Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 24
24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
Excel Airways, dótturfélag Avion
Group, hefur gengið frá samningi
um leigu á tveimur nýjum Boeing-
flugvélum af gerðinni 737-900ER
sem koma á markað á næsta ári og
tveimur Boeing 737-800 sem verða
afhentar á öðrum ársfjórðungi
2007. Að auki hefur verið gengið
frá samningum um afhendingu
fjögurra Boeing 737-800 véla á
fyrstu sex mánuðum ársins 2007.
Vélarnar eru allar leigðar til átta
ára og eru þessir samningar hluti
af endurnýjun flota Avion Group.
Nýju vélarnar leysa af hólmi
eldri og óhagkvæmari Boeing 757-
200 vélar. Þær passa vel við Boeing
737-800 flota félagsins og er meðal
annars hægt að samnýta 98 pró-
sent af öllum varahlutum í flug-
vélarnar. Floti Excel Airways sam-
anstendur af 17 farþegavélum en
yfir sumartímann eru um 30 flug-
vélar í rekstri hjá félaginu.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra var viðstaddur undirskrift
samningsins þegar hann heimsótti
höfuðstöðvar Excel Airways í Craw-
ley í dag. Einnig voru höfuðstöðvar
Travel City, dótturfélags Excel Air-
ways, opnaðar formlega. Travel
City sérhæfir sig í sölu pakkaferða
til Flórída og er stærsta félagið
sinnar tegundar í Bretlandi. - hhs
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.663 +3,02% Fjöldi viðskipta: 931
Velta 7.150 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,40 +2,5% ... Alfesca
3,97 +1,80%... Atorka 6,10 +0,83% ... Bakkavör 52,10 +2,16% ...
Dagsbrún 6,61 +0,46% ... FL Group 26,20 +3,15% ... Flaga 3,89
+0,52% ... Íslandsbanki 21,20 +1,92% ... KB banki 968,00 +4,31%
... Kögun 65,50 +0,61% ... Landsbankinn 29,20 +2,82% ... Marel
68,00 +2,72% ... Mosaic Fashions 17,30 +0,58% ... Straumur-
Burðarás 19,90 +2,58% ... Össur 113 +5,12%
MESTA HÆKKUN
Össur 5,12%
KB banki 4,31%
FL Group 3,15%
Ný
tt!
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Spurðu um ENNE
M
M
/
S
ÍA
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000
Gengisvísitala krónunnar styrkt-
ist talsvert í gær eftir að matsfyr-
irtækið Fitch staðfesti óbreyttar
lánshæfiseinkunnir bankanna.
Jafnframt hækkuðu hlutabréf
mikið í verði.
Greining Íslandsbanka álítur að
of sterk viðbrögð hafi verið á
gjaldeyrismarkaði undanfarna
daga og megi rekja það til inn-
lendra aðila sem hafi um langa
hríð verið þeirrar skoðunar að
krónan væri orðin of sterk, en ekk-
ert gert í því fyrr en boltinn fór að
rúlla. Miklar sveiflur hafa verið á
gjaldeyrismarkaði undanfarna
daga og var sett nýtt veltumet á
gjaldeyrismarkaði á miðvikudag-
inn þegar veltan fór yfir 42,5 millj-
arða króna.
Ingvar Arnarson, sérfræðingur
hjá greiningu Íslandsbanka, telur
að kauptækifæri hafi myndast til
skemmri tíma eftir mikla veikingu
krónunnar þar sem enn séu aðstæð-
ur til staðar í hagkerfinu sem ættu
að stuðla að sterkri krónu, svo sem
háir stýrivextir, mikill vaxtamunur
við útlönd og þensla. Hann telur
meiri líkur á að krónan styrkist en
veikist á næstu dögum.
