Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 84
LAUGARDAGUR 4. mars 2006 47
1.499
Kauptu Pink Panther á DVD í BT
og þú færð bíómiða á nýjustu
myndina með í kaupbæti*
* Gildir meðan birgðir endast
Bíómiði
á The Pink
Panther
FYLGIR
Les panthères ne sont
pas les seules qui
peuvent être roses!!!
Með
íslens
kum
texta
í
fyrsta
sinn
Jenny Lewis þekkja sennilega
ekki allir en hún er söngkona
hljómsveitarinnar Rilo Kiley. Hún
er einnig leikkona og hefur leikið í
þónokkrum kvikmyndum, þáttum
og auglýsingum og var meðal ann-
ars í mjög litlu hlutverki í mynd-
inni Pleasantville. Árið 1999 hóaði
hún nokkrum vinum sínum saman
og þau stofnuðu hljómsveitina
Rilo Kiley sem hefur fengið
þónokkra athygli. Hún er einnig
bakraddarsöngkona í hljómsveit-
inni The Postal Service en mestu
athyglina fékk hún snemma á
þessu ári þegar hún gaf út sóló-
plötuna Rabbit Fur Coat.
Jenny hefur fengið nokkra
athygli fyrir skemmtilegan fata-
stíl og eins og sést á myndunum á
hún hana vel skilið. Hún klæðir
sig ekki eins og hinn týpíski rokk-
ari og er mikið í stuttum pilsum
eða kjólum og háum stígvélum á
sviði. Kjólarnir eru oft í krúttlegri
kantinum en þeir verða skemmti-
lega rokkaðir þegar Jenny er
komin með gítarinn framan á sig
og míkrafóninn í höndina.
Krúttlegur rokkari
SYNGJANDI SKVÍSA Þessi kjóll gæti verið
keyptur í búð sem selur notuð föt.
KJÓLL Sætur kjóll og beltið minnir á Marni.
ROKKARI Jenny er ósjaldan í annaðhvort
stuttu pilsi eða stuttbuxum á tónleikum. Á TÓNLEIKUM Í krúttlegum kjól.
Nýr ilmur frá hönnuðinum
Roberto Cavalli er kominn á mark-
að. Um er að ræða bæði herra og
dömuilm og heita þeir Just Cavalli
Him og Just Cavalli Her. Ilmirnir
verða kynntir í versluninni Maður
og kona á milli klukkan fjögur og
sex í dag.
Dömuilmurinn er frískandi og
hressandi og aðaluppistaðan í
honum er bergamot, kanill, bamb-
uslauf, liljur, apríkósur, jasmín,
gyllt amber, vanilla, cedarviður og
musk. Ilmurinn er tælandi og um
leið ákveðinn eins og hönnun
Roberto Cavalli er jafnan.
Herrailmurinn er mildur viðar-
ilmur og uppistaðan er bergamot,
rósmarín, engifer, kardimomma,
kóríander, cedarviður og musk.
Fötin hans Cavallis eru í miklu
uppáhaldi hjá mörgum stjörnun-
um enda gerir hann
mikið út á glamúr
og glæsileika í
hönnun sinni.
Hann notar mikið
dýramynstur og
feldi í flíkur sínar
og sparar sjaldan
litadýrðina. Meðal
kúnna hans eru til
dæmis Jennifer
Lopez, Lenny Krav-
itz, Mary J. Blige og
síðast en ekki síst
Beckham-hjónin.
Victoria Beckham er gyðjan hans
Cavallis og hefur oftar en einu
sinni tekið þátt í sýningum hans.
Hún er nánast undantekningalaust
í glæsikjólum frá honum þegar
hún mætir á fína viðburði.
Ilmvatnsparið
hans Cavallis
HERRATÍSKA Herraflíkurnar eru ekki síður
töff en dömuflíkurnar.
SUMARLÍNAN Litríkt og glæsilegt lúkk úr
sumarlínu Cavallis.
JUST
CAVALLI HER
Dömuilmur-
inn er frískur
og hressandi.
JUST CAVALLI
HIM Nýr herra-
ilmur úr smiðju
hönnuðarins.