Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 16
4. mars 2006 LAUGARDAGUR
Eyjólfur Sverrisson þreytti frum-
raun sína með íslenska landsliðið í
knattspyrnu í vikunni. Undir
stjórn Eyjólfs í fyrsta sinn beið
íslenska liðið lægri hlut fyrir
Trínidad og Tóbagó í leik sem fram
fór í London en fram undan er
undankeppni fyrir EM þar sem
Ísland er í gríðarlega öflugum
riðli. Fær Eyjólf-
ur það hlutverk
að laða fram það
besta í leikmönn-
um liðsins í þeirri
keppni.
Eyjólfur G.
Sverrisson fædd-
ist 3. ágúst árið
1968 á Sauðár-
króki og sleit þar
barnsskónum.
Hann vakti
snemma athygli
fyrir afburða-
íþróttahæfileika
og á sínum yngri
árum var Eyjólf-
ur mikill afreks-
maður í nánast
öllu því sem
hann tók sér
fyrir hendur.
Hann var mjög
góður sundmað-
ur og setti fjölda
meta í frjálsum
íþróttum auk
þess sem miklir
hæfileikar í
flestum boltaí-
þróttum voru
honum í blóð
bornir.
Mestur var
áhuginn á fót-
bolta og körfu-
bolta og var Eyj-
ólfi einkum spáð
glæstum frama í
síðarnefndu
íþróttinni. Strax
á táningsaldri
var Eyjólfur far-
inn að spila með
meistaraflokki
Tindastóls, á
sumrin í fótbolta
og á veturna í
körfubolta, en
hann þótti mjög
þroskaður miðað við aldur og með
skrokk á við fullvaxta karlmann.
Hann þótti gríðarlega efnilegur í
báðum íþróttunum og í kringum
tvítugt var hann fastamaður í u-21
árs landsliðum Íslands í þeim
báðum.
Haustið 1989 spilaði Eyjólfur
unglingalandsleik sem átti eftir að
breyta lífi hans. Það var í fótbolt-
anum, gegn Finnum á Akureyrar-
velli, og skoraði Eyjólfur öll mörk-
in í 4-0 sigri Íslands. Útsendarar
frá Stuttgart sáu til hans og
skömmu síðar hafði Eyjólfur
skrifað undir samning við þýska
stórliðið.
21 árs gamall hóf Eyjólfur
atvinnumannaferilinn sem átti
eftir að spanna næstum fjórtán ár.
Hann varð meistari með Stuttgart
árið 1992 en fór til Besiktas í Tyrk-
landi veturinn 94-95 þar sem hann
varð einnig meistari. Haustið 1995
hélt Eyjólfur aftur til Þýskalands,
nánar tiltekið til höfuðborgarinn-
ar Berlínar, þar sem hann átti eftir
að leika stórt hluverki í einhverri
ævintýralegustu uppbyggingu
félagsliðs í fótbolta á síðari árum.
Hertha Berlin lék í 2. deildinni
þegar félagið fékk Eyjólf til sín en
aðeins fjórum árum síðar sigraði
liðið AC Milan í Meistaradeild
Evrópu.
Sem knattspyrnumaður naut
Eyjólfur ávallt gríðarlegrar virð-
ingar, af samherjum sínum, þjálf-
urum og fjölmiðlum um alla Evr-
ópu. Kunnugir segja að það sé ekki
síst vegna þess að Eyjólfur hafi
ávallt borið af sér góðan þokka,
hann sé kurteis og lunkinn í mann-
legum samskiptum. Kannski
einum of segja sumir, en frægt er
orðið þegar Eyjólfur var kosinn
kynþokkafyllsti karlmaðurinn í
Berlín á sínum tíma. Eyjólfur
lagði takkaskóna á hilluna árið
2003 og til marks um hversu vel
hann var liðinn í Berlín ákváðu
forráðamenn Herthu að halda
kveðjuleik honum til heiðurs.
Hann fór fram hinn 27. júlí árið
2003 fyrir framan 35 þúsund
áhorfendur og batt formlega enda
á feril Eyjólfs, án þess að hann
spilaði nokkru sinni í efstu deild á
Íslandi.
