inn i ishafið. Þetta myndi
skapa gagnstraum, sem flytti
hluta ylsins úr Kyrrahafinu
norður i átt að heimskautinu og
bætti þar með loftslagiö i allri
Siberiu, bræddi isinn og opnaði
nýjar siglingaleiðir.
Mótmæli alls staðar að úr
heiminum voru kröftug. Varað
var við hamförum i kjölfar
þessa. Yfirborð sjávar myndi
hækka um marga metra og
meiri hluti stórborga heimsins,
sem eru við sjó, færu i kaf.
London og Tókió hyrfu og
Fannst þér veturinn langur? t»á eru hér gleðifréttir:
Vísindin eru komin vel á veg með að stjórna veðrinu
og breyta þvi eins og óskað er. En ókunnar hættur
leynast í þessu og það má beita veðrinu sem vopni!