Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 24
 4. mars 2006 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is LEONARD WARREN (1911-1983) LÉST ÞENNAN DAG „Baritónar eru fæddir þorparar í óperunni.“ Leonard Warren var frægur bandarískur baritón sem lést á hræðilegan hátt á sviði þennan dag árið 1983. Á þessum degi árið 1987 setti Happdrætti Háskóla Íslands happaþrennuna sína á markað. Fyrstu happaþrennurnar var hægt að fá fyrir fimmtíu krónur íslenskar og hæsti mögulegi vinningur á hverja þrennu nam hálfri milljón króna. Lægsti vinn- ingur var aftur á móti fimmtíu krónur, akkúrat nóg til að freista gæfunnar á ný. Happaþrennan kynnti skemmtilega nýjung í happdrættum hér á landi og hennar helsti kostur að spilarinn þurfti ekki lengur að bíða eftir drættinum til að vita hvort vinningur leyndist á miðanum. Einnig bauð happaþrennan upp á skemmtilegan leik fyrir einungis fimmtíu kall þar sem börn jafnt og fullorðnir hafa enn gaman af því að skafa. Happa- þrennan lifir enn góðu lífi meðal Íslendinga en er nú til í miklu fleiri útgáfum en upphaflega þrennan, bæði í nýtískulegri búningi og með möguleika á hærri vinningum. Hún hefur undanfarin nítján ár oft verið notuð sem gjöf og hefur til dæmis verið tíður gestur í skóm barna þegar líður að jólum. Eins og af öðrum miðum Happdrætti Háskóla Íslands rennur hagnaður af happa- þrennunum til Háskóla Íslands og hefur hann verið notaður til að fjármagna flestar byggingar og framkvæmdir á háskóla- svæðinu. ÞETTA GERÐIST > 4. MARS 1987 Fimmtíukall fyrir þrennu MERKISATBURÐIR 1936 Þýska loftfarið Hindenburg fer í sína fyrstu ferð. 1964 Fimm íslenskar hljómsveitir leika í Háskólabíói og hafa tónleikarnir verið taldir fyrstu bítlatónleikarnir á Íslandi. Hljómar vekja mikla hrifningu. 1971 Uppstoppaður geirfugl er sleginn Íslendingum á upp- boði í London en safnað var fyrir honum um allt land áður en uppboðið fór fram. Hann er nú geymdur á Náttúrufræðistofnun. 1975 Meistari þöglu kvikmynda, Charlie Chaplin, er sæmdur riddaranafnbót í athöfn í Buckinghamhöllinni. 1983 Menningarmiðstöðin Gerðuberg í Breiðholti í Reykjavík er tekin í notkun. Þökkum innilega samhug og hlýju í veikindum og við andlát elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu Aðalheiðar V. Steingrímsdóttur Hjallahlíð 4, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 21A á Landspítalanum og Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Guð blessi ykkur öll. Steingrímur Bjarnason Jóhanna H. Guðmundsdóttir Gunnlaugur I. Bjarnason Ásta Guðjónsdóttir Eyþór Már Bjarnason Katrín B. Baldvinsdóttir og barnabörn. Afmæli 90 ára Konráð Sæmundsson verður 90 ára 6. mars. Af því tilefni tekur hann á móti gestum kl. 15-17 hinn 5. mars í samkomusal Gullsmára 13, Kópavogi. Engin lognmolla verður í kringum Pétur Gaut Svavars- son myndlistarmann í dag. Ásamt því að halda upp á að hafa lifað í fjörutíu ár opnar hann sýningu í Hafnarborg. „Þetta er fyrsta stóra sýn- ingin mín í nokkur ár. Ég sýndi hérna síðast fyrir sex árum, einmitt á afmælisdag- inn líka,“ segir hann. Tilvilj- unin ein réð tímasetningunni árið 2000 en í ár valdi Pétur Gautur opnunardaginn með fertugsafmælið í huga, enda ekki alltaf sem stórafmæli ber upp á laugardag. „Ég bæði lít aftur á bak og fram á veg,“ segir Pétur Gautur um tímamótin. Hann segist meðal annars vera í fyrsta sinn með veglega sýn- ingaskrá þar sem hann lítur yfir feril sinn. „Hugmyndin var að gera svona „best of“ frá fyrri sýningum, alveg frá 1993 þegar fyrsta myndlist- arsýningin mín var haldin hér í Hafnarfirði,“ segir hann. Verkefnið vakti upp sterkar minningar hjá Pétri Gaut sem hafði mikla ánægju af því að líta um öxl og gera upp fortíðina. „Það hefur verið gaman að leita uppi gömlu myndirnar og sjá þær aftur með tilliti til þess hvað maður var að gera og hvernig maður hefur þróast.