Fréttablaðið - 19.03.2006, Qupperneq 79
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
Bóka›u núna á icelandexpress.is
HVER VINNUR LEIKINN?
Taktu þátt í HM leik Iceland Express
Iceland Express er stolt af flví a› styrkja HM 2006 á S†N. Vi› færum flér HM, hvort sem flú ætlar a›
njóta leikjanna í sófanum heima e›a stúkunni sjálfri, flví í vor ver›a áfangasta›ir Iceland Express í
fi‡skalandi or›nir flrír talsins: Berlín, Frankfurt Hahn og Friedrichshafen. Af flessu tilefni efnir Iceland
Express til spennandi HM leiks.
Þeir sem bóka og ferðast með Iceland Express á tímabilinu 12. mars
til 12. apríl 2006 fara sjálfkrafa í HM pott og geta unnið ferð fyrir
tvo á leik Englands og Trinidad & Tobago á HM 2006, sem fer fram
þann 15. júní í Nürnberg.
Innifali› er flug og gisting fyrir tvo, bílaleigubíll og tveir mi›ar á leikinn í bo›i Iceland
Express og S‡nar. Gildir einungis fyrir n‡jar bókanir. Fer› ver›ur a› vera loki› fyrir 13. apríl.
TÓNLIST ·
TÖLVULEIK
IR · DVD
OPIÐ 11-19 ALLA DAGA!
FRÁ 199,-
LAGERSALA SENU FELLSMÚLA 28
(GAMLA WORLD CLASS HÚSINU)
...GERÐU BESTU KAUPIN
����������
�����������������������
Mér hafa verið gefin mýmörg ráð í gegnum tíðina um allt og
ekkert. Sum hef ég sannreynt en
langflest ekki. Ég hef bæði fengið
þau úr fjölmiðlum og frá fólki í
kringum mig. Sum heyri ég einu
sinni og þau festast í hausnum á
mér. Önnur heyri ég einu sinni og
man aldrei aftur. Nokkuð mörg þarf
ég ekki að muna þar sem amma
hringir í mig daglega og minnir mig
á þau. Það gildir einu fyrir ömmu
hvort ég sé tveggja ára eða þrjátíu
og tveggja þar sem hennar ráð eru
allt frá því að þvo mér um hendurn-
ar upp í uppeldi barnanna minna.
Mig langar til að deila með ykkur
nokkrum af mínum tilraunum.
EINHVERN tímann las ég grein
um það að blöðruhálskirtilsvanda-
mál karla mætti að miklu leyti forð-
ast ef þeir bara pissuðu sitjandi því
þannig næðu þeir að tæma blöðruna
betur. Greinin orsakaði tvennt í
mínu tilfelli. Í fyrsta lagi fór ég að
spá í hvort ristilvandamál væru
algengari ef við gerðum hinar þarf-
irnar okkar standandi líka og í öðru
lagi ákvað ég að fyrirbyggja fram-
tíðar blöðruhálskirtilvandamál mín
hið snarasta. Tilhugsunin um að
setjast alltaf niður var fremur nota-
leg og ég ákvað að gefa þessu séns.
Eftir að hafa prufukeyrt nýju tækn-
ina einu sinni reyndi ég að gera mér
grein fyrir hvort blaðran væri betur
tæmd en áður en það var hægara
sagt en gert. Þeim mun meira sem
ég hugsaði um hversu tæmd blaðr-
an væri, því meira varð mér aftur
mál að pissa. Að endingu komst ég
að því að þetta væri vítahringur
sem bæri að forðast og ég hef ekki
reynt þetta aftur síðan.
FYRIR nokkrum árum sagði
frænka mín mér að samkvæmt
þýskri könnun skoruðu þeir ein-
staklingar hærra á gáfnavísitölu-
prófum sem ávallt gæfu stefnuljós
við akstur bifreiða. Þarna sá ég
fram á að geta sparað mér að
minnsta kosti þrjá mánuði af bóka-
lestri. Setu-piss-kenninguna náði ég
aldrei almennilega að sannreyna en
ég get staðfest að stefnuljósadæm-
ið þrælvirkar. Ég hef nefnilega
komist að því að á þessum fjórtan
árum síðan ég byrjaði að gefa ávallt
stefnuljós hefur mér farið fram í
lestri, reikningi og almennum
mannasiðum. Þetta kalla ég góðan
árangur fyrir ekki meiri fyrirhöfn.
AÐ lokum get ég sagt ykkur að
kenningin um að líkaminn þrífi sig
sjálfur eftir nokkrar vikur orsak-
aði í mínu tilfelli útbrot og Holly-
wood-kúrinn svínvirkar með Egils
appelsíni. Ég vona að þið getið nýtt
ykkur þessa reynslu mína.
Góður
ásetningur