Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 58
46 24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 21 22 23 24 25 26 27 Föstudagur ■ ■ SJÓNVARP  08.25 ÓL í Tórínó á RÚV. Stórsvig kvenna. Bein útsending.  18.10 ÓL í Tórínó á RÚV. Samantekt.  18.30 Gillette sportpakkinn á Sýn.  19.00 Meistaradeildin á Sýn.  19.30 Motorworld á Sýn.  18.30 Gillette sportpakkinn á Sýn.  22.15 ÓL í Tórínó á RÚV. Listhlaup kvenna á skautum.  01.50 ÓL í Tórínó á Rúv. Samantekt Auðun Helgason, fyrirliði FH, leikur ekk- ert með liðinu í sumar vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu nýverið en eftir að hann fór í speglun kom í ljós að krossband á hægra hné hans er slitið. „Ég er fyrst og fremst svekktur að lenda í þessu, það er spennandi ár framundan og ég var búinn að hlakka mikið til að taka þátt í þessu með FH-liðinu. Svo hverfur þetta allt á augnabliki,“ sagði Auðun við Fréttablaðið í gær. Auðun rann til á æfingu og sagðist samstundis hafa gert sér grein fyrir því að meiðslin væru alvarleg en þessi sterki miðvörður fer í aðgerð í lok mars. „Eftir aðgerðina tekur þrautagangan langa við. Ég hugsa bara um að reyna að ná mér sem fyrst og vera orðinn sterkur í haust þegar næsta undirbún- ingstímabil tekur við, það er alveg raun- hæft. Sveinbjörn Brynjólfsson læknir talar um tíu til tólf mánuði en menn hafa bæði komið fyrr og síðar úr þessu. Sveinbjörn hefur búið mig vel undir þetta allt,“ sagði Auðun, sem ætlar svo sannarlega ekki að leggja árar í bát. „Menn hafa spurt mig hvort ég ætli að leggja skóna á hilluna en það kemur heldur ekki til greina. Þetta verður erfitt en ég ætla að vera mikið í kringum félagana í FH, ég lyfti með þeim og slíkt. Svo verð ég bara að vera í lyftingasalnum á meðan þeir eru í fótbolta,“ sagði Auðun að lokum. Sverrir Garðarsson verður líklega ekki með liðinu í sumar en hann á við mjög erfið meiðsli að stríða. „Það er algjör bónus ef Sverrir verður með okkur. Eins og staðan er í dag reiknum við ekki með honum í sumar,“ sagði Ólafur Jóhannes- son, þjálfari FH, í gær en Sverrir má byrja að hlaupa aftur eftir hálf- an mánuð. „Við munum spila Deildabikarinn og sjá svo til hvort við þurfum að kaupa nýjan mann. Eins og staðan er núna erum við ekki í leit að neinum leikmönnum,“ sagði Ólafur. AUÐUN HELGASON, LEIKMAÐUR FH: SPILAR EKKERT MEÐ LIÐINU Í SUMAR Auðun út og bónus ef Sverrir spilar > Heiðar bestur hjá Fulham Heiðar Helguson hefur verið kjörinn besti leikmaður Fulham í janúarmán- uði. Það voru stuðn- ingsmenn liðsins sem kusu Heiðar á heimasíðu félags- ins en honum næstur kom félagi hans í framlínunni, Brian McBride. Saman fengu þeir rúmlega helming atkvæða í könnuninni. Heiðar skor- aði reyndar aðeins eitt mark í janúar en með dugnaði sínum og áræðni hefur hann unnið hugi og hjörtu stuðningsmanna Fulham. Báðir leikirnir í Höllinni Valur hefur komist að samkomulagi við svissneska liðið LC Brühl um að báðir leikir liðanna í átta liða úrslitum áskorendakeppninnar fari fram í Laugar- dalshöll. Valsstúlkur lögðu síðast grískt lið að velli og verður spennandi að sjá hvernig fer að þessu sinni. KÖRFUBOLTI Körfuboltaliðið Phila- delphia 76ers og lögreglan í borg- inni hafa tekið höndum saman um að fækka byssum á götum borgar- innar og í leiðinni fækka morðum. Þess vegna hefur verið sett af stað vikuherferð þar sem hverjum sem er stendur til boða að skila byssu á lögreglustöðvar borgarinnar og fá í staðinn tvo miða á leik með 76ers. Þeir sem skila byssum verða ekki spurðir neinna spurninga. Þeir fá bara sína miða og láta sig svo hverfa. „Ef við fáum eina byssu teljum við verkefnið vel heppnað,“ sagði Billy King, forseti 76ers, en 380 morð voru framin í borginni í fyrra, sem er það mesta í fimm ár. 44 morð hafa verið framin í borg- inni á þessu ári, sem er svipað og í fyrra, og fólki er nóg boðið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem 76ers stendur fyrir slíku verkefni en liðið bauð fatnað fyrir byssur árið 1999 og safnaði þá 900 byssum á aðeins þrem dögum. - hbg Yfirvöld í Philadelphiu reyna að stemma stigu við hækkandi morðtíðni: Körfuboltamiðar í stað byssu ALLEN IVERSON Aðalstjarna 76ers og hefur verið handtekinn fyrir vopnaburð. Hann getur skipt út byssunum og fengið miða á völlinn í staðinn ef hann vill. