Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 54
 24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR Kvikmyndin Blóðbönd verður frumsýnd í kvöld en þetta er frumraun leikstjór- ans Árna Ólafs Ásgeirsson- ar. Mikið einvalalið fer með aðalhlutverkin í myndinni, sem gerist í íslenskum hversdagsleika. Pétur er augnlæknir í blóma lífs- ins og er giftur gullfallegri konu, lækninum Ástu. Þau bíða spennt eftir sínu öðru barni en fyrir eiga þau Örn, tíu ára gamlan snáða sem er augasteinn föður síns. Fátt ef eitthvað virðist því getað raskað ró þessarar litlu fjölskyldu. Þegar Örn veikist kemur hins vegar í ljós að Pétur er alls ekki faðir drengsins. Tilvera fjölskyldunnar hrynur og alls óvíst hvort henni takist að byggja upp líf sitt að nýju. Fríður hópur leikara fer með helstu hlutverkin í Blóðböndum. Hilmar Jónsson leikur augnlækn- inn Pétur en það heyrir alltaf til tíðinda þegar leikhússtjórinn úr Hafnarfirði bregður sér í hlutverk. Margrét Vilhjálmsdóttir leikur eiginkonuna og Elma Lísa Gunn- arsdóttir er í hlutverki systur Pét- urs. Þá eru systurnar Sóley og Laufey Elíasdætur einnig í stórum hlutverkum. Snorri Þórisson og kvikmyndafyrirtæki hans Pegasus framleiða myndina en hún þótti mjög ódýr í framleiðslu og kostaði í kringum níutíu milljónir. - fgg Snæfríður Ingadóttir, ritstjóri Flugstöðvarblaðsins, heimsótti bókamarkaðinn í Perlunni og valdi sér tvær bækur, Snúð og Snældu, og Tærnar – spegill persónuleik- ans. „Í nostalgíu valdi ég nokkrar bækur um óþekktarkisurnar Snúð og Snældu. Ég hafði afar gaman af þessum bókum sem krakki og hef hugsað mér að lesa þær fyrir heimilisköttinn í von um að hinn móralski boðskapur bókanna síist inn hjá honum. Einnig greip ég með mér bókina „Tærnar – spegill persónuleikans“ en höfundurinn heldur því fram að staða og lögun tánna geti sagt mikið um eigand- ann, hugsanir hans og tilfinningar. Allir kannast við lófalestur en að það sé hægt að lesa í tærnar á manni er alveg nýtt. Sjálf er ég með afar ljótar tær þannig að það verður spennandi að reyna bókina á þeim.“ ■ Nostalgía og tálestur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Árni Ólafur Ásgeirsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Blóðbanda, var að borða pylsu þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Matur alþýð- unnar,“ sagði hann, með munninn fullan af mat. Ekki fengust frekari upplýsingar um hvað væri á pylsunni. Árni Ólafur lærði kvikmynda- gerð í Póllandi og að hans sögn kviknaði hugmyndin að myndinni þegar skólavistinni þar var að ljúka. „Í fyrstu var þetta bara ein persóna, maður sem gengur út heiman frá sér,“ segir Árni Ólafur og bætir við að þetta hafi í upphafi verið frekar ómótuð hugmynd. „Hún snerist um einhvern sem heldur út í algjöra óvissu,“ segir hann og viðurkennir að þekkja sjálfur þá tilfinningu. „Það má kannski segja að ég hafi verið smeykur við það sem kynni að gerast eftir að skólanum lyki,“ útskýrir Árni. Denijal Hasanovich, skólabróð- ir Árna, bauðst til að hjálpa við gerð handritsins og Jón Atli Jón- asson kom síðan að verkinu. „Það fór góður tími í að átta sig á því af hverju maðurinn gengur út,“ segir Árni. „Við fengum hundrað hug- myndir en leist að lokum best á eina,“ heldur Árni áfram. Aðal- sögupersónan Pétur fer að heiman þegar hann uppgötvar að hann er ekki faðir sonar síns. Árni segist þó ekki hafa kynnt sér neinar vís- indalegar rannsóknir um hvort íslensk börn séu meira eða minna rangfeðruð en önnur en viður- kennir að hafa heyrt ýmsar tölur hvað það varðar. „Okkur fannst þetta samt passa enda hefur fjöl- skylduhugtakið breyst svo mikið,“ segir Árni. Hann segist ekki geta gert upp á milli áhrifavalda sinna en nefnir þó tékkneska leikstjórann Milos For- man, sem gerði meðal annars Gauks- hreiðrið og Amadeus. Þá séu leik- stjórar á borð við Mike Leigh og Ken Loach í miklu uppáhaldi. „Ann- ars er smekkurinn svo síbreytilegur og alltaf að breytast,“ segir hann og bíður eftir að dyrnar opnist í kvik- myndahúsum borgarinnar svo að landar hans geti séð afraksturinn. ■ ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON Hugmyndin að Blóðböndum byggist á því að maður gengur út heiman frá sér og út í fullkomna óvissu. Hugmynd frá Póllandi „FEÐGARNIR“ Örn er augasteinn föður síns en þegar Pétur kemst að raun um að hann er ekki pabbi hans veldur það honum mikl- um heilabrotum. TILVERAN HRYNUR Það hriktir í stoðum tilverunnar hjá Pétri og Ástu þegar upp kemst um tíu ára gamalt leyndarmál. Blóðbönd frumsýnd ÁST Á VINNUSTAÐNUM Þegar augnlæknirinn flytur að heiman kynnist hann Önnu, sem huggar hann á erfiðum tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.