Tíminn - 21.05.1977, Blaðsíða 25
Laugardagur 21. mai 1977
25
lesendur segja
Hvers vegna láglaunaland?
1 sjónvarpi á föstudag 6. mai
s.l. var gerð tilraun til saman-
burðar á launum, verðlagi á
vöru, sköttum og öörum fram-
færslukostnaði milli Islands og
Danmerkur. Að visu nokkuð
lausleg tilraun, samt sem áður
gaf hún ákveðnar visbendingar,
Þættinum lauk með rabbi 3ja
manna, sem veltu fyrir sér or-
sökum þess að ísland er lág-
launaland, þótt þjóöarfram-
leiðsla ætti að benda til annars.
Mjög er eðlilegt að spurt sé
um þetta, hitt finnst mér furðu-
legra hve margir eru seinir að
átta sig á aðalorsök þessa fyrir-
bæris. t umræðuþætti þessum
komu fram ýmsar skýringar,
svo sem um aðstöðumun okkar
vegna fámennis, landstærðar
o.fl. sem er út af fyrir sig rétt.
Samt fannst mér menn aldrei
komast að aðalatriöinu, þó jaör-
aði við það eins og i óljósu fálmi.
1 huga minum er enginnefi hver
er hér aðalórsök. Það er verð-
bólgan. Ekki aðeins með óbein-
um áhrifum vegna fjárfestingar
i steinsteypu, heldur með bein-
um áhrifum sem hægt er að
rekja, ef málið er athugað.
Hækkun kostnaðarliöa vegna
verðbólgu kalla á hærra verð
vörunnar. Sé um útflutning að
ræða er framleiðandi algjörlega
háður verðlagsþróun i viðtöku
landinu. Þegar hjólin eru að
hætt að snúast og hrun blasir viö
hefur vandinn verið leystur með
þvi að lækka gengið. Þetta hafa
veriö árvissir atburðir um ára-
tugaskeið, með örfáum undan-
tekningum ef framleiðsla okkar
hefur hækkað sérstaklega, eins
og t.d. á s.l. ári. Sú hækkun
frestaði gengislækkun hjá okkur
ef til vill um eitt ár, en hún gerði
ekkert meira.
Mér finnst reynslan hafi sýnt
það að atvinnuvegir sem berjast
við 35-50% árlega verðbólgu
reynast algjörlega ómegnugir
þess að hækka kaup, fyrr en
þeirri óáran er aflétt. Það er
augljóst að það skapast sjálf-
virkt kerfi, sem heldur kaupinu
i algjöru lágmarki og það mun
haldast unz þessi vitahringur er
rofinn.
Gunnar Grimsson
Her og herfjötrar
Þegar Bandarlkjamenn fóru
fram á herstöðvar á tslandi til
99 ára eftir siðustu heims-
styrjöld, mátti heita aö þjóöar-
eining rikti um að hafna þeim
tilmælum. Reyndar voru til
menn sem þá vildu semja um
herstöövar, en fæstir þeirra
höfðu hátt um sig. Almenningur
gerði sér ljóst að samningar um
erlendar herstöðvar i landinu
væru i hróplegri mótsögn við
lýðveldisstofnun 1944 og yfirlýs-
ingu um ævarandi hlutleysi
1918. En Bandarikjamenn voru
ekki af baki dottnir, enda hafði
tilgangur þeirra með viöur-
kenningu á lýðveldinu veriö að
ná hér tangarhaldi til frambúö-
ar fyrir her sinn, eins og
skýrslur sem þá fóru að vonum
leynt, hafa siöar leitt I ljós.
Leiðin var þó smám saman opn-
uð, með Keflavikursamningi
1946, stofnun NATO með aðild
Islands 1949 og loks með her-
stöðvasamningnum 1951. I al-
þingiskosningum hefur meiri-
hluti þjóðarinnar kyngt óbein-
linis öllum þessum samninga-
gerðum — eftir á, þvi að fyrir
fram hefur þjóöin aldrei verið
spurð —og öllum á fölskum for-
sendum. Méð Keflavik-
ursamningi hvarf Bandarikja-
her héðan að nafninu til, en
hann hefði átt að fara ári fyrr
samkvæmt samningnum frá
1941: aðild Islands aö NATO
fylgdu hátiðlegar yfirlýsingar
um að hér yrði ekki her á friðar-
timum, herstöðvasamningurinn
1951 var varinn með rikjandi ó-
friðarástandi vegna Kóreu-
styrjaldarinnar, en þvi ástandi
lauk fljótlega. Nú höfum við bú-
ið við ódulbúna bandariska her-
setu i meira en aldarfjórðung
samfleytt.
