Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 27
Viljum búa til betri
þjóðfélags- þegna
svo hélt ég bara áfram að bera út
blöðin. Ég vissi því ekkert hvernig
aðstæður innandyra voru fyrr en í
fréttunum þegar ég kom heim.
Mig grunaði þó þegar sjúkraflutn-
ingamennirnir hlupu inn að eitt-
hvað mikið væri að og fékk áhyggj-
ur um að einhver væri alvarlega
slasaður eða jafnvel látinn. Það
var mjög óþægileg tilfinning,“
segir Gylfi Bragi einlægur, en
hann stundar nám í tíunda bekk
Hlíðaskóla.
„Þetta var góð upplifun og
hefur breytt lífi mínu mikið. Það
hlýtur að vera besta tilfinning í
heimi að bjarga mannslífum og
koma að svona gagni. Kennarar
mínir, vinir og fjölskylda voru
ægilega stolt og sjálfur gladdist
ég mjög yfir því að svona vel fór,“
segir Gylfi Bragi, sem ætlar á
náttúrufræðibraut Menntaskólans
við Hamrahlíð á hausti komanda.
„Þessi upplifun kveikti svo sem
ekkert í mér að feta braut björg-
unarmanna eða lækna og ég er
enn mjög óráðinn með framtíðina.
Þetta er þó rétta brautin ef mér
skyldi snúast hugur,“ segir hetjan
unga hughraust og brosmild áður
en skólabjallan glymur á ný.
gjafi í þjónustumiðstöð Breiðholts
og hún við kennslu á íþróttafræði-
braut Háskólans í Reykjavík. Auk
þess þjálfa þau unglinga hjá ÍR í
frjálsum þrjá tíma á dag, alla virka
daga, fylgja þeim eftir á mótum
um helgar og halda stundum með
þá í æfingabúðir. Áherslan er þó
ekki bara á íþróttaafrek ungling-
anna heldur líka næringu, sið-
fræði, kurteisi og gott samstarf
við foreldrana.
„Við viljum búa til betri
þjóðfélagsþegna og metum ekki
einstaklingana út frá því hvort
þeir eru efnilegir íþróttamenn
heldur leggjum okkur fram um að
efla hvern og einn bæði andlega og
líkamlega. Ef við fáum afreks-
menn út úr því er það fínt en við
leggjum mikið upp úr félagslega
þættinum - að allir séu með,“ segir
Þórdís. „Já, við höfum horft upp á
unglinga sem í fyrstu þorðu varla
að líta á nokkurn mann en hafa náð
að blómstra og mæta nú glaðir og
hressir á hverjum degi. Slíkt gefur
okkur ekkert minna en að horfa á
okkar fólk á verðlaunapalli,“ segir
Þráinn.
Þau hjón telja góðra þjálfara
ekki síst þörf í grasrót íþrótta-
hreyfingarinnar. Þar séu ungling-
arnir að mótast, bæði andlega og
líkamlega, beinin að styrkjast og
vöðvarnir að vaxa. Það er líka
eftirtektarvert að áherslur þeirra
hjóna hafa skilað stærsta og öflug-
asta unglingaliði landsins í frjáls-
um íþróttum. „Starfið hjá ÍR hefur
alltaf verið á mannlegum nótum.
Það hefur aldrei verið þessi harða
afreksstefna sem sumsstaðar gild-
ir - allt fyrir gullið!“ segir Þráinn.
„Við trúum því líka að ef fólki líði
vel í því sem það er að gera og hafi
gott sjálfstraust þá nái það árangri.
Þannig er okkar heimspeki.“
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
UPPFRÆÐARAR ÁRSINS, ÞRÁINN HAFSTEINSSON OG ÞÓRDÍS LILJA GÍSLADÓTTIR Þau fengu verð-
laun fyrir framúrskarandi frjálsíþróttastarf með unglingum í ÍR.
LAUGARDAGUR 4. mars 2006 27