„Ég er samt smeykur um að
jafn mikil gengislækkun krónunn-
ar og átti sér stað á þriðjudag og
miðvikudag muni fæla frá útgef-
endur og kaupendur krónubréfa,
enda eru þetta eflaust meiri sveifl-
ur en þeir reiknuðu með,“ segir
Ingvar. Hann segir að það gæti
dregið úr útgáfu krónabréfa en
það verði bara að koma í ljós.
Margir kaupendur hafi eflaust
farið
illa út úr
gengissveiflum
síðustu dægrin.
Miðað við forsendur
Íslandsbanka um hvar jafn-
vægisgengi krónunnar liggur
í framtíðinni og ef það gengi er
núvirt til dagsins í dag miðað við
vexti erlendis og hér heima fékkst
sú niðurstaða að gengið hafi orðið
of lágt í fyrradag. „Við sjáum oft á
fjármálamörkuðum að þegar rót-
tækar sveiflur eiga sér stað skap-
ast oft tækifæri í hina áttina.“
Engin útgáfa erlendra skulda-
bréfa í íslenskum krónum, svo-
kölluð krónubréf, hefur átt sér
stað síðan á mánudaginn en frá
því að hún hófst fyrir hálfu ári
hafa bréf fyrir 220 milljarða
verið gefin út og óljóst um fram-
haldið. „Ég tel að jafn mikil lækk-
un krónunnar og átti sér stað á
þriðjudag og miðvikudag eigi að
fæla frá endafjárfesta, það er þá
sem hafa verið að kaupa krónu-
bréf, og líka útgefendur þessara
bréfa, enda eru þetta meiri sveifl-
ur en þeir reiknuðu með,“ segir
Ingvar. Hann segir að það gæti
dregið úr útgáfu krónabréfa en
það
verði
bara að
koma í ljós. Ein-
hverjir kaupendur hafa farið
illa út úr gengissveiflum síðustu
dægrin.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður Greiningardeildar Lands-
bankans, á frekar von á því að
útgáfa krónubréfa fari aftur af
stað þótt ómögulegt sé að spá fyrir
um hvenær útgáfan fari aftur af
stað. „Það er útlit fyrir að mikill
vaxtamunur verði til staðar. For-
senda fyrir frekari útgáfu veltur á
því hvort kaupendur verði að bréf-
unum,“ segir hún. Sá hópur sem
keypti bréfin hefur brennt sig á
atburðum liðinna daga, og er jafn-
vel farinn út úr þeim, en hún held-
ur að kaupendur séu að jafnaði
með smá hagnað.
„Það sem gerðist núna sýndi
nokkuð vel hvað markaðurinn var
orðinn spenntur, að hann skuli
bregðast svona hart við þessum
fréttum,“ segir Edda Rós.
eggert@frettabladid.is
Hár vaxtamunur ætti að
koma krónuútgáfu af stað
Engin krónuútgáfa frá því á mánudaginn. Kauptækifæri mynduðust í
krónunni eftir skarpar lækkanir tvo daga í röð.
MARKAÐSPUNKTAR...
Yfirdráttarlán til heimila jukust um
4,6 milljarða króna í janúar frá fyrri
mánuði. Það jafngildir 6,8 prósenta
aukningu. Yfirdráttarlánin eru nú tæpir
73 milljarðar og hafa aðeins einu sinni
verið meiri, í nóvember síðastliðnum.
Mikil umsvif voru á skuldabréfamarkaði
í gær og hefur veltan ekki verið meiri frá
útgáfu íbúðabréfa í júlí 2004. Samanlagt
skiptu skuldabréf að verðmæti 24,3
milljarða króna um hendur.
Verðmæti fiskaflans dróst saman um
0,2 prósent að nafnvirði á fyrstu ellefu
mánuðum ársins 2005 miðað við 2004.
Styrking krónunnar hafði neivæð áhrif
auk þess sem minna veiddist af þorski,
rækju og úthafskarfa en árið á undan.
FLUGVÉL ÚR FLOTA EXCEL Avion Group hefur gert samning um leigu átta nýrra flugvéla.
Átta nýjar vélar í
flota Excel Airways
Matsfyrirtækið Fitch hefur stað-
fest óbreytt lánshæfismat allra
íslensku bankanna. Þetta kemur í
kjölfar fréttar um að fyrirtækið
hafi breytt horfum á lánshæfis-
mati ríkissjóðs úr stöðugum í nei-
kvæðar.
Í umfjöllun Fitch segir að
styrk eiginfjárstaða bankanna og
hátt hlutfall af útlánasafni erlend-
is vegi upp á móti þjóðhagslegum
áhættuþáttum heima fyrir, á borð
við hækkandi verðbólgu, hraðari
útlánaaukningu, vaxandi skulda-
söfnun erlendis, miklum við-
skiptahalla og hækkandi eigna-
verði. Útlán bankanna voru á
bilinu 35-70 prósent erlendis um
síðustu áramót og má reikna með
að hlutfallið hafi farið hækkandi.
Horfur lánshæfiseinkunna allra
bankanna eru sagðar stöðugar. - eþa
Fitch staðfestir lánshæfi bankanna
LÁNSHÆFISMAT FITCH Á ÍSLENSKU BÖNKUNUM
Langtíma- Skammtíma- Fjárhagslegur Stuðnings-
einkunn einkunn styrkleiki einkunn
Íslandsbanki A F1 B/C 2
KB banki A F1 B/C 2
Landsbankinn A F1 B/C 2
Straumur-Burðarás BBB- F3 C/D 3
Krónutitringur fer víða
Niðursveifla í gengi krónunnar á miðvikudag hafði
áhrif á gengi annarra smárra gjaldmiðla víða um
heim, svo sem í Brasilíu og Suður-Afríku. Tíma-
bundin lækkun þeirra gekk svo til baka í gær.
Erlendir fréttamiðlar, svo sem fjármálaritið Financial
Times, segja fall krónunnar hafa ýtt á fjárfesta í að
innleysa strax hagnað sem þeir sáu nú fram á að
verða af vegna gengistaps. Þessi tilhneiging hafi svo
haft keðjuverkandi áhrif á aðra unga markaði með
smærri gjaldmiðla. Þannig féll brasilíski realinn um
nærri þrjú prósent um tíma. Þá féllu um
tíma um að minnsta kosti eitt prósent
gjaldmiðlar á borð við tyrknesku
líruna, randið í Suður-Afríku, pesóinn
í Mexíko og indónesíska rúpían.
Tímabundin gengislækkun þessarra
gjaldmiðla er sögð skýrast af því að
fjárfestar hafi selt bréf til að bregð-
ast við gengistapi á Íslandi.
Berlingur samur við sig
Innrás íslensks viðskiptalífs í Danmörku fer ekki
meira í taugarnar á neinum en Berlingske Tidende.
Skrif þeirra hafa verið sérlega illa ígrunduð og þarf
að leita inn fyrir landsteinana til að finna samsvör-
un í neikvæðni í garð íslensks viðskiptalífs. Berl-
ingske byrjar grein sína um skýrslu Fitch á að segja
að lánstraust Íslendinga sé að klárast. Ástæðan er
að mati Berlingske of hraður akstur og agressíf
kaup Íslendinga erlendis fyrir lánsfé.
Nú verður spennandi að fylgjast með því í dag
hvort Berlingske segir frá því að Fitch hafi staðfest
fyrra lánshæfismat sitt á bönkunum.
Börsen fer hófstilltari leið, enda með vandaðri
viðskiptafréttir, og segir að veiking krónunn-
ar dragi úr líkum á frekari fjárfestingum
Íslendinga í Danmörku. Þetta eru fróm
huggunarorð til hennar bráðum uppkeyptu
Danmerkur, en ólíklegt að Berlingi og
Börsen verði að ósk sinni.
Peningaskápurinn...