Rússahræðsla.
A árum kalda striðsins var
Rússahræðsla að mörgu leyti
skiljanleg. Sovétrikin höföu lagt
undir sig sneið austan af flest-
um þeim rikjum sem áttu að
þeim landámæri að vestan og
jafnvel innlimað heil þjóðriki
þar sem Eystrasaltslöndin
voru. Sovétrikin réðu þvi sem
þau vildu ráða um alla austan-
verða Evrópu, og hvarvetna
gnæfðu þar við himin styttur af
þeim manni sem raunverulega
stjórnaði þessu veldi öllu og
baröi niður af miskunnarleysi
minnstu mótbáru og jafnvel i-
myndaða andstöðu. Og komm-
únistaflokkar og sumir sósial-
istaflokkar Vestur-Evrópu og
viðar um heim töldu það skyldu-
verk sitt að réttlæta hvert þaö
verk sem unniö var i nafni sósi-
alismans af ráöamönnum
Sovétrlkjanna og bandamönn-
um þeirra.
Breytt viðhorf
Síðustu áratugina hefur orðiö
æ ljósara að sumar forsendur
Rússahræðslu á Vesturlöndum
hafa aldrei veriö fyrir hendi og
aðrar eru þaö ekki lengur.
Sovétrikin hafa virt þá skipt-
ingu Evrópu i áhrifasvæði, sem
stórveldin komu sér saman um i
striðslok, og þeim hefur ekki
einu sinni tekizt að halda fyrri
völdum á eigin áhrifasvæði. í
Ungverjalandi og
Tékkóslóvakiu hafa Sovétrikin
beitt hervaldi til að tryggja völd
sér þóknanlegra manna, en
Júgóslavia, Albania og
Rúmenia hafa eflt sjálfstæöi sitt
hvert með sinum hætti. Loks
hafa allir kommúnista- og
sósialistaflokkar, sem nokkuð
kveður að i Vestur-Evrópu og
viðast hvar annars staðar, hafn-
að gjörsamlega forsjá sovézka
kommúnistaflokksins og tekið
upp harða gagnrýni á það
ófrelsi til orðs og æðis sem ein-
kennir' svonefndan sósialisma
Sovétrikjanna og fleiri landa.
Eðli NATO
Enda þdtt svo sé aö oröi
komizt i Atlantshafssamningn-
um, að NATO sé stofnað til þess
að varðveita frelsi og lýöræöi,
hefurferill bandalagsins og for-
ysturikis þess Bandarlkjanna
sérstaklega sýnt að raunveru-
legur tilgangur bandalagsins
hefur frá upphafi veriö sá að
tryggja auðvaldsskipulag i að-
ildarrikjunum og áhrif Banda-
rikjanna. Frá öndverðu var ein-
ræðisrikið Portúgal meðal
aðildarrikja, og meðan
einræðisklíka herforingja, sem
brauzt til valda á Grikklandi
með velþóknun og stuðningi
NATO og Bandarikjanna, réð
þar rikjum, var Grikkland
tryggari hlekkur i keðju NATO
en þaö hefur verið bæði fyrr og
siðar. Þessi dæmi segja sina
sögu, en enn skýrara máli hefur
þó talað blóöi drifinn ferill
Bandarikjanna um allan heim,
þar sem spilltustu kúgunaröfl
hafa hvarvetna verið tryggustu
bandamenn þeirra. Vietnam er
ekki gleymt, þó að þjóöfrelsisöfl
hafi sigrað þar að lokum.
