Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 36
LAUGARDAGUR 4. mars 2006 5 Viðurkenndur þjónustuaðili sem byggir á áratugareynslu Ræsir hefur frá árinu 1942 þjónað landsmönnum dyggilega með innflutningi og sölu nýrra bíla og varahluta frá ýmsum framleiðendum, auk viðgerðarþjónustu og sölu á notuðum bílum. Bílasala Útvegum flestar gerðir bíla, atvinnubíla jafnt sem fólksbíla , nýja sem notaða. Áratugareynsla og þekking hjá sölumönnum okkar. MANTRA 4x4 Atvinnubílar Traustir atvinnubílar af öllum stærðum og útfærslum. Ræsir er umboðsaðili fyrir Mantra 4x4, torfærutröll sem byggir á traustum grunni frá Mercedes-Benz. Bílasalan er opin frá kl. 9–18 alla virka daga og 12–16 laugardaga. Varahlutaverslun er opin frá kl. 8–18 alla virka daga og 10–14 laugardaga. Verkstæðið er opið frá kl. 7.30–18 alla virka daga og 9–13 laugardaga. Viðurkennd, sérhæfð og örugg varahluta- og verkstæðis- þjónusta fyrir eftirtaldar tegundir bifreiða: Mercedes- Benz, Mazda, Chrysler, Dodge og Jeep. Öll önnur almenn verkstæðisþjónusta. Þjónustumiðstöð Hekla, umboð Mitsubishi á Íslandi, hefur nú hafið sölu á Rallitronic- aflauka fyrir Mitsubishi-dísilvélar. Aflaukinn er sagður fjölga hestöflum vélarinnar um þrettán prósent og togafl hennar um tuttugu prósent. Hægt er að fá aflaukann í 3,2 lítra dísilvélar í Pajero árgerðir 2002 til 2006 og í 2,5 lítra dísilvélina í Pajero, Pajero Sport og L-200 árgerðir 2002 til 2006. Aflaukinn með ísetningu kostar hjá Heklu 150.000 kr. Mitsubishi aflmeiri AUKIN HESTÖFL OG TOG Í MITSUBISHI-JEPPUM. Íslandsmeistaramótið í snjókrossi heldur áfram í dag, 4. mars. Keppnin hefst klukkan 14.00 og er haldin við Húsavík. Síðasta umferð WPSA Snocross fór fram 18. febrúar á Ólafsvík í frábæru veðri og á góðri braut. Spennandi verður að sjá hvernig málin þróast í dag en staðan í keppninni til Íslandsmeistara er sem hér segir: Í unglingaflokki er Aðalbjörn Tryggvason efstur með 100 stig, Baldvin Þór Gunnarsson annar með 95 stig og Páll Snorrason þriðji með 61 stig. Fyrsta sæti í sportflokki skipar Ásgeir Frímannsson með 99 stig, í öðru sæti er Jónas Stefánsson með 95 stig og í því þriðja er Guðmund- ur Skúlason með 79 stig. Í meistaraflokki er von á harðri keppni. Eftir fjarveru í fyrstu umferð er Alexander „Lexi“ Kára- son mættur aftur til leiks og varð í öðru sæti í annarri umferð. Í fyrsta sæti var Eyþór Hemmert, sem er líka efstur í keppninni til Íslandsmeistara með hundrað stig. Í öðru sæti er núverandi Íslands- meistari, Helgi Reynir Árnason, með 87 stig og í því þriðja er Stein- dór G. Stefánsson með 79 stig. Snjókross- keppni í dag 3. umferð Íslandsmeistara- mótsins hefst klukkan 14.00 við Húsavík. Íslandsmeistarinn 2005, Helgi Reynir Árna- son, er meðal þeirra sem keppa um stig í 3. umferð WPSA Snocross í dag. Vegna reglugerðabreytinga neyddist Audi til að skipta út R8- keppnisbíl sínum sem hefur gert góða hluti í Sebring og Le Mans kappökstrunum. Nýi bíllinn heitir R10 og fyrir utan að hafa slegið fjögurra ára gamalt brautarmet í prófunum, vera illilega flottur og hlaðinn tæknibúnaði gæti ein- hverjum þótt hann hljóma undar- lega þegar hann er þaninn. Ástæð- an er sú að hann er útbúinn 650 hestafla V-12 dísilvél. Já - dísil. Bandarískir blaðamenn hafa keppst við að lýsa furðu sinni á þessari ákvörðun Audi. Framleið- andinn bendir réttilega á að á heimamarkaði séu dísilbílar sjötíu prósent seldra bíla og því ekkert undarlegt við evrópskan kapp- akstursbíl með dísilvél. Þó að þróunarkostnaður vélar- innar hafi verið gríðarlegur er hún sögð ævintýralega sparneyt- in, sem gæti farið að skipta meira og meira máli í heimi akstursíþrótta. Ökumenn liðsins segja að bíllinn standi undir vænt- ingum sem Audi-bifreið en hafi mun meira tog. Skyldi engan undra með 5,5 lítra V-12 dísilmótor með tveimur túrbínum. Dísilmótor í Le Mans Audi stígur skrefið inn í dísilöld akstursíþrótta. Gamla hugmyndin um um þunga og hæg- fara dísilbíla hefur endanlega verið jörðuð. Með einföldum aflauka má fjölga hestöflum í Mitsubishi-dísiljeppum umtalsvert. Vaxtalausir dagar standa yfir hjá Bílalandi B&L núna um helgina og eru þá sem kunnugt er í boði allt að 100 prósenta vaxtalaus bílalán. Að sögn Guðlaugs A. Sigfús- sonar, sölustjóra Bílalands, eru vaxtalausu lánin þau hagstæðustu sem bjóðast núna. Þau beri hvorki vexti né verðtryggingu. Þá sé enn fremur ekkert lántökugjald reiknað af þeim og við það sparist til viðbótar 4,5 pró- sent af kaupverði bíls. Guðlaugur bendir jafnframt á að vaxtalausu lánin séu afar gagnsæ fjármögnun á bíl. Kaupverðið dreifist einfaldlega jafnt á fjölda afborgana og mánaðarlegar greiðslur séu fyrir vikið þær sömu út lánstímann. Vaxtalausum dögum lýkur hjá Bílalandi B&L á morgun, sunnudag kl. 16. Vaxtalausir dagar um helgina NOTAÐIR BÍLAR Á HAGSTÆÐUM 100 PRÓSENTA LÁNUM HJÁ BÍLALANDI. Hægt er að gera góð kaup á vaxtalausum dögum Bílalands B&L núna um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.