Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 89

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 89
52 4. mars 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 1 2 3 4 5 6 7 Laugardagur ■ ■ LEIKIR  14.00 ÍBV og Valur mætast í DHL- deild kvenna í handbolta í Eyjum.  14.00 Grótta og Haukar mætast í DHL-deild kvenna í handbolta á Seltjarnarnesi.  16.15 Stjarnan og Haukar mæt- ast í DHL-deild karla í handbolta í Garðabænum.  16.15 HK og Víkingur mætast í DHL-deild kvenna í handbolta í Digranesinu.  16.15 ÍBV og Fram mætast í DHL- deild karla í handbolta í Eyjum. ■ ■ SJÓNVARP  12.40 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsending frá leik WBA og Chelsea.  14.50 Á vellinum á Enska boltan- um. Upphitun fyrir leiki dagsins.  15.00 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsending frá leik Fulham og Arsenal.  17.15 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsending frá leik Liverpool og Charlton.  17.20 Meistaradeildin í handbolta á Sýn. Bein útsending frá viðureign í 8-liða úrslitunum.  18.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik í deildinni. Risadansleikur á Classic, Ármúla 5 laugardaginn 4. mars. Svo virðist sem íslenskir leikmenn séu ekki velkomnir lengur hjá Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en þýskir fjölmiðlar hafa greint frá því að dagar Sigfúsar Sigurðssonar hjá félaginu séu svo gott sem taldir eftir að það festi kaup á pólska línu- manninum Bartosz Jurecki, en hann verður fjórði línumaðurinn í herbúðum liðsins. Eftir að Alfreð Gíslason, nýráðinn landsliðsþjálfari Íslands, var rekinn frá félaginu fyrr í vetur virðist sem að öllum tengslum við Ísland hafi um leið verið rift því framtíð Arnórs Atlasonar hjá Magde- burg er einnig í óvissu og stendur honum til boða að fara eftir núverandi tímabil. „Ég er bara að skoða mín mál og mun taka ákvörðun fyrr eða síðar,“ sagði Arnór við Fréttablaðið í gær. „Ég ætla bara að bíða og sjá hvort það kemur upp eitthvað spenn- andi fyrir mig en þrjú önnur félög í þýsku úrvalsdeildinni hafa haft samband við mig og spurt hvort ég hafi áhuga á að koma,“ sagði Arnór en vildi þó ekki nafngreina þessi lið. „Þetta er allt á byrjunarstigi ennþá en efeitthvað spennandi kemur upp á borðið reikna ég með því að kýla á það, einfaldlega til þess að fá meiri spilatíma en hér hjá Magdeburg,“ segir Arnór. Hann bætir því við að einnig skipti máli hver verði ráðinn þjálfari hjá Magde- burg, en arftaki Alfreðs hefur ennþá ekki fundist. Arnór kveðst ekki alveg skilja stöðu mála hjá Magdeburg í augnablikinu og telur að félagið hafi ekki efni á því að missa Sigfús. „Það liggur fyrir að einn sterkasti varnarmaður liðsins er að hætta og ef Sigfús fer líka held ég að liðið geti lent í veru- legum vandræðum.“ SIGFÚS SIGURÐSSON OG ARNÓR ATLASON HJÁ MAGDEBURG: LÍKLEGA Á FÖRUM FRÁ FÉLAGINU Íslendingar í ónáð hjá Magdeburg > 22 útskrifast með UEFA A KSÍ útskrifaði í gær 22 þjálfara með UEFA A þjálfararéttindi en það er æðsta þjálfaragráða sem er í boði á Íslandi. Gráðan veitir réttindi til að þjálfa alla flokka á öllum aldri á Íslandi en hún er viðurkennd af 48 af 52 löndum sem eiga aðild að UEFA. Hæsta þjálfaragráða UEFA er UEFA PRO gráðan en KSÍ stefnir á að bjóða upp á hana innan fárra ára. Meðal þeirra sem útskrifuðust í gær með UEFA A gráð- una voru Elísabet Gunn- arsdóttir, Guðlaugur Baldursson, Gunnar Oddsson, Magnús Gylfa- son, Milan Stefán Jankovic, Sigurður Jónsson og Þorvald- ur Örlygsson. Íslandsmótið í borðtennis Íslandsmótið í borðtennis fer fram um helgina í TBR-húsinu við Gnoðarvog. Keppni hefst klukkan 10 í dag en leikið er til úrslita á sunnudaginn. Guðmund- ur Stephensen getur unnið sinn 