“ Aðspurður um hvort sýn- ingaropnanir verði nú dag- legt brauð á stórafmælum segir Pétur Gautur að hann ætli sér nú að halda oftar sýningar en á tíu ára fresti. „Ég reyni að vera með sýn- ingar á hverju ári en það er orðið dálítið erfitt núna,“ segir hann og kennir sýning- arstefnunni hér á landi um. „Fólk er bara valið eins og í stóru fínu söfnunum úti í heimi, sem er dálítið öfug- snúið,“ bætir hann við. Hann ætlar þó aðeins að slaka á í náinni framtíð enda undir- búningurinn fyrir sýninguna búin að vera dálítil törn. „Ég ætla að taka mér smá pásu núna og vera með fjölskyld- unni og börnunum.“ Hvíldin er þó ekki hafin enn enda afmælisdagurinn ekki liðinn. Fleira skemmti- legt er líka að gerast í dag því svo heppilega vill til að verkið Pétur Gautur er ein- mitt frumsýnt í Þjóðleikhús- inu í kvöld. „Ég er afskap- lega ánægður og hrærður að Þjóðleikhúsið skyldi frum- sýna Pétur Gaut á afmælinu og mér þar með sýndur þessi heiður,“ segir hann, hlær dátt og bætir svo við að reyndar hafi gleymst að bjóða honum á sýninguna. Tilviljunin sé engu að síður stórskemmtileg enda sé hann skírður í höfuðið á söguhetj- unni. Þegar hann er spurður hvort kvöldinu verði þá eytt í Þjóðleikhúsinu segist hann hafa annað á dagskrá. „Dag- urinn verður tekinn undir sýninguna og síðan ætla ég að skemmta mér með vinum og fjölskyldu í afmælisveislu um kvöldið,“ segir hann og bætir við: „Pétur Gautur fær að bíða betri tíma.“ PÉTUR GAUTUR SVAVARSSON: FERTUGUR Í DAG Heldur upp á afmælið með sýningaropnun Í MÖRGU AÐ SNÚAST Pétur Gautur Svavarsson opnar sýningu á afmælisdaginn sinn en ætlar að láta nafna sinn í Þjóðleikhúsinu bíða betri tíma, þrátt fyrir að frumsýninguna beri upp á afmælisdaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Í gær hófst raunvísindaþing 2006 í Öskju, Náttúrufræði- húsi Háskóla Íslands, og heldur þingið áfram í dag. Fimmtíu erindi eru á dag- skrá og hundrað og þrjátíu veggspjöld verða til sýnis. Erindin og veggspjaldakynn- ingarnar hefjast klukkan níu og lýkur formlegri dagskrá klukkan 16.15. Dagskrá dagskrá raunvís- indaþings 2006 er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, hi.is, en þingið er öllum opið. Nýtt í vísindum ASKJA ANDLÁT Þorgerður S. Einarsdóttir, frá Hlíðarenda á Ísafirði, lést á heimili sínu, Hrísmóum 1, Garðabæ, miðvikudaginn 1. mars. Bjarni Þorsteinsson, fv. mat- sveinn og leigubílstjóri, lést 15. febrúar. Dagbjört Á. Siemsen, Skaftahlíð 34, Reykjavík, lést á Landspítalan- um við Hringbraut þriðjudaginn 28. febrúar. Herdís Björnsdóttir, Varmalæk í Skagafirði, lést sunnudaginn 26. febrúar. Ragnar Kr. Karlsson, læknir, lést miðvikudaginn 1. mars. Álfrún Edda Sæm Ágústsdóttir lést á Landspítala - háskólasjúkra- húsi við Hringbraut mánudaginn 20. febrúar. JARÐARFARIR 13.00 Þorvaldur Óskarsson, frá Kaldárhöfða, Mánagötu 3, Grindavík, verður jarðsung- inn frá Grindavíkurkirkju. 13.30 Ómar Steindórsson, Ægis- síðu 15, Grenivík, verður jarðsunginn frá Grenivíkur- kirkju. 13.30 Jón Kristinn Stefánsson, bóndi, Munkaþverá, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsunginn frá Munka- þverárkirkju. 14.00 Þorbjörg Sveinbjarnar- dóttir, Huppahlíð, Miðfirði, verður jarðsungin frá Staðar- bakkakirkju, Miðfirði. 14.00 Olgeir Sigurgeirsson, fv. útgerðarmaður, Skálabrekku 5, Húsavík, verður jarðsung- inn frá Húsavíkurkirkju. Móðir mín og amma Guðrún Sveinsdóttir áður til heimilis að Hamraborg 18 og Þönglaskála Skagafirði, lést 2. mars á hjúkrunarheimilinu Grund. Fyrir hönd aðstandenda Eysteinn Jónsson Edda Þorleifsdóttir AFMÆLI Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðar- maður er 47 ára. Árni Snævarr blaða- maður er 44 ára. Friðrik Erlingsson rithöfundur er 44 ára. Ottó Davíð Tynes auglýsingagerðar- maður er 36 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.