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Iceland-Express deild kk: KEFLAVÍK - GRINDAVÍK 109-84 Stig Keflavíkur: A.J. Moey 27, Vlad Boer 14, Arnar Freyr Jónsson 13, Halldór Halldórsson 12, Magn- ús gunnarsson 11, Jón Nordal Hafsteinsson 9, Guðjón Skúlason 6, Gunnar Einarsson 5, Gunn- ar Stefánsson 5, Elentínus Margeirsson 4, Sverrir Sverrisson 2. Stig Grindavíkur: Þorleifur Ólafsson 27, Jeremiah Johnson 19, Páll Kristinsson 13, Davíð Hermans- son 10, Nebsab Biberovic 9, Björn Brynjólfsson 5, Pétur Guðmundsson 1. ÍR - SKALLAGRÍMUR 85-95 Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 17, Ómar Sævarsson 16 stig. Stig Skallagríms: George Bird 20, Jovan Zdraveksi 14 stig. SNÆFELL - NJARÐVÍK 54-51 Stig Snæfells: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 23, Nate Brown 11, Jón Ólafur Jónsson, 7 Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 16, Friðri Stefánsson 12, Brenton Birmingham 8 HÖTTUR - FJÖLNIR 89-86 Stig Hattar: Eguene Christopher 29, Milojica Zek- ovic 22 stig. Stig Fjölnis: Nemanja Sovic með 29, Grady Reyn- olds 24 HAMAR/SELFOSS - KR 94-83 Stig Hamar/Selfoss: Clifton Cook 40 Stig KR: Brynjar Björnsson 29 ÞÓR - HAUKAR 92-103 Stig Þórs: Mark Woodhouse 23, Helgi Margeirs- son 18, Magnús Helgason 16, Mario Miles 10. Stig Hauka: Sævar Haraldsson 23, Jason Prior 22. Iceland-Express deild kvk: HAUKAR - ÍS 72-56 Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 24, Megan Mahoney 20, Kristrún Sigurjónsdóttir 12. Stig ÍS: Signý Hermannsdóttir 14, Hanna B. Kjart- ansdóttir 10, Þórunn Bjarnadóttir 10. Evrópukeppni félagsliða: MARSEILLE - BOLTON 2-1 0-1 Stelios Giannakopoulos (25.) 1-1 Franck Ribery, 2-1 Tal Ben Haim (Sjálfsmark 68.). Marseille komst áfram samanlagt 2-1. MIDDLESBROUGH - STUTTGART 0-1 0-1 Christian Tiffert (13.) Boro komst áfram á útimarkareglunni 2-2. HAMBURG - FC THUN 2-0 Hamburg komst áfram samanlagt 2-1. PALERMO - SLAVIA PRAG 1-0 Palermo komst áfram á útimarkareglunni 2-2. RAPID BÚKAREST - HERTHA BERLIN 2-0 Rapid Búkarest komst áfram samanlagt 3- 0. SHAKTAR DONETSK - LILLE 0-0 Lille komst áfram samanlagt 3-2. STEAUA BÚKERAST - HEERENVEEN 0-1 Steaua komst áfram samanlagt 3-2. ZENITH - ROSENBORG 2-1 Zenith komst áfram samanlagt 4-1. ROMA - CLUB BRUGGE 2-1 Roma komst áfram samanlagt 4-2. LENS - UDINESE 1-0 Udinese komst áfram samanlagt 3-1. MONACO - BASEL 1-1 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Terje Hauge, dómarinn sem rak Asier Del Horno út af í leik Chelsea og Barcelona í Meist- aradeildinni á miðvikudaginn, stendur fullkomlega við ákvörð- unina. Jose Mourinho, stjóri Chel- sea, var mjög ósáttur við dóminn. „Það er mikilvægt að sjá atvik- ið í rauntíma. Þegar þú horfir á þetta í hægri endursýningu þá er ekki víst að þú sjáir hvernig hann (Asier Del Horno) fer inn í tæk- linguna. Ég sé ekkert eftir dómn- um,“ sagði Hauge við norska fjöl- miðla í gær. - hþh Terje Hauge dómari: Þetta var rautt FÓTBOLTI KR beið lægri hlut fyrir norska liðinu Odd Grenland í gær en þetta var síðasti leikur liðsins á æfingamótinu á La Manga. Þarna mættust liðin sem lentu í neðstu sætum í sínum riðlum og með tap- inu lenti KR því í neðsta sæti á mótinu. Það var Olof Hvidén-Watson sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálf- leiksins en KR spilaði með mjög ungt lið í leiknum. KR tapaði fyrir rússneska lið- inu Krylia og norska liðinu Tromsö í riðlakeppninni en gerði jafntefli við Brann. - hþh Æfingamótið á La Manga: KR hafnaði í neðsta sæti MEGAN MAHONEY Var sterk í kvöld og skoraði 20 stig fyrir Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA KÖRFUBOLTI Haukastúlkum tókst að