Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 28
4. mars 2006 LAUGARDAGUR28
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR Forsvarsmaður samtakanna Blátt áfram sem vinna að forvörnum gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.
„Að beita börn kynferðisofbeldi er sálarmorð því að
um leið og brotið er gegn þeim breytist líf þeirra
algerlega. Ofbeldið breytir sálinni og tilfinningunum
og brýtur niður sjálfsímyndina. Sé brotið endurtekið
verða afleiðingarnar verri og verri. Allir vírarnir
kippast í sundur og vaxa vitlaust saman,“ segir Sig-
ríður. Samtökin ætla að halda áfram á þeirri braut
sem þau hafa fetað með auglýsingaherferðinni Rjúf-
um þögnina og fræddu barnið þitt – það er þín
ábyrgð.
Auglýsingaherferðin hefur fengið mikla athygli.
Sigríður segir foreldra hringja og þakka þeim fyrir
framtakið: „Við höfum einnig fengið ábendingar um
að börn sjái auglýsingarnar. Foreldrar fá spurningar
frá börnunum sem gefur þeim tækifæri til að ræða
málin strax.“ Sigríður segir fræðslu um
kynferðisofbeldi á heimilum og meðvitund um það
oft þurfa að koma utan frá: „Foreldrar eru ekki á
varðbergi ef þeir vita ekki í hvernig aðstæðum svona
ofbeldi verður til og ræða það því ekki við börnin.“
Sigríður segir að þrátt fyrir að börn hafi ekki upp-
lifað kynferðisofbeldi skilji þau umræðuna vel. „Þú
ræðir samt ekki eins við öll börn heldur tekur tillit til
þroska þeirra. Börnin í auglýsingunni voru til dæmis
uppfrædd um málefnið og fannst það koma þeim
vel,“ segir Sigríður og bætir við: „Svo sannnarlega
hefði það hjálpað mér hefði ég verið frædd á mínum
yngri árum um að ég mætti segja nei og að ég mætti
setja fólki mörk inni á heimili mínu og utan þess.“
Sigríður var ásamt systur sinni misnotuð af fóstur-
föður þeirra sem barn. Hún þakkar Önnu Margréti
Sigurðardóttur hjá Hvíta húsinu og Guðjóni hjá Spark
fyrir hjálpina við herferðina. Þau hafi hannað hana
og gefið afrakstur vinnu sinnar.
Þær systur halda ótrauðar áfram. Sigríður er í
fullu starfi hjá samtökunum; vinnur við fræðslu,
heldur fyrirlestra og kemur brúðuleikhúsinu, sem
fræðir börnin, á framfæri. Svava er flutt til Banda-
ríkjanna og leitar að meira efni sem þær geta notað í
baráttu sinni og hyggst setja starfsemina á stokk þar.
„Við reynum ekki að finna upp hjólið. Við reynum að
finna efni sem við vitum að virkar og höldum starf-
inu áfram.“
Auk þess að halda áfram með auglýsingaherferð-
ina verða næstu skref samtakanna að skipuleggja
ráðstefnu sem haldin verður í maí þar sem einblínt
verður á gerendurna. Sigríður segir að skylda þurfi
þá í meðferðir svo þeir fremji ekki fleiri brot eftir
afplánun kynferðisdóma.
Vírar sálarinnar
tengdir á réttan hátt
Allt frá því Toshiki kom upp
athvarfi fyrir bágstaddar útlendar
konur í miðborg Tókýó, þegar hann
hafði nýlokið prestanámi, hefur
samfélagsleg fórnfýsi einkennt
mikilvægt framlag hans til mann-
lífsins. Óeigingjarnt starf hans
hefur hjálpað útlendingum á
Íslandi, sem margir hverjir koma
úr gjörólíkum menningarheimi, að
fóta sig hér á landi. „Ég hef alltaf
trúað því að fólk eigi að hafa rétt til
þess að skapa sér lífsmynstur og
aðstæður, óháð því hvar í heimin-
um það lifir. Hér á Íslandi hefur
margt breyst til batnaðar síðan ég
hóf að starfa hér á landi árið 1993.
Sérstaklega hefur viðhorf Íslend-
inga til tungumáls innflytjenda
breyst, því hér áður fyrr var miklu
Umburðarlyndi að leiðarljósi
Forma, samtök átrösk-
unarsjúklinga á Íslandi,
fengu Samfélagsverð-
laun Fréttablaðsins og
hlutu styrk upp á eina
milljón króna. Þær
Alma Dröfn Geirdal
og Edda Ýrr Einars-
dóttir eru krafturinn
bak við Forma og segja
þær verðlaunin ómet-
anlega hjálp í málefna-
baráttu sinni.