Andstaða gegn her-
stöðvum
Andstaða gegn erlendum her-
stöðvum á tslandi var framan af
reist að verulegu leyti á for-
sendum þjóðarmetnaðar og
þjóðernishyggju. Margt fólk,
sem hafði lifaö slöustu áfanga
sjálfstæðisbaráttu Islendinga
gegn Danaveldi, leit að sjálf-
sögöu á erlendar herstöðvar
sem nýja mynd undirokunar, og
friðarsinnum, sem þótti vegur
að þvi að íslendingar hefðu um
langan aldur veriö vopnlaus
þjóð, hraushugurviöþviaðþeir
gerðust aðilar að hernaðar-
bandalagi og léöu land sitt undir
vighreiður. Meö einangrun
striðsáranna frá meginlandi
Evrópu og Norðurlöndum hafði
Islandi veriö kippt inn á engil-
saxneskt menningarsvæði, og
margir hafa gert sér ljóst aö
bandariskur her hefur með nær-
veru sinni og fjölmiðlun átt
verulegan þátt I aö halda land-
inu undir stöðugum menningar-
áhrifum þaðan, eins og Islenzk
sjónvarpsdagskrá og myndaval
kvikmyndahúsa ber ljósast vitni
(að ógleymdum svarthöfðuðum
eiturblæstri gegn starfsemi
Norræna hússins). öll þessi
sjónarmiö herstöövaandstæö-
inga eru enn i fullu gildi. En á
siðari árum hafa fleiri óg fleiri,
ekki sizt ungt fólk, tekið afstöðu
gegn herstöðvum á þeim for-
sendum aö bandarlskur her sé
hér einkanlega sem lifvörður
auðvaldsskipulags og meö þvi
að ljá land undir herstöðvar
og eiga aðild að NATO, séu þeir
sem það gera, bandamenn fjöl-
þjóðlegs auðvalds gegn arð-
rændum þjóöum og stéttum um
allan heim. öllum er nú lika
orðið ljóst, eftir atburöi siðustu
ára i islenzkri fiskveiöilögsögu,
að bandariskur her er hér ekki
til að verja landið fyrir hugsan-
legriárás óvina. Loks er þess að
minnast.að enda þóttóraunsætt
séað gera ráö fyrir árás á land-
ið sjálft nema þvi aöeins, að bil-
un á sjálfvirku kerfi steypi
heimshluta okkar i striö, stafar
sifelld hætta af herstöð á mesta
þéttbýlissvæði landsins vegna
vopnabúnaðar sem stjórnvöld
hafa hvorki vilja né getu til að
ganga úr skugga um hver er.
Mál er að sú lifshætta liöi hjá.
Stefán Karlsson
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla í
iögsagnarumdæmi Reykjavíkur
• 23 mal R-1 til R-200
24. mal R-201 til R-400
25. mai R-401 til R-600
26. mal R-601 til R-780
Mánudagur
Þriöjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda
daga við bifreiðaeftirlitið að Borgartúni 7,
kl. 08.00 til 16.00.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygg-
ing sé i gildi. Tryggingargjald ökumanns
og skoðunargjald ber að greiða við skoð’
un.
Skoðun hjóla, sem eru i notkun i borginni,
en skrásett eru i öðrum umdæmum fer
fram fyrrnefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sinu til
skoðunar umrædda daga, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og hjólið tekið úr umferð hvar sem til
þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik, 17. mai 1977
Sigurjón Sigurðsson.
Leiguíbúðir
á Hjónagörðum
Félagsstofnun stúdenta auglýsir lausar til
leigu fyrir stúdenta við nám i Háskóla
íslands og annað námsfólk 2ja herbergja
ibúðir i Hjónagörðum við Suðurgötu. íbúð-
irnar leigjast til 8,9 eða 12 mánaða i senn,
frá og með 1, sept. eða 1. okt. nk., með
þeim fyrirvara, að ekki verði tafir á fram-
kvæmdum við Hjónagarða vegna verk-
falla eða annarra óviðráðanlegra orsaka.
Leiga á mánuði er nú kr. 19.000,- en verður
tekin til endurskoðunar á hverju hausti.
Kostnaður vegna hita, rafmagns og ræst-
ingar er ekki innifalinn. Leiga og áætlaður
kostnaður vegna hita, rafmagns og ræst-
ingar greiðist fyrirfram einn mánuð i
senn.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Félagsstofnunar stúdenta, sem jafn-
framt veitir frekari upplýsingar. Um
sóknarfrestur er til 15. júni nk.
Félagsstofnun stúdenta,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, R.,
Pósthólf 21, simi 16482.
Félagsstarf dúxvbocu 01
wi )
Handavinnusýning
yfirlits- og sölusýning á þeim munum,
sem unnir hafa verið i félagsstarfi eldri
borgara sl. vetur, verður haldin að
Norðurbrún 1 dagana 21., 22. og 23. mai
nk.
Sýningin verður opin frá kl. 1-6 e.h.
RMl
2 22 2 Félagsmálastofnun
'V Reykjavikurborgar.