Tíminn - 21.05.1977, Blaðsíða 36
brnado
i aoicivji isoa m wiuuyuiu
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né f yrirhöf n til að veita yður sem
bezta þjónustu
Sölumaóur: Finnur Karlsson Valgarður Sigurösson
heimasími 4-34-70 lÖgf r«ðingur —mmmm
t
áburðardreifari
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig f yrir sáningu
Guöbjörn Guöjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
UREVnil
Sfmi 8 55 22
t gær var unnib við losun úr Skeiðfaxa og sést Iöndunarslangan greinilega á myndinni. Efst I horninu tii
hægri er Kristján Kristjánsson skipstjúri. — Tfmamynd: G.E.
FYRSTA FERÐ SKEIÐ-
FAXA MEÐ SEMENT
gébé Reykjavik — i gær var nýja
sementskipið Skeiðfaxi að losa
sement i Artúnshöfða I fyrstu
reglulcgu ferð sinni. Skipið, sem
lestar um 460-480 lestir og er
smiðað hjá Þorgeiri og Ellert á
Akranesi, hefur reynzt mjög vel
að sögn skipstjórans, Kristjáns
Kristjánssonar, en auk hans eru
aðeins þrir menn i áhöfn skipsins.
I gærdag skoðaði stjórn
flutningarjöfnunarsjóðs skipið,
þar sem það lá við bryggju I
Artúnshöfða.
— Skeiðfaxi, sem gengur 10,2
milur á klst., er um tiu klukku-
stundir i hverri ferð, og er þá
einnig reiknað meö losunar- og
lestunartima, sagði Kristján
skipstjóri. Ein löndunarslanga er
notuð til að dæla úr skipinu, en
væntanlega veröur ný löndunar-
slanga sett upp, og styttir það
afgreiðslutimann um helming.
Ekki er þó búizt við, að nýja
slangan verði komin i gagnið fyrr
en næsta sumar.
Yfirvinnubanniö raskar illa
ferðum Skeiðfaxa eins og svo
margra annarra skipa þessa dag-
ana, og eru ferðir skipsins þvi
ekki eins margar og annars hefði
verið.
Bændur um lækkun vöruverðs:
—
Tveir í
gæzlu
Vissulega spor
í réttu áttina
vegna
hassmáls
Gsal-Reykjavik — Tvcir menn
sitja nú i gæzluvarðhaldi
vegna fikniefnamálsins, sem i
rannsókn er hjá Fiknicfna-
dómstólnum. Að sögn Arnars
Guðinundssonar fulltrúa við
dómstólinn miðar rannsókn
málsins vel og cr fariö að siga
á seinni hluta hennar. Arnar
upplýsti að hér væri cingöngu
um hassmál að ræða, en
kvaðst ekki geta tilgrcint
magnið.
Eftirfarandi yfirlýsing barst
Timanum frá stjórn Stéttarsam-
bands bænda og framleiðsluráði
landbúnaðarins varðandi lækkun
vöruverðs:
t yfirstandandi vinnudeilu hef-
ur það margsinnis komið fram,
að það gæti oröiö lóð á vogarskál-
ina til lausnar deilunni, ef felldur
yrði niöur söluskattur á búvöru,
eöa gripiö til einhverra þeirra
ráöstafana, er gætu leitt til lækk-
unar vöruverðs, svo sem aukinna
niðurgreiðslna á búvörur eða
lækkunar á rekstrarútgjöldum
landbúnaðarins.
Af þessu tilefni vill Stéttarsam-
band bænda og framleiösluráö
landbúnaðarins vekja athygli á
þeim íjölmörgu samþykktum og
áskorunum frá hinum mörgu
bændafundum, sem haldnir hafa
verið i vetur, er gengiö hafa i
þessa átt. Einnig hafa ofangreind
samtök sent áskoranir þessa efnis
til stjórnvalda.
Ráðstafanir, sem gerðar eru af
stjórnvöldum til að draga úr dýr-
tiðinni með lækkun vöruverðs,
hljóta vissulega að vera spor i
rétta átt. Enda koma þær sér-
staklega að gagni fyrir hina
lægstlaunuöu borgara þjóðfélags-
ins og bændur sjálfa.
Til slikra ráðstafna hefur hið
opinbera oftast áður gripiö I þeim
tilgangi að koma i veg fyrir, að
vandræðaástand myndist i þjóð-
félaginu, eins og nú viröist vera
framundan.
5Ö0 upphringingar:
Stjórn flutningajöfnunarsjóðs skóðaði nýja skipið I gærdag: Talið frá
vinstri: Svavar Pálsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar,
en hann á einnig sæti i stjórninni, Yngvi ólafsson, fyrrv. formaöur
stjórnarinnar, Gunnar G. Þorsteinsson, og núverándi formaður, Gylfi
Knudsen. — Timamynd: G.E.
