Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 95
4. mars 2006 LAUGARDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÚNA BÚIÐ
opið alla laugardaga 10-14
GLÆNÝ LÚÐA
HUMAR
TÚNFISKUR
LÁRÉTT
2 hvetja 6 ógrynni 8 persónufornafn 9
skarð 11 til dæmis 12 reyna 14 hroki 16
hólmi 17 snúningshraði 18 leyfi 20 ekki
heldur 21 sjávardýr.
LÓÐRÉTT
1 rusl 3 í röð 4 bætiefni 5 á móti 7
anddyri 10 hélt á brott 13 starfsgrein 15
pappír 16 F 19 klaki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 örva, 6 of, 8 sín, 9 rof, 11 td, 12
prófa, 14 dramb, 16 ey, 17 gír, 18 frí, 20
né, 21 fisk.
LÓÐRÉTT: 1 sorp, 3 rs, 4 vítamín, 5 and, 7
fordyri, 10 fór, 13 fag, 15 bréf, 16 eff, 19 ís.
HRÓSIÐ
...fá Edda Ýrr Einarsdóttir og
Alma Geirdal, forsvarsmenn
Forma, en þær hlutu Samfélags-
verðlaun Fréttablaðsins sem veitt
voru við hátíðlega athöfn síðasta
fimmtudag.
Hvítir skór.
Ganga bara
upp ef þú ert
alvöru rokkabill-
írokkari, annars er
þetta hræðilegt. Bombay TV. Farðu inn á vefsíðuna
www.grapheine.com og textaðu
þínar eigin Bollywood-myndir.
Alger snilld.
Gamaldags blúndur. Karl Lagerfeld
og Jón Sæmundur eru báðir með
þetta trend á hreinu.
The Stooges. Iggy Pop
á leiðinni til landsins og
allir vilja vera hundar.
Húðlitaðar sokkabuxur. Nei, nei, nei, nei
Teiknaðar augabrúnir. Yfirmáta hall-
ærislegt. Vertu náttúruleg/ur.
Shandi Sullivan, sem margir
Íslendingar þekkja úr sjónvarps-
þættinum America´s Next Top
Model, mun troða upp sem plötu-
snúður á Gauki á Stöng í kvöld
ásamt karókíhópnum Karaoke
Killed the Cat frá New York.
Þau lentu hér á landi í gær-
morgun og ætla að dvelja hérna í
viku til að kynnast betur landi og
þjóð. Upphafsmaður sýningarinn-
ar, hinn gulltennti Chris Ehrman,
segir að Karaoke Killed the Cat sé
öðruvísi en allt annað. „Þeir sem
vilja taka þá áhættu á að sjá eitt-
hvað sem hljómar ekkert
skemmtilegt en er það samt ættu
að koma að sjá okkur,“ segir hann
og Matt Coats, félagi hans, bætir
við: „Þetta er eins og danspartí
þar sem allir eiga möguleika á að
verða stjörnur,“ segir hann.
Sýningin gengur þannig fyrir
sig að Shandi hitar upp með því að
spila tónlist frá áttunda áratugn-
um og síðan taka þeir Coats og
Ehrman við og syngja tvö karókí-
lög. Eftir það er röðin komin að
fólkinu í salnum. „Fólk er ekki
eins taugaveiklað eftir að við
höfum lokið okkur af. Við erum
frekar aulalegir uppi á sviðinu og
fólk hugsar: Ef þessir líta svona
illa út þá hljótum við að geta
þetta,“ segir Coats og Ehrman
bætir við: „Við erum ekkert með
stórkostlegar raddir en þetta
snýst ekki um það heldur að hafa
brennandi áhuga á þessu.“
Þeir viðurkenna að flestir sem
komi upp á svið séu búnir að
drekka í sig kjark. „Að vera fullur
hjálpar mikið,“ segir Ehrman og
hlær. „Ég drekk ekki en það eru
fáir sem fara upp á svið án þess
að vera búnir að drekka og þú
getur alltaf séð þegar áfengið fer
að segja til sín. Áfengi og karókí
hefur alltaf blandast vel saman og
við viljum ekki hrófla við því,“
segir hann í léttum dúr.
Shandi játar að líf hennar hafi
breyst gífurlega síðan hún tók
þátt í America´s Next Top Model.
„Ég vann í stórmarkaði þar sem
ég raðaði í hillur en komst í þátt-
inn eftir að hafa talað við fram-
leiðandann í tíu mínútur. Ég bjó í
smábæ í miðjum Bandaríkjunum
en flutti til New York fyrir tveim-
ur árum og hef verið þar síðan,“
segir Shandi.
Hún segist ekki hafa metnað í
að verða fyrirsæta í framtíðinni
þó að hún starfi við það stöku
sinnum. „Eftir þáttinn gerði ég
samning við Trump Model
Management og var hjá þeim í
eitt og hálft ár og ákvað þá að ein-
beita mér að því að vera plötu-
snúður.“
Shandi var þriðja síðasta stúlk-
an sem var látin fara heim úr
sjónvarpsþættinum og náði því
lengra en flestar stöllur sínar.
