Fréttablaðið - 18.02.2006, Page 31
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2006
Sumt er skrítið. Íslenskar bíó-
myndir eru til dæmis stundum
svolítið skrítnar. Retró fata-
tíska er frekar skrítin líka. Og
Frakki sem kann ekki að elda,
það er alveg rosalega skrítið.
Ekki eins skrýtið samt og íslensk
umferðarlög þegar kemur að
afturendum.
Sumir segjast borga meira í
skatt en þeir þéna. Ég er hins-
vegar sannfærður um að þegar
kemur að umferðaróhöppum er
meðaltal þeirra sem eru í órétti
nálægt 1,7 á hvert óhapp. Það
er svo margt sem má ekki og
setur mann í órétt. Meðal þess
versta er að bakka. Það fyrir-
gefst engum að rekast á annan
bíl, svo framarlega sem maður
hafi verið að bakka. Þá er ekki
spurt að því hvort hinn bíllinn
hafi verið á fjórföldum hámarks-
hraða og ljóslaus. Það er glæpur
að bakka.
Enn verra er að keyra aftan
á einhvern. Við fyrstu sýn kann
það að virðast skiljanlegt en lög-
gjafarvaldið hefur fallið í sömu
gryfju og flestir sem mennskir
eru – að alhæfa.
Tökum nýlegt dæmi: Bílstjóri
sem nálgast krossgötur á þjóð-
vegi sér að bíllinn fyrir framan
hann hægir á sér. Þó að engin
stefnuljós séu gefin hægir hann
mikið á sér og heldur sig vinstra
megin á akreininni. Aftari bíl-
stjóranum sýnist sá fremri ætla
að beygja til vinstri og fer því
framúr hægra megin. Sá fremri
ákveður að beygja til hægri.
Hér hefði verið um klassískt
og einfalt óhapp að ræða. Sá aft-
ari í órétti þrátt fyrir slóðaskap
þess fremri. En sögunni er ekki
lokið. Þegar aftari bílstjórinn
sér í hvað stefnir nær hann að
sveigja bíl sínum aftur yfir á
vinstri vegarhelminginn til að
forða árekstri. Því miður hefur
fremri bílstjórinn skyndilega
orðið hins var og sveigir líka til
vinstri og fær þann aftari nett
aftan á sig.
Þó að aftari bílstjórinn hafi
gert allt sem hann gat til að
forða árekstri, en sá fremri gert
honum einstaklega erfitt fyrir,
er það sá aftari sem situr uppi
með tjónið. Þegar ég frétti af
þessu varð mér hugsað til gömlu
góðu ítölsku reglunnar sem tekur
á nákvæmlega svona aðstæðum
– og reyndar öllu öðru nuddi sem
verður í umferðinni: Sá sem er
frekari og endist lengur við að
rífast, hann er í rétti. Hinn borg-
ar tjónið út og þeir fara heim og
borða pasta með sveppasósu.
Umferðarlög og pasta með sveppasósu
Volkswagen Touareg-fjölskyld-
an stækkar. Nýjasta útgáfan
er 12 strokka sportútgáfa af
bílnum.
Nýjasta viðbótin við Touareg-
jeppafjölskylduna frá Volkswag-
en er glæsileg í alla staði. Aksturs-
eiginleikar nýju sportútgáfunnar
eru snaggaralegir og sportlegir
ásamt því að bíllinn er hlaðinn
aukabúnaði. Vélin í bílnum er tólf
strokka sex lítra vél sem skilar
450 hestöflum og togar 600Nm.
Þessi öfluga vél skilar bílnum á
5,9 sekúndum upp í 100 kílómetra
hraða á klukkustund. Í bílnum er
rafeindabúnaður sem hámarkar
hraðann í 250 km á klukkustund.
Aflinu er miðlað með sex hraða
hálfsjálfvirkum Tiptonic-gír-
kassa. Í þessari Touareg-sport-
útgáfu hefur bíllinn verið gerður
enn sportlegri en áður. Bíllinn
kemur á 20 tommu álfelgum og
er með vindskeiðar á þakinu. Þak-
grindin er silfurlituð, aftur- og
hliðarrúður skyggðar og stuðarar
samlitir en allt þetta veitir bílnum
sportlegt yfirbragð.
Sportlegt yfirbragð einkenn-
ir einnig innréttingu bílsins auk
mikilla þæginda. Framsætin eru
klædd nappa-leðri og sérstak-
ur frágangur í áli dregur fram
virðugleika. Bíllinn er búinn fjöl-
notalitaskjá ásamt leiðsögukerfi
af nýjustu gerð sem spilar DVD-
diska. Í staðalbúnaði bílsins er
hljóðkerfi með fjöldiskaspilara og
tengingum fyrir farsíma. Bílnum
fylgja einnig bi-xenon ökuljós,
sem sveigjast með þegar beygt er,
og Tiptronic-stillir sem gerir gír-
kassann beinskiptann.
450 hestafla með
DVD-spilara
Nýi Touareg-jeppinn frá Wolkswagen.
Fyrsta umferð Íslandsmeistara-
mótsins í snjókrossi fór fram
í Ólafsfirði um síðustu helgi.
Aðstæður voru nokkuð erfiðar,
enda hiti vel yfir frostmarki, og
urðu nokkur afföll af sleðum og
ökumönnum.
Í unglingaflokki var það Aðal-
björn Tryggvason sem fór með
sigur af hólmi en þrátt fyrir ungan
aldur er þar á ferðinni flinkur
ökumaður með töluverða reynslu.
Það stefnir í harða keppni í
sportflokki í vetur en að þessu
sinni var það Ásgeir Frímanns-
son, sem varð Íslandsmeistari í
unglingaflokki í fyrra, sem var
fyrstur í öllum hítum.
Í meistaraflokki var það svo
núverandi Íslandsmeistari, Helgi
Reynir Árnason, sem keyrði
manna best. Þess má til gamans
geta að sigurvegarar allra flokka
að þessu sinni keyra á Arctic Cat
sleðum.
Næsta umferð Íslandsmeist-
aramótsins fer fram 18. febrúar í
Ólafsfirði.
Hörð keppni
Íslandsmeistarkeppnin í snjó-
krossi er hafin.
Íslandsmeistarinn Helgi Reynir fór með
sigur af hólmi í meistaraflokki í fyrstu
umferð Íslandsmeistaramótsins í snjókrossi
um síðustu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HALLDÓR ARINBJARNARSON
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Til sölu þessi glæsilegi og vel með farni
Range Rover árgerð 2002, svartur að lit og
með ljósri leðurinnréttingu.
Ekinn 48.000 km. og lítur út sem nýr. Einn eigandi frá upphafi. Bíllinn er fluttur inn af B&L og
hefur verið þjónustaður þar. VERÐTILBOÐ. Upplýsingar veittar í síma 861-6009 og 554-2809.
RÆSIR HF. sími 540 5400 Opið laugardaga 12-16.
RX-8 Revolution
ekinn 9200 km fyrst skráður 04/04
Búnaður m.a. 6 gíra beinskipting, 18“ sumar og vetrardekk, xenon
ljós, leður á sætum, sóllúga, BOSE hljómkerfi og 6 diska spilari,
loftkæling, hiti í sætum og margt fleira.