Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 41
3 fyrir 2 Þú færð ódýrustu vöruna frítt! Faxafeni 12, 108 Reykjavík. Opið 10-18 virka daga og 10-16 laugardaga. Keilir, jakki 14.990 kr. 5.900 kr. Kjölur, dömuflísjakki 7.990 kr. 2.900 kr. Eyrnaband 950 kr. 500 kr. Húfur 1.450 kr. 500 kr. Hanskar 1.990 kr. 800 kr. Súlur, flísjakki 7.990 kr. 3.500 kr. Pólóbolur 3.990 kr. 1.700 kr. Súlur, flísjakki 9.990 kr. 4.900 kr. Óðinn, barnaflísjakki 4.450 kr. 2.100 kr. FÖSTUDAGUR 24. febrúar 2006 29 Kosningar til sveitarstjórna á Íslandi fara senn í hönd. Tilheyr- andi loforðabylgja væntanlegra frambjóðenda er strax farin í loftið. Flestir lofa gulli og græn- um skógum; fleiri íþróttahúsum, betri skólamáltíðum, leikskóla- plássum, auknum útgjöldum, hærri sköttum. Viljinn til fram- kvæmda er til staðar og flestir hafa sín gæluverkefni sem þeir vilja vinna að. Í stuttu máli er kjósendum yfirleitt lofað að þeir muni hafa minna á milli hand- anna svo stjórnmálamenn og eftirlætisþrýstihópar þeirra geti haft meira á milli handanna. Þessu má breyta. Eyðslugleði stjórnmálamanna í sveitarstjórn- um má stöðva. Þetta er hins vegar vandasamt verk í þeirri miklu flóru framkvæmdaloforða sem finnst meðal frambjóðenda. Galdurinn felst í því að finna þá sveitarstjórnarmenn sem hafa hvað minnst á stefnuskránni og þá sem vilja miklu frekar borga niður skuldir og minnka eigin völd en reisa sjálfum sér minnis- varða og gleðja þrýstihópa. Gald- urinn felst í að finna þann stjórn- málamann sem vill fækka verkefnum sínum sem mest hann má og flytja ábyrgð og fjármuni frá sveitarfélaginu og aftur til einstaklinga og fyrirtækja. Finn- ast slíkir stjórnmálamenn í íslenskri kosningabaráttu? Gallinn við það að lofa minnk- un eigin valda, lækkun skatta og almennu aðhaldi í opinberum rekstri er sá að enginn einn þrýstihópur kemur til með að skara mikinn eld að eigin köku með slíkum aðgerðum. Skatt- greiðendur eru stór og yfirleitt þögull hópur sem kemur allur til með að hagnast örlítið á skatta- lækkunum, á meðan hestamenn eru tiltölulega lítill hópur sem kemur til með að gleðjast umtals- vert ef hann fær reiðhöll reista yfir áhugamálið sitt á kostnað allra annarra. Því er ekki að furða að hófsamir stjórnmálamenn séu fáir, þögulir og jafnvel ekki eins vinsælir en þeir sem lofa hvað mestu. R-listinn sálugi kristallaði þennan raunveruleika þegar hann gat lofað helmingun á skatti sem hann kom sjálfur á og enginn gerði neina athugasemd (hol- ræsagjaldið), auk þess að standa fyrir auknum útgjöldum í öllum málaflokkum án teljandi stytting- ar á loforðalistanum. Íslensk sveitarfélög vantar sveitarstjórnarmenn sem hætta að kenna ríkisvaldinu endalaust um eigin óráðsíu og lélega fjár- málastjórn. Sveitarfélög hafa aldrei haft meira fé á milli hand- anna og þurfa að skila því í aukn- um mæli aftur til borgaranna. Sveitarfélög eru eins og hver önnur eining ríkisvaldsins sem gerir best með því að hafa sem minnst á sinni könnu. Sveitar- stjórnarmenn eru stjórnmála- menn og í engu betri stöðu til að sinna rekstri en starfsfélagar þeirra á Alþingi. Þetta þurfa kjósendur að segja með atkvæða- seðlum sínum í vor. Ef þeir gera það munu íslensk sveitarfélög að öllum líkindum sjá fram á bjart- ari tíma, lækkandi opinberar skuldir og aukinn kraft einstakl- ingsframtaksins. ■ Veljum þá sem vilja stjórna sem minnst AF NETINU UMRÆÐAN SVEITARSTJÓRNAR- KOSNINGAR GEIR ÁGÚSTSSON VERKFRÆÐINGUR Nytsamleg ábending Þegar maður vill gera lítið úr andstæðing- um sínum er alltaf gott að reyna að lýsa þeim sem eru ósammála sem nokkrum hjáróma röddum eða nöldurseggjum. Ef gagnrýnin er víðtæk og áköf er alltaf hægt að kalla hana „móðursýkislega“ og fylgja þannig gamalli hefð í íslenskri umræðu- hefð: að kalla andstæðinginn kellingu (sjá Brennu-Njáls sögu). Það hefur aldrei þótt fínt að vera kelling á Íslandi. Munið: Lítil gagnrýni jafngildir nokkrum nöld- urseggjum, mikil er móðursýki. Ármann Jakobsson á Múrnum. Skýlaus réttur David Irving mátti vita að hann var eftir- lýstur þar. Hann ákvað að fara. En það er samt rangt að loka hann inni. Það er langsótt að gera afneitun á helförinni að glæp. Væri til dæmis með sama hætti hægt að gera afneitun á Gúlaginu glæp- samlega? Irving nýtur einskis álits. Eftir meiðyrða- mál sem hann tapaði árið 2000 var hann ærulítill og gjaldþrota. Hann hefur lélegar skoðanir, en réttur hans til að hafa þær - og jafnvel skrifa og tala um þær - á að vera skýlaus. Egill Helgason á Vísi. Ekki skraut Háskóladeildir og rannsóknastofnanir í hug- og félagsvísindum mega ekki sitja mjálmandi einhversstaðar úti í horni þar sem enginn tekur eftir þeim. Þær verða að skapa sér ásýnd, prófíl og rödd sem eftir verður tekið og mark tekið á. Sam- félagið, sagan, hugsunin og menning- in sem við fáumst við eru ekki skraut, heldur þekking, og mikilvæg forsenda þess þekkingarsamfélags sem nú er mest talað um. Það mun nefnilega ekki blómstra án samræðu við sköpunarkraft aldanna. Viðar Hreinsson á Kistunni. 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 �������������� ������� ���������� ���� ������������ ���������� ��� �
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.