100. Íslandsmeistaratitil en hann keppir í tvíliða-, tvenndar- og einliðaleik um helgina. HANDBOLTI Alfreð Gíslason mun skrifa formlega undir samning við HSÍ kl. 14 í dag en til stóð að það yrði gert í gærkvöld. Alfreð komst hins vegar ekki til landsins í tæka tíð vegna ófærðar í Þýskalandi og þurfti hann að sætta sig við að sitja fastur í flugvél í nokkra tíma í gærdag. Að sögn Einars Þorvarðarson- ar, framkvæmdastjóra HSÍ, er þungu fargi létt af mönnum þar á bæ með að vera búnir að ganga frá samningi við nýjan landsliðsþjálf- ara. Eins og Fréttablaðið hafði áður greint frá var Alfreð ávallt fyrsti kostur hjá HSÍ og tóku samningaviðræður tiltölulega skamman tíma eftir að Alfreð fékk sig lausan undan samningi sínum við Magdeburg fyrr í vikunni. „Það var aldrei rætt við neina aðra en Alfreð,“ staðfesti Einar við Fréttablaðið í gær. Samningur Alfreðs við HSÍ mun gilda til 1. júlí 2007, en þá er fyrirhugað að hann taki við liði Gummersbach í þýsku úrvals- deildinni. Athygli vekur að Alfreð mun sinna landsliðsþjálfarastarfi sínu frá Þýskalandi, þar sem hann verið búsettur undanfarin ár. Verður hann þar með fyrsti lands- liðsþjálfarinn sem ekki er búsett- ur á Íslandi. „Við töldum að þetta væri vel hægt. Kjarni liðsins leik- ur í Þýskalandi og svo verður hann vonandi duglegur að koma til landsins og fylgjast með gangi mála hér heima,“ sagði Einar. Auk þess að þjálfa A-landsliðið mun Alfreð koma að ýmsum öðrum þáttum í starfsemi HSÍ og segir Einar að til standi að nýta krafta hans mjög víða. „Við ætlum að nota hann í uppbyggingu á ákveðinni framtíðarsýn sem við við höfum,“ sagði Einar án þess að vilja fara nánar út í hvað það fæli nákvæmlega í sér. Ekki er búið að ganga frá ráðn- ingu aðstoðarþjálfara landsliðsins en aðspurður útilokaði Einar ekki að sá sem yrði ráðinn í það starf myndi vera hugsaður sem fram- tíðararftaki Alfreðs. „Þetta er eitt- hvað sem hefur lítið verið rætt en að sjálfsögðu er næsta skref að huga að framtíð liðsins eftir Alfreð.“ Alfreð Gíslason er einn besti handboltamaður Íslands frá upp- hafi og eftir glæstan leikmanna- feril þar sem hann var m.a. atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni tók Alfreð sín fyrstu skref sem þjálfari með KA á Akureyri. Þaðan fór hann til Hameln í Þýska- landi og síðar Magdeburg, sem hann stjórnaði m.a. til sigurs í Meistaradeildinni í handbolta. - vig Alfreð ráðinn landsliðsþjálfari Handknattleikssamband Íslands hefur komist að samkomulagi við Alfreð Gíslason um að hann taki við stjórn íslenska landsliðsins í handbolta. Alfreð mun stjórna liðinu fram til 1. júlí 2007. ALFREÐ GÍSLASON Hans fyrsta alvöruverkefni sem þjálfari íslenska landsliðsins eru tveir leikir gegn Svíum um sæti á HM í Þýskalandi sem fram fer í byrjun næsta árs. Hér sést hann fagna sigrinum í Meistaradeild Evrópu með Magdeburg vorið 2002. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES TENNIS Það verða tveir stigahæstu tennisleikarar heims í karlaflokki sem mætast í úrslitaleik Opna Dubai-mótsins um helgina. Rafael Nadal vann sér sæti í úrslitum eftir sigur á Þjóðverjanum Rainer Schuettler 6-4 og 6-2, en Federer lagði Rússann Mikhail Youzhny 6- 2 og 6-3 án þess að sýna nein glæsitilþrif. Þeir félagar hafa ekki mæst síðan í undanúrslitunum á Opna franska meistaramótinu í fyrra, en þá hafði Spánverjinn ungi betur og vann síðar sigur á mótinu. Í kvennaflokki mætast þær Amelie Mauresmo og Nadia Pet- rova í úrslitaleiknum. - hþh Opna franska mótið í tennis: Tveir bestu í heimi mætast ROGER FEDERER Fagnar hér sigrinum í Opna ástralska mótinu. Með sigri í Opna franska verður hann handhafi allra fjögurra alslemmumótanna.NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.