Aburðarlaust
á Vestfjörðum
— en nóg er af gosdrykkj um
KJ-Reykjavik — Viöa á Vest-
fjörðum eru menn orðnir heldur
langeygöir eftir titbúna áburðin-
um. i gær var haft samband við
Timann frá Bolungarvik til þess
að gcta þess, að þangað hefðu fyr-
ir nokkru komiö með skipi einar
70 smálestir af gosdrykkjum, en
ekki tonn af áburði. Finnst mönn-
um þetta ekki einleikið og vilja fá
einhverjar skýringar á þessu.
Timinn hafði i gær samband við
Grétar Ingvason, skrifstofu-
stjóra hjá Aburðarverksmiöj-
unni, til að leita skýringa og afla
frétta. Sagðist Grétar vel skilja,
að bændur vestra væru orðnir
daufir i dálkinn og sagði, að eins
væri ástatt hjá þeim. Þaö væri
eins og allt gengi á afturfótunum,
enginskipaðhafa og sifelld vand-
ræði, fyrir nú utan yfirvinnu-
bannið, sem þýddi, að nú.eru aö-
einssekkjuð 160 tonn daglega i
stað 400 áður.
Grétar Ingvason sagði, aö þó
væri vonandi, aö rættist úr þessu
og Vestíirðingar fengju allan sinn
áburö um og eftir mánaðamót.
Þaðeru ein 800 tonn, sem enn eiga
eftir að fara á Vestfirði, og er
ætlunin, að flóabáturinn Baldur
flytji þau i fjórum ferðum strax
um og eftir mánaðamót. Orsakir
þess, að Baldur getur ekki farið
fyrr, eru umsamdir vöruflutning-
ar á Vestfjarðahafnir, sem ekki
er hægt að vikja sér undan.
Sagði Grétar, aö Aburðarverk-
smiðjan verði að fara bónarveg
að skipafélögum og væru þeir
orðnir marghvekktir á niöur-
stööunum. Eins og stendur er
Austri i áburðarflutningum til
Norðausturlandshafna. Var skip-
aðáburði um borð i hann þann 25.
sl. mánaðar, en allt gengiö á
afturfótunum siöan, og svo sé viö-
ar. Grétar sagöi aö lokum, að
hann tryöi þvi ekki, að verkalýðs-
félögin myndu ekki gefa undan-
þágu til áburðarflutninga á Vest-
fjarðahafnir, ef til verkfalla
kæmi, slikt væri allt of alvarlegt,
ekki sizt fyrir bændurna.
Verzlunarfólk talið
ætla í skyndiverkfall
— reyndist ekki annað en söguburður, þegar til kom
gébé Reykjavik — Siminn hefur
verið rauöglóandi hjá okkur, og
ég er viss um aö viö höfum ekki
fengiö færri en fimm hundruö
upphringingar i morgun og þrjár
manneskjur geröu ekki annaö en
að svara i simann, sagði Magnús
L. Sveinsson, skrifstofustjóri hjá
Verzlunarmannafélagi Reykja-
vfkur i gær, þegar hann var
spuröur um hvort stærstú verzl-
anirnar i Reykjavik heföu lokað
og afgreiðslufólk farið i skyndi-
verkfall.
Hvort einhver hefur komiö
þeirri sögu á stað að verzlanir
yröu lokaðar eftir hádegi i gær,
eða einhverjir hafa verið aö
reyna að fá starfsfólk verzlana til
að leggja niður vinnu, er ekki
ljóst. — Þetta kom okkur einna
mest. á óvarthér hjá VR, við höfð-
um ekkí hugmynd um þetta fyrr
en viö mættum til vinnu i morgun
og siminn byrjaði að hringja,
sagöi Magnús. Hann kvaöst hafa
kannaö þaö og siðan fengið stað-
fest, að allar stærstu verzlanirnar
i Reykjavik voru opnar i gær, og
aðafgreiðslufólk hefði ekki farið i
skyndiverkfall, eins og svo marg-
ir virtust halda.
Sögusögnin um að loka ætti öll-
um vérzlunum eftir hádegi I gær
barst eins og eidur i sinu um alla
höfuöborgina i gærmorgun.
Geysileg örtröð myndaðist i
verzlunum, þar sem fólk þusti út i
búð til að verzla fyrir helgina.
PALLI OG PÉSI
— Lastu frásögn-
ina i VIsi um
skyndiverkfall
verzlunarfólks?
— Já, en það var
ckki neitt verkfall.
— Nei, Visir er
bara alltaf fyrstur
með fréttirnar.
'7d>