Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 77

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 77
Sumum þykir hún ofmetin og fyrirsjáanleg, aðrir segja allt geta gerst á Óskarnum, en þetta er hátíðin sem allir bíða eftir. 78. verðlaunin verða afhent í Kodak-höllinni annað kvöld en Óskarinn er sennilega frægustu kvikmyndaverðlaunin, sama hvað tautar og raular. Reyndar er rangt að kalla þetta Óskarsverðlaun því réttnefni styttunnar er „Academy Award of Merit“ eða Heiðursverð- laun Akademíunnar. Tvennar sögur fara af nafngift- inni Óskar en lífseigasta minnið er sennilega um bókasafnsvörðinn Margaret Herrick sem þótti stytt- an vera lík Óskari frænda sínum, hver svo sem það er. Önnur saga og öllu skemmtilegri er hins vegar sú að leikkonan Bette Davis hafi skírt styttuna í höfuðið á fyrsta eiginmanni sínum. Jon Stewart sér um að bjóða gesti velkomna og fetar þar með í fótspor Steve Martin, Whoopi Goldberg, Billy Crystal og Johnny Carson að ógleymdum David Lett- erman, sem hristi allverulega upp í skraut- klæddum stjörnunum með hnyttn- um orðaleikjum um Opruh Win- frey. Hollywood er loksins að jafna sig eftir að Peter Jackson jarðaði keppinauta sína með Hringadrótt- inssögu árið 2003. Verðlaunin í fyrra þóttu bragðdauf og átti Million Dollar Baby ekki marga fylgismenn meðal kvikmyndaá- hugamanna en flestir reiknuðu með að Martin Scorsese myndi loks standa uppi sem sigurvegari. Árið í ár er hins vegar ákaflega bitastætt, fullt af ádeilu og sögu- legum ágripum að ógleymdri ein- hverri eftirminnilegustu ástar- sögu ársins. Besta myndin Brokeback Mountain: Það kæmi mörgum á óvart ef samkynhneigðu smalastrákarnir hans Ang Lee færu ekki heim með Óskari frænda. Hún var valin besta myndin á Golden Globe og Bafta. Helsti keppinautur Capote: Mögnuð frásögn af sög- unni á bak við eina vinsælustu bók bandarískrar bókmenntasögu. Leikurinn þykir með eindæmum góður og myndin er sú eina sem gæti „hugsanlega, kannski“ skák- að Brokeback. Aðrar tilnefndar Crash: Rasismi lifir góðu lífi í LA en Crash er ekki Óskarsmynd. Munich: Verð- ur að teljast ólíklegt að gull- kálfurinn Steven Spielberg skáki Ang Lee. Good Night and Good Luck: Sterk og stílfærð en það nægir ekki þetta árið. Besti leikari í aðalhlutverki Philip Seymour Hoffman: Sýnir ótrúlegan leik sem Truman Capote og líkt og Brokeback hefur hann unnið öll hugsanleg verðlaun sem í boði eru. Helsti keppinautur Joaquin Phoenix: Umbreytist í Johnny Cash og þótt erfitt sé að etja kappi við Hoffman skyldi enginn útiloka ást Kanans á látn- um hetjum. Aðrir tilnefndir Terrence Howard (Hustle & Flow): Lítið hefur farið fyrir nafni þessa leikara í spádómum erlendra kvik- myndaspekinga. Heath Ledger (Brokeback Mountain): Þrátt fyrir frábæran leik er tími Ledgers ekki enn kominn. David Strathairn (Good Night and Good Luck): Leik- ur hans sem Edward R. Murrow er ótrúlega traustur en hlutverkið of „venjulegt“ að þessu sinni. Besta leikkona í aðalhlutverki Reese Witherspoon sem June Carter í Walk the Line: Litla, sæta og rómantíska leikkonan sýnir að hún getur leikið. Reese tekur von- andi við verðlaununum með stó- ískri ró og verður sér ekki til skammar. Helsti keppinautur Felicity Huffman sem Bree Osbourne í Transamerica: Kvik- myndagestir gleyma því að kyn- skiptingurinn er í raun kona. Aðþrengda eiginkonan rennur mörgum seint úr minni en Huff- man líður fyrir gæði myndarinn- ar sjálfrar. Aðrar tilnefndar Keira Knightley (Pride & Prejudice): Tilnefning sem kom mörgum á óvart en Knightley vill ekki bara vera sæta stelpan með breska hreiminn. Charlize Theron (North Country): Fá bitastæð kvenhlutverk útskýra tilveru Theron í þessum flokki. Judi Dench (Mrs. Henderson Presents): Minnstu sigurlíkurnar enda Dench ekki einu sinni komin á aldur. Besti leikari í aukahlut- verki Jake Gyllenhaal sem Jack Twist í Brokeback Mount- ain: Þar sem Heath Ledger fer heim slyppur og snauður er nánast öruggt að Gyllenhaal taki stytt- una. Þetta verður stjörnubjart kvöld uppi á fjalli. Helsti keppinautur George Clooney sem Bob Barnes í Syriana: Clooney hefur sýnt það og sannað að hann er bestur fyrir aftan tökuvélina. Gæti hins vegar velt Gyllenhaal úr sessi en það verður að teljast ólíklegt. Aðrir tilnefndir Matt Dillon (Crash): Þessi forn- frægi leikari rís aftur upp úr öskustónni og verður forvitnilegt að sjá hversu lengi þetta velmegunartímabil endist. Paul Giamatti (Cinderella Man): Afsök- unarbeiðni fyrir tilnefningarleys- ið í fyrra þegar leikarinn fór ham- förum í Sideways. William Hurt (A History of Violence): Tíu mín- útur og tilnefning hlýtur að telj- ast afbragðsárangur. Besta leikkona í aukahlutverki Rachel Weisz sem Tessa í The Con- stant Gardener: Þessi flokkur er erfiðastur að spá fyrir um. Þrjár leikkonur koma sterklega til greina en sigur Rachel kæmi fáum á óvart. Bafta gaf ágætis vísbendingu. Helsti keppinautur Michelle Williams sem Alma í Broke- back Mountain: Það verður erfitt fyrir þessa Dawson‘s Creek stúlku að hreppa verð- launin. Andlitið er óþekkt en ef hún sigrar verður það eflaust fyrirtaks Ósk- arsstund; grátur og gnístran tanna auk ástarjátningar í beinni. Aðrar tilnefndar: Amy Adams (Junebug): Þessi mynd hefur ekki borist til lands- ins en leikkonan hefur getið sér gott orð fyrir gestagang sinn í Office-þáttunum bandarísku. Catherine Keener (Capote): Það ætti náttúrlega að verðlauna Keener fyrir að leika í 40 Year Old Virgin og Capote á sama árinu. Frances McDormand (North Country): Frammistaða hennar í myndinni er ekki til að kvarta yfir, langt frá því, en ef skoðaður er leikur hennar í Fargo kemst þetta hlutverk ekki í hálfkvisti við lög- reglukonuna Marge Gunderson. Handrit byggt á áður birtu efni Brokeback Mountain eftir Larry McMurtry & Diana Ossana: Kvik- myndin tekur öll minni verðlaunin og stendur uppi sem sigurvegari. Helsti keppinautur Capote eftir Dan Futterman: Gott handrit er yfirleitt uppskrift að góðri mynd. Capote er ágætis sönnun þeirrar fullyrðingar. Aðrir tilnefndir The Constant Gardener eftir Jeffrey Caine. A History of Violence eftir Josh Olson. Munich eftir Tony Kushner og Eric Roth. Frumsamið handrit Crash eftir Paul Haggis og Bobby Moresco: Hollywood elskar að deila á kynþáttahatur og Crash er sú kvikmynd sem fer næst því að fjalla um þann rasisma sem þrífst í nútímaþjóðfélagi, dulinn en alveg jafn rætinn. Helsti keppinautur Match Point eftir Woody Allen: Þegar bandarískir gagnrýnendur segja myndina vera einhverja þá bestu frá meistaranum í áraraðir leggja meðlimir akademíunnar við hlustir. Aðrir tilnefndir Good Night and Good Luck eftir George Clooney og Grant Heslov. The Squid and the Whale eftir Noah Baumbach. Syriana eftir Stephen Gaghan. Besti leikstjóri Ang Lee fyrir Brokeback Mount- ain: Hið magnaða ævintýri held- ur áfram hjá Ang Lee. Ef hann tekur styttuna ekki með heim er það skandall sem lengi verður rætt um. Helsti keppinautur George Clooney fyrir Good Night and Good Luck: Leikar- inn grásprengdi gæti alveg eins eyðilagt kvöldið en það verður að teljast ólíklegt. Robert Redford rændi senunni árið 1981 og skaut The Elephant Man og Raging Bull ref fyrir rass... allt getur jú gerst á Óskarnum. Aðrir tilnefndir Bennet Miller fyrir Capote. Paul Haggis fyrir Crash. Ste- ven Spielberg fyrir Munich. - fgg 4. mars 2006 LAUGARDAGUR40 ALLT GETUR GERST FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR Í ÓSKARINN BROKEBACK MOUNTAIN Þykir nánast örugg um að hirða styttuna sem besta mynd ársins. CRASH Paul Haggis tekst vissulega upp en þetta er ekki Óskarsmynd. MUNICH Steven Spielberg í fantaformi en verður að lúta í lægra haldi fyrir Ang Lee. CAPOTE Philip Seymour Hoffman þykir stórkostleg- ur og myndin fáguð. GYLLENHAAL Var frábær sem Jake Twist í Brokeback Mountain. Tryggir mynd- inni einu leik- araverðlaunin. REESE WITHERSPOON Gagnrýnendur halda vart vatni yfir frammistöðu hennar sem June Carter. RACHEL WEISZ Hefur komið mörgum á óvart enda þekktust fyrir að drepa múmíur með Brendan Fraser. GOOD NIGHT AND GOOD LUCK George Clooney sýnir að hann er framtíð- armaður í Hollywood. Óskarsstyttan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.