Hún segist ekki hafa orðið fyrir
vonbrigðum með brotthvarfið.
„Ég hafði það á tilfinningunni að
það myndi gerast. Mér fannst
dómararnir halda að ég fyndi mig
ekki í þættinum, sem var rétt því
það var ýmislegt persónulegt í
gangi hjá mér á sama tíma. Ég
held meira að segja að ég hafi
verið sú eina sem grét ekki þegar
ég var látin fara,“ segir hún.
Gaukurinn opnar klukkan 22.00
í kvöld og er miðaverð 500 krón-
ur.
freyr@frettabladid.is
SHANDI SULLIVAN Á ÍSLANDI: FYRIRSÆTA OG PLÖTUSNÚÐUR
Sú eina sem grét ekki
SHANDI OG FÉLAGAR Fyrirsætan og plötusnúðurinn Shandi Sullivan er komin til Íslands ásamt vinum sínum í Karaoke Killed the Cat. Frá
vinstri: Joel Lawrence, Matt Coats, Chris Ehrman og Shandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tökur á þættinum Bikinimódel árs-
ins, sem svipar til hins vinsæla
America´s Next Top Model, eru
hafnar hjá sjónvarpsstöðinni Sirk-
us.
Í tilefni af þættinum verður
haldið sjóðheitt partí á Pravda í
kvöld. Þar mun gestadómarinn
Ledon velja fimmtán íslenskar
stelpur til að fara til Spánar í MTV-
partí með rapparanum Kanye West
um næstu helgi.
Hluti af stelpunum sem keppa
innbyrðis í þættinum mun fara til
Spánar en einnig verða nokkrar
aðrar föngulegar stelpur teknar
með í ferðina.
„Þetta verður VIP-eftirpartí
eftir tónleikana með Kanye West,“
segir gestadómarinn Ledon og býst
við því að sjá fögur fljóð frá Íslandi.
„Þær eru allt öðruvísi en stelpurnar
sem ég er vanur að sjá og þetta
verður örugglega mjög flott. Allir
vita hversu margt fallegt kvenfólk
kemur frá Íslandi,“ segir hann.
„Vanalega höfum við talað við
umboðsskrifstofurnar Ford eða
Elite um að útvega okkur stelpur í
þessi partí en núna vildum við prófa
eitthvað nýtt og hlökkum bara mikið
til að sjá hvað verður.“ -fb
Fimmtán stelpur í MTV-partí
HLUTI STÚLKNANNA Þessar stúlkur verða á meðal þeirra sem mæta á Pravda í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN BLÖNDAL
FRÉTTIR AF FÓLKI
Breski rithöfundurinn og kennarinn James Skidmore sagði frá því í
Fréttablaðinu fyrr í vikunni að hann
leitaði nú að bresku forlagi með það
fyrir augum að fá almennilega dreifingu
á skáldsögu sinnar um baráttu Íslend-
ingasöguhetjunnar Grettis Ásmundar-
sonar við bölvun, þunglyndi og grimma
víkinga í London samtímans. Skidmore
ætlar að mæta, ásamt umboðsmanni
sínum, á hina risavöxnu bókamessu
London Book Fair um helgina og reyna
að vekja athygli á The Saga of Grettir
Ásmundarsen. Hann ætlar að hafa
úrklippu með umfjöllun Fréttablaðsins
um bókina meðferðis og útilokar ekki
að það geti nýst honum að útbreiddasta
dagblað Íslands hafi sýnt
verki hans áhuga.
Íslenskir forleggj-
arar verða að
sjálfsögðu einnig
á bókamessunni
þannig að það er
aldrei að vita
nema Skid-
more takist
að selja
þeim bók-
ina, sem
óneitan-
lega er
beintengd
menningar-
arfi Íslendinga.
Og enn af bókum og fjöldasamkom-um tengdum þeim. Bókamark-
aði Félags íslenskra bókaútgefanda í
Perlunni lýkur í dag en þar hafa sölumet
verið slegin nánast daglega frá opnun.
Salan hefur suma dagana verið tvöfalt
meiri en í fyrra en það vekur eftirtekt
að barnabækur hafa selst sérstaklega
vel. Talið er að um 40.000 bækur hafi
selst um síðustu helgi og útgefendur
hafa ekki haft undan að moka bókum
af lagerum sínum yfir í Perluna. Jóhann
Páll Valdimarsson, hjá JPV
útgáfu, jók svo enn á
hamaganginn þegar hann
bauð bókamarkaðsgest-
um 50 eintök af Ísland í
aldanna rás með
veglegum
afslætti.
Bækurnar
seldust
upp á átta
mínútum
og lá að
sögn við
handa-
lögmálum
þessar
dramatísku
mínútur.
- þþ
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8