Fréttablaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 8
4. mars 2006 LAUGARDAGUR
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Ef þú bókar bílaleigubílinn heima á Íslandi
bíður hann þín á áfangastað. Hver leiga færir
þér 500 Vildarpunkta að auki. Bókaðu
bílinn núna í 50 50 600 og tryggðu þér meira
öryggi og betri þjónustu á ferðum þínum
erlendis hvert sem leið þín liggur.
50 50 600 • www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
16
24
03
/2
00
6
Tilboð
Bókaðu fyrir
1. apríl
og fáðu
1.000
Vildarpunkta
fyrir leigu hvar
sem er í heiminum
V
I L
D
A R
P U N K T
A
R
NISSAN PATHFINDER
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Breyting frá Arctic Trucks Ver›i› á Nissan Pathfinder hefur líklega aldrei veri›
hagstæ›ara. Me› 35" sérhönnu›um breytingum eru gæ›i
flessa skemmtilega jeppa einfaldlega or›in enn meiri. Hann
er áfram jafn og flægilegur í akstri og nú ævint‡ri líkastur.
Líttu inn og ber›u hetjuna augum!
ÆVINT†RI
LÍKASTUR
Ver›i› á breyttum Nissan Pathfinder er frá 4.379.000 kr.
VIÐSKIPTI Innan stjórnar SPH er
mikil óánægja með að trúnaðar-
gögn sem hafa farið á milli spari-
sjóðsins og opinberra aðila hafi
lekið út til fjölmiðla. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins hafa
þessi gögn einungis komið fyrir
sjónir stjórnar SPH og Fjármála-
eftirlitsins (FME).
Í gögnunum, sem birtust í Morg-
unblaðinu þann 28. febrúar síðast-
liðinn, kemur fram að óbeinn virk-
ur eignarhluti ákveðinna aðila hafi
myndast að mati FME og snýr að
fimm einstaklingum og tveimur
fyrirtækjum. Gögnunum var vísað
til efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra sem rannsakar einnig
hvort ólögleg viðskipti með stofnfé
hafi átt sér stað.
„Ég get staðfest það að málið er
hér til meðferðar en get ekkert
sagt nánar um það eða hvernig
það stendur,“ segir Jón H. B.
Snorrason, yfirmaður efnahags-
brotadeildar ríkislöreglustjóra.
Stofnfjáreigendahópurinn í
SPH hefur tekið miklum breyting-
um frá því að ný stjórn komst til
valda í sparisjóðnum í apríl fyrir
ári síðan. Aðeins sjö af gömlu
stofnfjáreigendunum 47 eru eftir í
hópnum. Sparisjóður Kópavogs og
Sparisjóður vélstjóra eru stærstu
stofnfjáreigendurnir í SPH eftir
að listi yfir stofnfjárhafa var birt-
ur í fyrsta sinn. Hlutur þeirra er
5,3 prósent af heildarstofnfé. MP
– fjárfestingarbanki, sem er annar
stærsti stofnfjáreigandinn í SPV,
á annað eins.
Félög í eigu Baugs og einstakl-
ingar og fyrirtæki, sem hafa verið
í viðskiptum með Baugi, eru einnig
mjög fyrirferðarmikil í eigenda-
hópi SPH. Ætla má að þessir aðilar
eigi samanlagt um 40 prósent
stofnfjár.
Verð á stofnfjárhlutum í SPH
hefur hækkað talsvert frá því að
viðskipti hófust með þá fyrir tæpu
ári. Hluturinn hækkaði um 40
milljónir króna á sex mánuðum,
úr 50 milljónum króna í 90, en
Fjárfestingafélagið Saxhóll hefur
greint frá því að það hafi keypt
tvo hluti fyrir 180 milljónir króna
í nóvember.
Ný stjórn SPH hittist í gær-
morgun og skipti með sér verkum.
Tekur Jón Auðun Jónsson lögmað-
ur við stjórnarformennsku í SPH
af Páli Pálssyni.
eggert@frettabladid.is
STJÓRN SPH FURÐAR SIG Á LEKA Gögn sem fóru einungis á milli stjórnar SPH og FME láku
út til fjölmiðla. Nokkur samþjöppun hefur átt sér stað í eigendahópnum.
Stofnbréfið
í 90 milljónir
Aðeins sjö af gömlu eigendunum í SPH eru eftir.
Tveir sparisjóðir eiga mest í sjóðnum. Stofnfjárhlut-
urinn hækkaði um 40 milljónir króna á hálfu ári.
STÆRSTU STOFNFJÁREIGENDUR
Í SPH
Sparisjóður Kópavogs 5,40%
Sparisjóður vélstjóra 5,40%
MP - fjárfestingarbanki hf. 5,40%
Björn Þorri Viktorsson 4,30%
Bygg ehf. 4,30%
Fons ehf. 4,30%
Íslandsbanki 4,30%
Karen Millen 4,30%
Kevin Stanford 4,30%
Magnús Ármann 4,30%
Myllan - brauð ehf. 4,30%
Saxhóll ehf. 4,30%
Sigurður Bollason ehf. 4,30%
Sigurður G. Guðjónsson 4,30%
Sjóvá-Almennar 4,30%
VEÐUR Veðrið í febrúar var með
eindæmum gott. Þetta er fjórði
hlýjasti mánuðurinn frá upphafi
mælinga í Reykjavík en hitinn var
3,3 stig en það er 2,9 stigum hærra
en að meðallagi.
Á Akureyri var febrúar sjöundi
hlýjasti mánuðurinn frá fyrstu
mælingum en þar var hitinn 1,9
stig en það er 3,4 stigum hærra en
meðaltalið er. Úrkoma mældist
mikil í febrúar en í Reykjavík var
hún 20 prósentum yfir meðallagi,
alls 87mm. Sólskinsstundir voru
58 í Reykjavík en 43 á Akureyri.
Mestur mældi hiti á landinu var á
Sauðanesvita 17,2 stig en kaldast
var á Brúarjökli -25,8 stig.
Febrúar sá fjórði hlýjasti frá upphafi mælinga:
Heitt en vætusamt
MENNTAMÁL Undirritaður var í gær
samningur milli Háskóla Íslands
og fyrirtækisins Samorku um
kostun starfs sérfræðings til rann-
sókna í auðlindarétti við Laga-
stofnun Háskóla Íslands.
Sérfræðingur verður ráðinn til
þessa nýja starfs til þriggja ára og
mun hann stunda rannsóknir í auð-
lindarétti með áherslu á orkurann-
sóknir. Páll Hreinsson, forseti
lagadeildar, segir samninginn í
samræmi við þá stefnu deildarinn-
ar að leggja aukna áherslu á rann-
sóknir og kennslu í auðlindarétti
en hann segir þá fræðigrein fjalla
um þá hagsmuni þjóðarinnar sem
hvað mestu máli skipti. - jse
Háskóla Íslands og Samorka undirrita samning:
Kosta sérfræðistöðu
VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGS-
INS Viðar Már Matthíasson,
stjórnarformaður Lagastofnun-
ar, Kristín Ingólfsdóttir rektor,
Eiríkur Bogason, framkvæmda-
stjóri Samorku, og Páll Hreins-
son, forseti lagadeildar.