Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 88
FRÉTTIR AF FÓLKI Kvikmyndin King Kong, sem ekki hlaut náð fyrir augum Óskarsverð- launaakademíunnar, hefur verið tilnefnd til fimm verðlauna hjá kvikmyndatímaritinu Empire. Er hún meðal annars tilnefnd sem besta myndin en henni var leikstýrt af Peter Jackson. Pride & Prejudice, Crash og Wallace & Gromit: The Curse of the Were-Rabbit fengu fjórar tilnefningar hver. Það eru lesendur tímaritsins í Bretlandi sem kjósa sigurvegarana. Verðlaunin verða afhent 13. mars. Orðrómur er uppi um að rokkekkjan Courtney Love og leikstjóri mynd- arinnar Capote, Bennett Miller, séu saman. Nýverið sáust þau láta vel hvort að öðru í teiti í Holly- wood og ýtti það stórlega undir orðróminn. Talsmaður leikstjórans segir aftur á móti að þau séu aðeins góðir vinir. Leikkonan Teri Hatcher hefur mikla sektarkennd yfir því að hafa komið róti á líf dóttur sinnar Emerson eftir að hún skildi við eiginmann sinn Jon Tenney fyrir tíu árum. Emerson var fimm ára þegar þau skildu og hefur hún flakkað töluvert á milli foreldranna allar götur síðan. Hatcher telur þó að dóttirin hafi það ágætt þrátt fyrir allt. Breska poppstjarnan fyrrverandi Gary Glitter hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á tveimur stúlkum. Glitter var fundinn sekur um að hafa misnotað stúlkurnar í Víetnam þegar þær voru ellefu og tólf ára. Glitter, sem er 61 árs, sagðist vera saklaus og að dómurinn væri eitt stórt samsæri. Myndlistarfólkið Ragnheiður Georgsdóttir og Júlíus Samúels- son opna samsýningu á verkum sínum á Sólon í dag. Spákonan Sig- ríður Klinginberg er sýningar- stjóri en hún leiddi listafólkið saman fyrir um það bil tveimur árum og hugmyndin um samsýn- ingu skaut í kjölfarið fljótlega upp kollinum. „Ragga Gogga ólst upp í Vest- mannaeyjum og býr yfir mjög óvenjulegri alheimsorku,“ segir Sigríður. „Myndirnar hennar eru mjög áhrifamiklar og dulrænar,“ segir spákonan sem veit lengra en nef hennar nær í þessum efnum. „Myndunum hennar fylgir ákveð- in heilun sem hefur haft mikil áhrif á mig.“ Hvað Júlla varðar segir Sigríð- ur að hann sé óheflaður kraftur úr Keflavík. „Júlli hefur tveggja heimsálfa sýn en hann hefur um árabil búið í svörtustu Afríku. Þessir ólíku eðlisþættir hans hafa gert hann að þessum óvenjulega og framsýna listamanni sem hann er.“ Sigríður bætir því við að myndir hans séu engu líkar og spáir því að hann muni láta mikið að sér kveða. Sýningin opnar klukkan 17 á Sólon og Sigríður lofar gestum magnaðri upplifun sem hressir bæði hug og hjörtu. Alheimsorka á Sólon RAGNHEIÐUR GEORGSDÓTTIR OG JÚLÍUS SAMÚELSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.