Farsælar ákvarðanir einkenndu
leikmannaferil Eyjólfs. Nánast
alltaf hefur hann verið byrjunar-
liðsmaður í sínum liðum og alltaf
náði hann að finna sinn stað í öllum
liðum. Fjölhæfni hans sem leik-
maður hafði þar mikið að segja en
auðvitað spilaði
heppni einnig stóra
rullu - sem dæmi
má nefna slapp
Eyjólfur lygilega
vel við alvarleg
meiðsli. „Eyjólfur
er farsæll að eðlis-
fari og virðist allt-
af taka réttar
ákvarðanir,“ sagði
einn viðmælenda
blaðsins.
Það er tekið
mark á Eyjólfi
þegar hann tekur
til máls og var það
ekki síst þess
vegna sem honum
var treyst fyrir því
ábyrgðarhlutverki
að stjórna A-lands-
liðinu í fótbolta
þrátt fyrir að búa
yfir afar takmark-
aðri reynslu sem
þjálfari. Landsliðs-
ferill Eyjólfs er
einn af þeim glæsi-
legri í sögunni;
hann lék 66 lands-
leiki og skoraði í
þeim tíu mörk auk
þess sem hann bar
fyrirliðabandið alls
nítján sinnum.
Utan vallar er
Eyjólfur mikill
fjölskyldumaður.
Hann er harðgift-
ur Önnu Pálu
Gísladóttur, sem
hann kynntist á
sínum tíma á Sauð-
árkróki, og saman
eiga þau tvo syni,
sex og fimmtán
ára gamla. Eyjólf-
ur er mikill veiði-
maður og þykir
fátt betra en að fá
útrás með annað hvort veiðistöng-
ina eða riffilinn að vopni. Hann er
orðinn vel liðtækur kylfingur á
stuttum tíma og þá hefur áhugi
hans á hestamennsku farið sívax-
andi með hverju árinu sem líður.
Þegar Eyjólfur fær þörf fyrir að
komast út fyrir hasarinn í höfuð-
borginni finnst honum fátt betra
en að fara norður á heimaslóðir og
sinna þessum áhugamálum
sínum.
Þeir sem ólust upp með Eyjólfi
voru ávallt sannfærðir um að hann
myndi ná langt í því sem hann
tæki sér fyrir hendur, ekki síst
vegna óbilandi metnaðar hans og
þess hugarfars sem hann hefur
tamið sér í gegnum tíðina. Þeir
sömu segja að þjálfarastarfið ætti
ekki að vera nein undantekning
þar - Eyjólfur sé, og verði líklega
alltaf, einfaldlega góður í öllu sem
hann taki sér fyrir hendur.
MAÐUR VIKUNNAR
Farsæll að eðlisfari
EYJÓLFUR SVERRISSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI Í FÓTBOLTA
AUGL†SINGASÍMI
550 5000Sögurnar, tölurnar, fólki›.
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag?
með
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 54. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006
Helgarblað
RAUTT EÐAL GINSENGSkerpir athygli - eykur þol1. Meiri virkni.2. Mun meiri andoxunarefni.3. Minni líkur á aukaverkunum.4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
Virka m.a. gegn:Einbeitingarskorti, streitu,þreytu og afkastarýrnunEinnig gott fyrir aldraða!
www.ginseng.is
ARNÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR
í viðtali við Önnu Kristine
segir söguna alla
Fæddist blinduren dreymir um að fljúga eins og pabbi
Ný íslensk
spennumynd
verður til
KÖLD SLÓÐ
Heldur upp á
indverskan mat
Leikkona
slasaðist
við tökur
Bls. 4
Bls. 20–21
Bls. 42
Bls. 52
Bls. 32–34
DRAUMAR
ERU AF
HINU GÓÐA
Kjólar og
gleraugu
í sumar
litli
Már
FELIX BERGSSON
D
V-
M
yn
d
H
ar
i
ARNÞRÚÐUR
KARLSDÓTTIR
segir söguna
alla í viðtali
við Önnu
Kristine
helgar augl 3.3.2006 20:46 Page 3