Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 55
FÖSTUDAGUR 24. febrúar 2006 43
ENGAR MÁLAMIÐLANIR, NJÓTUM LÍFSINS TIL FULLS!
Baldur Ragnarsson, bílstjóri
Flytjanda, ók sína 2.600. ferð á
milli Reykjavíkur og Akureyrar
nýlega en vegalengdin sem hann
hefur keyrt á sínum starfstíma
samsvarar 62 ferðum umhverfis
jörðina og þremur ferðum til
tunglsins og til baka. „Ég er búinn
að vera rúm 32 ár í þessu starfi og
er svo sem búinn að keyra ansi
mikið. Aðrir hafa nú verið í þessu
lengur en ég er ekki langt á eftir
þeim í starfsaldri,“ sagði Baldur,
sem hefur ekið um 2,5 milljónir
kílómetra, en áður hafði hann ekið
mjólkurbílum, rútum og fleiri far-
artækjum. Að sögn Baldurs hefur
ansi margt breyst frá þeim tíma
þegar hann byrjaði að keyra flutn-
ingabíla á milli Akureyrar og
Reykjavíkur. „Þetta er ekki sam-
bærilegt. Bæði vegirnir og bílarn-
ir eru betri, en þegar ég byrjaði
gat ein ferð tekið heilan sólar-
hring. Allt hefur þetta þó sína
kosti og galla og til dæmis hefur
hraðinn á vegunum aukist gífur-
lega og þeirri þróun fylgir aukin
hætta,“ segir Baldur, sem verður
sjötugur í sumar og stefnir á
starfslok í haust. ■
Hefur farið 62 ferðir í kringum hnöttinn
BALDUR RAGNARSSON Hann keyrði sína
2.600. ferð nýlega en vegalengdin samsvar-
ar 62 ferðum umhverfis jörðina.
Hugleikur Dagsson myndasagna-
höfundur fór á bókamarkað í Perl-
unni og valdi sér þrjár bækur í
safnið sitt.
„Ég fullkomnaði nánast Tinna-
safnið með bókunum Kolafarmur-
inn og Krabbinn með gylltu klærn-
ar. Nú vantar mig bara
Hákarlavatnið,“ segir Hugleikur
Dagsson myndasagnahöfundur.
„Ég valdi líka Öreindir eftir
Michel Houellebecq. Það er bók
sem ég hef alltaf ætlað að lesa.
Auk þess keypti ég mér tvær
klassíkar Andrésar Andar-bækur
sem ég las þegar ég var lítill. Ég
var mjög sáttur.“ - fb
Vantar bara
Hákarlavatnið
HUGLEIKUR DAGSSON Hugleikur fékk sér
bókina Öreindir eftir Michel Houellebecq
ásamt Tinnabókunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þýski plötusnúðurinn Timo Maas,
eitt stærsta nafn danstónlistarinn-
ar, þeytir skífum á Nasa í kvöld.
Þetta er í annað sinn sem hann
spilar hér á landi en fyrir fjórum
árum spilaði hann á Party Zone-
kvöldi á Gauknum.
Timo hefur gefið út tvær plötur
og endurhljóðblandað lög fyrir
listamenn á borð við Madonnu,
Depeche Mode, Jamiroquai, Moby,
Placebo, Fatboy Slim og Tori
Amos. Síðasta plata hans, sem
kom út fyrir nokkrum mánuðum,
inniheldur meðal annars lögin 4
Ur Ears með Kelis og First Day
með Brian Molko, söngvara Place-
bo.
Plötusnúðarnir Grétar G og
Casanova sjá um upphitun fyrir
kappann á meðan Rikki og Ingvi
sjá um tónlistina á efri hæð Nasa.
Húsið verður opnað klukkan 23:00
og fer miðasala fram í verslunum
Skífunnar og á midi.is. Miðaverð
er 1.500 í forsölu auk miðagjalds
en 1.900 við dyrnar. ■
Timo Maas
á Nasa
TIMO MAAS Plötusnúðurinn heimsþekkti
heldur tónleika á Nasa í kvöld.