Í sófahorninu á Kaffi Sólon tóku
Alma Dröfn Geirdal og Edda Ýrr
Einarsdóttir á móti blaðamanni
með breiðu brosi. Tveggja barna
móðir og sálfræðinemi í fullu
námi, 26 og 23 ára, ungar konur
með stóra drauma og háleit mark-
mið. Báðar háðu harða baráttu
við átröskun og nú heyja þær bar-
áttuna við sjúkdóminn fyrir aðra.
Forma, samtök átröskunarsjúk-
linga á Íslandi, voru stofnuð í
apríl 2005 og á þeim stutta tíma
sem samtökin hafa verið starf-
andi hafa Alma og Edda náð
mörgum af þeim markmiðum
sem þær upphaflega settu sér.
„Við Edda hittumst fyrst fyrir
rúmu ári eftir að ég las blaðavið-
tal við hana þar sem hún sagði
sína sögu af sjúkdómnum og
þeirri sýn sem hún hafði á barátt-
una gegn honum,“ segir Alma.
„Ég gerðist bara kræf og setti
mig í samband við Eddu og út frá
sameiginlegum skoðunum og
draumum, varðandi sjúkdóminn,
varð Forma til.“
Stelpurnar sameinuðu krafta
sína og héldu af stað í baráttuna
með eljuna eina að vopni. „Við
ákváðum einfaldlega að byrja
strax og byrja einhvers staðar og
byggja svo á því,“ segir Edda.
„Við höfðum enga hugmynd um
hvað við vorum að gera til að
byrja með en við vissum hvað við
vildum og sóttumst eftir því.“
Fljótlega eftir að samtökin voru
stofnuð fóru stúlkurnar af stað
með fjölbreytt starf í formi hóp-
funda fyrir sjúklinga og aðstand-
endur, ráðgjafaþjónustu ásamt
því að halda málþing undir yfir-
skriftinni Ímynd 2005, sem nú
verður árlegur viðburður.
Alma og Edda segja Samfélags-
verðlaunin ómetanlega viður-
kenningu á starfi þeirra og því
málefni sem þær berjast fyrir.
„Fyrir okkur er þetta stærsta við-
urkenning sem við mögulega
gátum fengið. Þetta er viðurkenn-
ing á málefninu og starfsemi sam-
takanna og er okkur ómetanleg
sérstaklega þar sem viðurkenn-
ingin kemur frá samfélaginu. Nú
erum við loksins orðnar sýnilegar
og rödd okkar orðin hávær í sam-
félaginu,“ segir Alma og Edda er
sammála. „Þetta er miklu meira
en milljón króna virði. Þetta er
vítamínsprauta í æð og eflir okkur
til að gefa okkur hundrað prósent
í þau verkefni sem við tökumst á
við,“ segir Edda.
Alma og Edda vilja nýta verð-
launin til að efla starf samtak-
anna enn frekar. Þeirra stærsta
markmið er þó að opna meðferð-
arheimili á Íslandi og hafa þær
farið í rannsóknarferðir til Dan-
merkur til að kynna sér hvaða
meðferðarúrræði eru þar fyrir
hendi. „Okkar helsta vandamál í
dag er að við erum húsnæðislaus-
ar og getum ekki hýst starfsem-
ina. Við höfum verið að halda
fundina heima hjá okkur eða á
Verðlaunin eru meira
en milljón kró na virði
Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi,
hefur eytt sinni starfsævi í það að aðstoða fólk
til betra lífs. Toshiki var heiðraður fyrir starf sitt
gegn fordómum þegar Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins voru afhent.
„Að beita börn kynferðisofbeldi er sálar-
morð því að um leið og brotið er gegn þeim
breytist líf þeirra algerlega. Ofbeldið breyt-
ir sálinni og tilfinningunum og brýtur
niður sjálfsímyndina. Sé brotið endurtekið
verða afleiðingarnar verri og verri. Allir
vírarnir kippast í sundur og vaxa vitlaust
saman.“
„Fyrir okkur þýðir viðurkenningin að fólk vill viðbrögð við kynferðisofbeldi
og að við erum að gera rétt,“ segir Sigríður Björnsdóttir, sem ásamt systur
sinni Svövu stofnaði samtökin Blátt áfram. Samtökin vinna að forvörnum
gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Þau hlutu samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins fyrir framlag til æskulýðsmála.
VÍTAMÍNSPRAUTA Í ÆÐ Alma
Dröfn Geirdal og Edda Ýrr
Einarsdóttir eru aflið sem drífur
áfram Forma, samtök átröskun-
arsjúklinga á Íslandi. Þær segja
Samfélagsverðlaun Fréttablaðs-
ins ómetanlega viðurkenningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAMFÉLAGSVERÐLAUN