Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 24. febrúar 2006 5 Flott gleraugu s j ó n m æ l i n g a r N r . 5 - 2 x 1 7 Gallabuxnafyrirtækið risa- vaxna, Levi´s, skilaði umtals- verðum hagnaði á síðasta ári. Í fyrsta skiptið í átta ár jókst salan hjá einni stærstu fatakeðju heims í fyrra. Hreinn hagnaður Levi´s jókst um 126 milljónir dollara á síðasta ári sem samsvara vel yfir átta milljörðum íslenskra króna. Ástæðu hagnaðarins má rekja beint til mun meiri sölu en undan- farin ár en ekki til minni rekstar- kostnaðar. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru þó varkárir í yfirlýsingum um árið 2006. Þeir segjast þó vera með margar spennandi vörur í pípun- um sem eigi vonandi eftir að auka sölu fyrirtækisins enn meira. Levi´s græðir á tá og fingri Margir undrast það kannski að sala Levis jókst í fyrsta skiptið í átta ár í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Í vor verður ekki mikið um augnfarða. Varalitir verða þó vinsælir og andlitið á að vera glansandi. Á tískusýningum komandi vorlínu voru nokkur atriði í förðun áber- andi og sameiginleg flestum hönn- uðunum. Þykkar augabrúnir Augabrúnirnar setja sterkan svip á andlitið í vor. Það dugir þó ekki að hafa augabrúnirnar í sinni nátt- úrulegu mynd heldur verða þær að vera snyrtilegar og í fínum boga. Ef viðkomandi þarf að þykkja augabrúnir sínar fyrir vorið er því best að gera það hægt og safna línu fyrir línu. Áberandi varir Andlitsmálning verður í lágmarki í vor og lítið gert úr augnmáln- ingu. Eini staðurinn þar sem litir munu sjást verður á vörunum. Valentino var með eldrauða vara- liti, Gucci djúp-bleika en einnig má nefna svarfjólubláa, fjólu- rauða og appelsínugula varaliti. Uppsett hár Hárgreiðslan á vorsýningunum var áþekk. Hún var snyrtileg og kvenleg en þó töff. Fyrirsæturnar í sýningu Chloe voru allar með hárið greitt í stíft tagl en töglin hjá Chanel voru aðeins lausfestari og lokkar löfðu meðfram andlit- inu. Hárgreiðslumenn tískusýn- inga höfðu hrifist af því hvernig fyrirsæturnar settu hár sitt í hálft tagl þegar þær voru komnar af sviðinu og Louis Vuitton og Marni tóku það upp og greiddu hár allra sinna fyrirsæta í hálf tögl. Gljáandi húð Í vor á að hafa húðina nógu glans- andi og highlighter því nauðsyn- legur í öll snyrtiveski. Hann á að setja fyrir ofan kinnbein, globus- línu augnanna, augabrúnir og nef. Í stað brúnkukremsins koma glansandi krem, glossar og farði og andlitið má aldrei sjást matt. mariathora@frettabladid.is Lítil förðun en þykkar augabrúnir Hér má sjá fyrirsætu á tískusýningu vorlín- unnar. Hún er með þykkar en snyrtilegar augabrúnir, glansandi húð, bleikar varir og hárið greitt aftur. Fyrirsæta greitt með hálft tagl á vorsýn- ingu Louis Vuitton. Resilience Lift Extreme krem- ið frá Estée Lauder þéttir húðina auk þess að veita henni raka. Hrukkur og línur verða ekki eins sýnilegar og húðin geislar meira en nokkru sinni áður. nýtt } Þéttir húðina Youthtopia Skin firming Cream frá Origins er ætlað fyrir blandaða og þurra húð. Kremið inniheldur Rhodiola sem gefur húðinni aukna orku um leið og það hjálpar henni að berjast við merki öldrunar. Origins Absolue Teint er rakakrem frá Lan- come fyrir þroskaðar konur. Raka- kremið hefur þétta áferð og veitir samstundis þægindi og mýkt. Húðlit- urinn verður ferskur og náttúrulegur og öldrunarblettir og ójöfnur hverfa nánast. Auk þess að veita húðinni þann raka sem henni er nauðsynlegur ver Absolue Teint húðina fyrir skaðleg- um geislum sólarinnar. Lancome
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.