Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
290,-
Grænmetisbuff
með cous cous og sósu
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
BILLY bókaskápur, eik
60x202 sm 6.950,-
EXPEDIT hillueining, beyki
ýmsir litir 185x185 sm 14.950,-
KULL
sjónvarpsbekkur
149x58x25 sm 9.950,-
DETOLF
glerskápur, beyki
43x37x162 sm 5.450,-
BRANÄS bastkarfa
25x23x15 sm 650,-
ASPELUND náttborð
36x35x63 sm 3.950,-
ANEBODA
kommóða 80x40x100 sm
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Skpiulag
hér og þar...
BRATTBY
geisladiskastandur 114 sm
990,-
6.950,-
NORREBO geymslukassi
með skúffum eða hurð
34x34 sm 1.950,-
2.890,-
TRONES skóskápar/hirslur 3 í pk.
51x18x39 sm
KASSETT kassi með loki
2 stk. 26x17x15 sm
590,-
Einn léttur
ÍSKALDUR!
����������
���������
���������������
Það voru ákveðin tímamót fyrir Íslendinga þegar stjórn Alcoa
ákvað á þriðjudaginn að kanna
kosti þess að reisa álver á Bakka
við Húsavík. Tímamótin fólust þó
ekki í ákvörðun stjórnarinnar eða
meintum sigrum íslenskra stjórn-
málamanna, heldur því að nú
afhjúpaðist kristaltært fyrir okkur
öllum hið djúpa eðli Íslendinga
sem felst í tvennu: Að vera spennt-
ir fyrir allsherjar skyndilausnum
sem hægt er að riggja upp í hvelli
án þess að velta fyrir sér afleiðing-
unum og hins vegar að fagna of
mikið og of snemma.
ÞAÐ var furðulegt að horfa á
brosandi fréttamann Ríkissjón-
varpsins (hvar var hlutleysið?)
sitja innan um fagnandi Húsvík-
inga á pöbb þar nyðra, kallandi
eftir fagnaðarlátum líkt og Hús-
víkingur hefði verið fyrsti maður-
inn til að ganga á Tunglinu þá um
kvöldið í geimbúningi úr héraðinu.
Alcoa, svo ég rifji upp staðreynd-
irnar, ætlar að skoða málið. Það
var það eina sem var ákveðið. Ég
geri heldur ekki ráð fyrir að Hús-
víkingum sé sama um á hvaða raf-
orkuverði álverið verði rekið og
einnig hvort aðrar atvinnugreinar
í landinu, einkum útflutningur, þoli
álagið og þensluna. Eða hvað?
NÚ á að kýla á það með iðnaðar-
ráðherra í broddi fylkingar. Fá Pól-
verja og Kínverja, væntanlega, til
að byggja verksmiðjuna. Spyrja
má í ljósi bjartsýninnar og hinna
ótímabæru fagnaðarláta hvers
lags veruleiki myndi blasa við
Húsvíkingum ef Alcoa og Lands-
virkjun næðu ekki samningum.
Væri byggðarlagið þá dauðadæmt?
Ef það er tilfellið, er þá til einhver
betri skilgreining á því að byggð
sé illa háð erlendu stórfyrirtæki?
ÞETTA er umhugsunarefni. Hvað
veldur þessari geðshræringu? Hver
er váin? Samkvæmt nýjustu tölum
af vef Hagstofunnar voru sex án
atvinnu í heilt ár eða lengur á Norð-
urlandi eystra árið 2000, fimm árið
2001 og fjórir árið 2002, þannig að
viðvarandi atvinnuleysi fór sem
sagt minnkandi. Tveir af sex fengu
vinnu. Atvinnuleysi er auðvitað
alltaf leiðinlegt, en þessar tölur
gefa ekki til kynna að í fjórðungn-
um ríki ástand eins og í yfirgefnu
kolanámuþorpi á tímum Dickens.
Er álverið fyrir hina fjóra?
ÉG held að það sé hægt að gera
margt á Húsavík og álver er ekk-
ert út úr korti svo sem, ef efna-
hagslífið og náttúran leyfa, sem er
stórt vafamál. Það er í öllu falli
athyglisvert að möguleikum á
álveri sé fagnað eins og byggðar-
lagið fari til fjandans annars. Skæl-
brosandi Húsvíkingar sögðu við
fréttamann að stærri tíðindi hefðu
ekki gerst síðan Garðar kom til
Húsavíkur árið 870.
SÁ var nú reyndar eitthvað smá
skrítinn því hann vildi skíra landið
Garðarshólma. Þá værum við
Garðarshólmarar, en hvað um það.
Líkingin við Garðar Svavarsson er
einkar viðeigandi. Dæmi Garðars
ætti einmitt að kenna Húsvíking-
um að fagna ekki of snemma og að
betra sé að treysta sem mest á
sjálfan sig ef unnt er. Garðar var
Svíi, kom við á Húsavík í einn
vetur og fór svo.
Garðar