Fréttablaðið - 24.02.2006, Page 49
������ ����
������ ������
������
����������������
������������������ ��������������
�������������������������������
������������������������������������� �������������
�������������������������������������
������������������������������ ��������
����������������������
�����������������
������������������
�����������������������
�������������������������
Herranótt, leikfélag Menntaskól-
ans í Reykjavík, frumsýnir í kvöld
Birting Voltaires. Handritið gerði
Hafnarfjarðarleikhúsið eftir þýð-
ingu Halldórs Laxness þegar það
setti verkið upp fyrir áratug.
Birtingur, eða Candide eins og
hann heitir á frummálinu, leit
fyrst dagsins ljós árið 1759, en
bókina skrifaði Voltaire sem skop-
ádeilu á bjartsýnisheimspeki Gott-
fried Leibniz. Verkið fjallar um
titilpersónuna, sem flakkar um
heiminn með heimspeki meistara
síns Altungu í veganesti, en sá hélt
því fram að allt hlyti að fara á
besta veg að lokum. Í reisu sinni
lendir Birtingur hins vegar í
ýmsum hremmingum og meðal
annars hörmungum stríðs og nátt-
úruhamfara.
Sandra Gísladóttir aðstoðar-
leikstjóri verksins segir að þótt
verkið hafi verið skrifað á 18. öld
eigi það enn þá erindi. „Það minnir
á margt sem við teljum svo fallegt
í rauninni hræðilegt þegar betur
er að gáð.“
Alls koma um 70 manns að sýn-
ingunni, þar af 21 leikari en í aðal-
hlutverkum eru Baltasar Breki
Baltasarsson og Kristín Guð-
mundsdóttir. Leikstjóri er Friðrik
Friðriksson. Verkið verður sýnt í
Tjarnarbíó sjö sinnum, en síðasta
sýning verður 10. mars. - bs
BIRTINGUR
Baltasar Breki í titilhlutverkinu.
Herranótt frumsýnir Birting
FÖSTUDAGUR 24. febrúar 2006 37
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
21 22 23 24 25 26 27
Föstudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Hljómsveitin Sign heldur
tvenna tónaleika á Gauk á Stöng í
kvöld, klukkan 17 fyrir alla aldurs-
hópa en fyrir átján ára og eldri frá
miðnætti.
18.00 Kammersveit Bærum
tónlistarskólans í Noregi heldur
tónleika í Langholtskirkju. Aðgangur
er ókeypis.
20.00 Stefán Snævarr heldur
erindið “Um miðjuna hörðu og
hentistefnuna góðu. Hugmyndafræði
fyrir Samfylkinguna” á opnum
fundi sem ungir jafnaðarmenn í
Hafnarfirði efna til í salnum Hofinu í
Fjörukránni, Strandgötu 55.
■ ■ OPNANIR
17.00 JBK Ransu opnar mál-
verkasýninguna “PopOp” í Gallerí
Turpentine, Ingólfstræti 5.
19.00 Sýning á verkum Judithar
Júlíusardóttur handverkskonu verð-
ur opnuð í Boganum í Gerðubergi.
20.00 Yfirlitssýningar á verkum
Gunnlaugs Blöndal og Snorra
Arinbjarnar verða opnaðar í
Listasafni Íslands.
20.00 Magdalena Margrét
Kjartansdóttir opnar sýninguna
Konur í 20 ár í Grafíksafni Íslands,
sýningarsal í Hafnarhúsi, Tryggvagötu
17 við hafnarbakkann.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hljómsveitin Dans á rósum
frá Vestmannaeyjum verður með
dúndur dansleik á Kringlukránni.
23.00 Timo Maas, eitt stærsta
nafn danstónlistarinnar, treður
upp á skemmtistaðnum NASA við
Austurvöll. Plötusnúðarnir Grétar G.
og Casanova sjá um upphitun fyrir
kappann en Rikki og Ingvi sjá um
tónlistina á efri hæðinni.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Jerney Pikalo, kennari í
stjórnmálafræðum við Háskólann
í Ljubliana í Slóveníu, flytur opinn
hádegisfyrirlestur um þróun Slóveníu
frá kommúnisma til frjálslynds lýð-
ræðis. Fyrirlesturinn fer fram í fyrir-
lestrasal Öskju, náttúruvísindahúsi
Háskóla Íslands.
■ ■ VETRARHÁTÍÐ
09.00 Waldemar Zacharasiewicz er
lykilfyrirlesari á alþjóðlegri ráð-
stefnu Reykjavíkurakademíunnar
um Ímynd norðursins, sem haldin
er í Iðnó.
10.00 Breiðholtshátíð hefst í
dag í tengslum við Vetrarhátíð með
fjölskrúðugum viðburðum víða um
Breiðholtið.
16.00 Mannréttindatorg
verður í Ráðhúsi Reykjavíkur
þar sem Amnesty International,
Öryrkjabandalagið, Ný-ung og
Feninistafélagið standa fyrir óvenju-
legri kynningu á starfsemi sinni.
19.00 Stefán Jón Hafstein setur
Safnanótt í Þjóðminjasafninu. Þaðan
leggja safnanæturstrætarnir síðan af
stað klukkan 19.20.