leggja nýkringda bikarmeistara ÍS á heimavelli sínum að Ásvöllum í gær, 72-56. ÍS byrjaði betur en Haukastúlkur svöruðu með góðum kafla og komust í 20-9 og höfðu frumkvæðið lengst af. Þær voru svo sex stigum yfir í hálfleik og voru ávallt skrefinu á undan. Stúdínur komu ákveðnar til leiks í síðari hálfleik og tókst að jafna en þá hrundi leikur þeirra eins og spilaborg, Haukar skoruðu tólf síðustu stigin í þriðja leikhluta og gerðu nánast út um leikinn. Þær héldu síðan forystunni til loka og unnu að lokum sannfærandi sextán stiga sigur. - hþh Iceland-Express deild kvenna: Haukastúlkur lögðu Stúdínur KÖRFUBOLTI Leikurinn í Keflavík í gær náði aldrei þeim hæðum sem vonir stóðu til en þarna mættust liðin sem kepptu til úrslita í bikar- keppninni um síðustu helgi. Grindavík mætti til leiks án fjög- urra lykilmanna – Páls Axels Vil- bergssonar, Helga Jónasar Guð- finnssonar, Hjartar Harðarsonar og Guðlaugar Eyjólfssonar, sem allir eiga við meiðsli að stríða, og svo stórt skarð ættu líklega öll lið landsins erfitt með að fylla. Þar er Grindavík engin undantekning og svo fór að heimamenn unnu örugg- an sigur, 109-84. „Þetta var þægilegur leikur fyrir okkur og mér fannst þetta alltaf vera í okkar hendi,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, eftir leikinn. „Þessi sigur var mikilvægur hluti í því að tryggja okkur annað sæti deildar- innar og nú erum við í góðri stöðu með það,“ bætti hann við. Í fjarveru þungavigtarmann- ana fjögurra var vitað að það kæmi í hlut Jeremiah Johnson að draga vagninn nánast einsamall fyrir Grindavík. Það gerði hann framan af leik og hélt sínu liði inni í leiknum, en í fyrri hálfleik skor- aði hann 16 stig, gaf 5 stoðsend- ingar og stal fjórum boltum. Hann lenti hins vegar í villuvandræðum fljótlega í þriðja leikhluta og gat fyrir vikið ekki beitt sér að fullu eftir það. „Ég hefði hugsanlega átt að taka hann út af en það voru fáir sem geta leyst hann af og ég kaus að hafa hann áfram inni á til að halda öryggi í okkar leik. Kannski voru það mistök,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grinda- víkur, eftir leikinn. Segja má að vendipunkturinn í leiknum hafi síðan komið á 2. mín- útu síðari hálfleiks þegar Jeremi- ah fékk sína fjórðu villu. Í kjölfar- ið hrundi sjálfstraustið í leik Jeremiah, og þar með Grindavík- urliðsins, og heimamenn gengu á lagið. Keflavík var ávallt með yfir- höndina í leiknum og var með níu stiga forystu, 55-46, þegar gengið var í búningsklefa í hálfleik. Í þriðja leikhluta náði liðið sér hins vegar fyrst almennilega á strik, komst í 66-50 og síðan 82-65 áður en fjórði og síðasti leikhluti hófst. Það forskot átti eftir að auk- ast áður en yfir lauk án þess að Keflvíkingar þyrftu að hafa sér- staklega mikið fyrir hlutunum; orkan né reynslan var einfaldlega ekki til staðar hjá leikmönnum Grindavíkur og öruggur sigur heimamanna, 109-84, því stað- reynd. „Það getur verið að það hafi verið ákveðin lægð í okkar liði eftir bikarsigurinn um helgina en fjarvera nokkurra lykilmanna okkar taldi. Samt sem áður er ég stoltur af mínum mönnum, sem sýndu fína baráttu og komust flestir ágætlega frá leiknum,“ sagði Friðrik Ingi. Hjá Grindavík var Jeremiah yfirburðamaður á meðan hann var ekki of upptekinn við að nöldra í dómurunum og þá átti Þorleifur Ólafsson frábæran síðari hálfleik þar sem hann skoraði 17 stig. Hjá Keflavík var það sterk liðsheild sem skóp sigurinn en A.J. Moey var stigahæstur Keflvíkinga með 26 stig. vignir@frettabladid.is Keflvíkingar náðu fram hefndum í Sláturhúsinu Vængbrotið lið Grindavíkur hafði ekki roð við fullskipuðu liði Keflavíkur í stórleik Iceland Express-deildarinnar í gærkvöldi. Keflavík náði þar með fram hefndum frá bikarúrslitunum um síðustu helgi. A.J MOEY Átti frábæran leik í gær og Grindvíkingar réðu ekkert við Bandaríkjamanninn, sem skoraði 27 stig í leiknum. Keflvíkingar fóru með öruggan sigur af hólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.