Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 40
][ Fótboltaferðir geta verið ógleymanlegar. Það er einstök upplifun fyrir unnendur fótbolta að fara á leik með uppáhaldsliðinu sínu á heimavelli. Dagný Benediktsdóttir býr í Stokkhólmi þar sem hún stundar nám í umferðarverk- fræði við Konunglega tækni- háskólann. Hún segir borgina heillandi og henni leiðist ekki dvölin enda af nógu að taka. „Ég kann mjög vel við Stokkhólm, sem segja mætti að sé lítil stór- borg,“ segir Dagný Benediktsdóttir nemi í umferðarverkfræði við Kon- unglega Tækniháskólann í Svíþjóð. „Stokkhólmur er oft kallaður Fen- eyjar norðursins þar sem borgin stendur á fjórtán eyjum,“ segir Dagný, sem býr sjálf á eyjunni Kungsholm en hana umlykur falleg strönd. „Fólkið hér er mjög vinalegt og þegar sænskir jafnaldrar mínir heyra að ég sé frá Íslandi þá slá þeir um sig með orðunum „þungur hníf- ur“ úr myndinni Hrafninn flýgur sem er víst sýnd í öllum barnaskól- um landsins,“ segir Dagný og hlær. Dagný segir auðvelt að komast á milli staða með almenningssam- göngum á öllum tímum sólarhrings- ins. Aðspurð hvað sé skemmtilegast að gera í Stokkhólmi hlær Dagný og segir að sér finnist hún eiga svara sem svo að skemmtilegast sé að vera í skólanum og læra. „Þar fyrir utan þá er gaman að ganga um borg- ina sem hefur ótal mörg græn svæði sem og „blá“ svæði sem sjórinn og stöðuvatnið Mälaren mynda og gera borgina svo heillandi. Einnig er hægt að fara í siglingu um skerja- garðinn, í óperuna, á skauta eða þræða H&M búðirnar sem eru hér á hverju strái,“ segir Dagný. „Samfé- lagið hér er mjög fjölþjóðlegt og því mikið úrval af veitingastöðum sem bjóða upp á framandi mat frá fram- andi löndum.“ Dagný er hæstánægð með nýja dvalarstaðinn sinn enda segir hún af nógu að taka og er Stokkhólmur orðin ein af hennar uppáhaldsborgum. johannas@frettabladid.is Feneyjar norðursins Stokkhólmur er sannarlega glæsileg og heillandi borg. Fremsta húsið á myndinni er Nordiska museet, norræna safnið, á Djurgården-eyju, þeirri sömu og Skansen og Vasasafnið standa á. Stortorget í Gamla stan í Stokkhólmi. ... göngutúr um gamla bæinn, Gamla stan, þar sem höllin er. Litlar og þröngar hellulagðar götur liggja milli gamalla og fallegra húsa og þar má finna lítil og sjarmerandi kaffihús og verslanir. ... Wirströms á þriðjudags- kvöldum sem er bara í Gamla stan. Þar koma saman tónlistar- menn úr ýmsum áttum og spila af fingrum fram. ... Skansen sem má segja að sé húsdýragarður og Árbæjarsafn Svía. Þar eru elgir, birnir, kýr, kindur, hestar og fleira og fólk sem bregður sér í hlutverk bak- ara, skósmiða, glerlistamanna og fleira og sýna hvernig hin ýmsu störf voru unnin í gamla daga. ... Vasasafninu sem byggt er utan um Vasa skipið sem sökk á jómfrúarsiglingu sinni 1628 og var híft upp úr sjónum 1961. Mæli með að byrja heimsókn- ina á því að horfa á heimildar- mynd um skipið og uppgröft þess og ganga svo um safnið í fylgd leiðsögumanns til að fá allar helstu staðreyndirnar um þennan merkilega fund. ... Tjejmilen. Tíu kílómetra kvennahlaup um Stokkhólms- borg síðasta sunnudaginn í ágúst. Tilvalin leið til að skoða borgina. ... veitingastaðnum Chakula. Suður- og Austur-Afrískur veit- ingastaður á Kungsholmen. Antilópu-carpaccio sem for- réttur klikkar ekki. ... veitingastaðnum Indian Curry House. Látlaus indversk- ur staður á Kungsholmen sem býður upp á mjög góðan mat á námsmannahæfu verði. DAGNÝ MÆLIR MEÐ... Vinsælt hefur verið hjá pörum undanfarin ár að láta gefa sig saman í rómantískri ferð til Íslands. Um átta pör giftu sig um borð í flugvél 14. febrúar síðastliðinn. Tilefnið var Valentínusardagur- inn. Pörin voru frá Hollandi og eiga það sameiginlegt að hafa verið gefin saman um borð í vél Icelandair sem var á leið frá Hol- landi til Íslands. Eftir lendingu var haldið beint í Bláa lónið þar sem snætt var og látið fara vel um sig í lóninu. Brúð- hjónin gistu svo í Reykjavík í tvær nætur áður en þau héldu heim á leið. Giftingar í flugvél Gifting í flugvél er frumleg leið. Dagný Benediktsdóttir, nemi, býr í litlu stórborginni Stokk- hólmi sem hún segir heillandi og viðburðaríka. Hjá Óvissuferðum.is er hægt að panta margar skemmtileg- ar ferðir fyrir stóra sem smáa hópa. Hópbílar ehf. halda úti starfsemi Óvissuferða.is en á hverju ári fer fyrirtækið með hundruð hópa í óvissuferðir víða um landið. Mis- munandi er hvernig hóparnir eru samsettir sem kjósa að halda á vit örlaganna en mörgum finnast óvissuferðir skemmtilegur kostur fyrir gæsa- og steggjadaga, starfs- mannaferðir, útskriftarferðir eða annað álíka. Óvissuferðir.is geta sett saman ferð að eigin vali og reyna að koma til móts við óvissuferðamenn eftir bestu getu. Einnig er boðið upp á fyrirfram skipulagðar ferðir og má þar nefna Desperate House- wives-ferðina sem hugsuð er fyrir kvennahópa en ferðin snýst um dekur, létta afþreyingu og mat. Óvissuferðin Með reistan Makka er skemmtilega samsett en þá er farið er í útreiðartúr, settar upp hestaþrautir og að endingu er farið í heita pottinn og borðað. Fjölmargar aðrar ferðir eru í boði sem vert er að skoða sér í lagi þar sem páskar og sumar eru handan hornsins og þá þarf að létta lund og auka hópefli. Óvissuferðir um landið allt Óvissuferðir eru skemmtileg leið til að komast frá amstri dagsins og skemmta sér vel í faðmi sveitar. Golfbílar …… Golfbílar…… Lexa býður uppá golfbíla frá Bandaríkjunum, Bílarnir eru uppgerðir af fagmönnum. Lexa býður einnig uppá yfirbyggingar með rennihurðum á allar tegundir Golfbíla, Kerrur fyrir golfbílinn og mikið úrval aukahluta Lexa veitir alla almenna þjónustu fyrir Golfbílinn þinn,, s.s. Skipta um olíu, reimar, kerti,þrif og fl. E-Z-GO.....Club Car…..Yamaha…..Melex…..City Car Sími 897 1100 www.lexa.ws
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.