Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 2
2 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
��������������������
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
ÓHOLL MATVARA Dæmi eru um að markaðssetningu á óhollri matvöru sé beint að
börnum.
BÖRN Talsmaður neytenda og
Umboðsmaður barna hafa tekið
höndum saman um frekari höml-
ur á markaðssókn sem beinist að
börnum og unglingum. „Greini-
leg þörf er á því að skoða þetta
mál,“ segir Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda, en fjölmarg-
ar ábendingar hafa borist
embættinu um efnið.
Málþing var haldið í upphafi
síðasta mánaðar og var það fyrsta
skrefið í leitinni að lausn á vand-
anum. „Næstu skref eru að finna
umræðugrundvöll við atvinnu-
lífið og samkomulag í framhald-
inu.“
Spurður um bein tilvik óæski-
legrar markaðssetningar nefnir
Gísli sem dæmi auglýsingar á
óhollri matvöru. „Það hefur mikil
áhrif þegar þekktar fígúrur sem
börn hafa áhuga á eru hluti af
slíkri markaðssetningu.“ ■
Talsmaður neytenda og umboðsmaður barna taka höndum saman:
Skoða markaðssókn gegn börnum
EFNAHAGSMÁL Máttur stýrivaxta
sem hagstjórnartækis er minni
hér en í öðrum löndum, meðal ann-
ars vegna verðtryggingarinnar,
segir Jón Sigurðsson, fyrrverandi
Seðlabankastjóri og ráðherra. „Í
öðrum löndum hafa stýrivextir
meiri og beinni áhrif á nafnvext-
ina. Vaxtahækkanir hér slá ekki á
þenslu,“ segir Jón. Ekki dregur úr
lántökum þrátt fyrir vaxtahækk-
anir en gengi gjaldmiðla hefur, að
mati Jóns, meiri áhrif á efnahags-
lífið. Fyrir vikið myndist tog-
streita, hækkandi vextir tefji
gengislækkun eða haldi genginu
uppi, við það dragi tímabundið úr
verðbólgu en viðskiptahallinn
aukist.
Guðmundur K. Magnússon hag-
fræðiprófessor segir stýrivextina
bitlausa í því opna hagkerfi sem
við búum við. „Það sýndi sig best
fyrir einu og hálfu ári þegar við-
skiptabankarnir lækkuðu vexti á
húsnæðislánum á meðan Seðla-
bankinn hækkaði stýrivextina.“
Hann segir Seðlabankann í raun
ekki hafa nein tæki til að sporna
gegn verðbólgu og aðgerðir bank-
ans bitni aðeins á smærri fyrir-
tækjum. „Það er fátt til úrræða
þegar fjárstreymið á milli landa
er opið og það dugar jafnvel ekki
að hækka stýrivextina upp í sex-
tán prósent. Slíkt mun aðeins bitna
á smáfyrirtækjunum sem ekki
geta leitað á erlendan markað til
að taka lán. Rekstrargrundvöllur
þeirra er því í hættu.“
Illugi Gunnarsson, hagfræð-
ingur og fyrrverandi aðstoðar-
maður Davíðs Oddssonar, gerir
stýrivextina að umtalsefni í grein
í Fréttablaðinu í gær og veltir
fyrir sér hvort hækkanir Seðla-
banka hafi valdið óeðlilegri spennu
í hagkerfinu. Arnór Sighvatsson,
aðalhagfræðingur Seðlabankans,
gefur lítið fyrir þá hagfræði. „Ég
er mjög undrandi á þessari grein,
sérstaklega þar sem hún kemur
frá manni sem hefur verið tals-
maður þess að halda í krónuna.
Hann færir í raun rök fyrir því að
við ættum að leggja krónuna af
hið allra fyrsta.“ Arnór segist
raunar þeirrar skoðunar að ávinn-
ingurinn af að halda í krónuna sé
minni en enginn en rökin séu ekki
þau sömu og Illugi færir fram, það
er, að peningastefnan virki ekki.
„Hún virkar rétt en það eru tak-
mörk fyrir því hvað hún getur
verið framsýn vegna þess að við
höfum afskaplega lítið vald yfir
genginu og getum illa séð það
fyrir.“ Illugi veltir líka fyrir sér
hvort stýrivextirnir hafi verið
hækkaðir of snemma. Því er Arnór
ósammála. „Ég held að við höfum
hækkað vextina of seint.“
Jón Sigurðsson sagðist í Silfri
Egils í gær þeirra skoðunar að rétt
væri að kanna kosti þess að ganga
í Evrópusambandið og taka upp
evru. bjorn@frettabladid.is
Verðtrygging og erlend lán
draga úr mætti stýrivaxta
Jón Sigurðsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, segir mátt stýrivaxta minni hér en annars staðar. Guðmund-
ur Magnússon prófessor segir vaxtahækkanir bitna á smærri fyrirtækjum. Illugi Gunnarsson hagfræðingur
efast um ágæti vaxtahækkana Seðlabanka. Aðalhagfræðingur bankans gefur lítið fyrir þá skoðun.
ARNÓR SIGHVATS-
SON Aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans.
ILLUGI GUNNARS-
SON hagfræðingur.
JÓN SIGURÐSSON
Fyrrverandi Seðla-
bankastjóri.
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON hag-
fræðiprófessor.
SEÐLABANKINN Hækkun stýrivaxta bitnar á smáfyrirtækjum því þau geta ekki tekið lán í útlöndum að mati Guðmundar Magnússonar.
SKAFTÁRHLAUP Nú er orðið ljóst að
hlaupið í Skaftá er eitt það allra
stærsta í sögunni. Um miðjan dag
í gær náði hlaupið hámarki og
mældist rennsli í Eldvatni við Ása
636 rúmmetrar á sekúndu. Snorri
Zóphóníasson, sérfræðingur á
vatnamælingasviði Orkustofnun-
ar, telur að rennslið við upptök
hlaupsins hafi þá náð á bilinu fjór-
tán til fimmtán hundruð rúmmetr-
um. Vegna sambandsleysis við
rennslismæli við Sveinstind er
ekki hægt að segja nákvæmlega
til um það að svo stöddu.
Hlaupið tekur nú að réna og
telur Snorri að mesti vatnsflaum-
urinn gangi yfir á einum eða
tveimur dögum. Slíkt sé venjan
með Skaftárhlaup sem vaxa hratt
eins og hlaupið í ánni núna.
„Þetta er auðvitað bara mikið
hlaup og lánið í óláninu að það var
svo lítið vatn fyrir í ánni. Hlaupin
skemma þó alltaf því þau brjóta
gróið land úr öllum bökkum og
þegar það fer að fjara situr sandur
og leir eftir úti um allt sem fýkur
svo yfir,“ segir Halldór bóndi á
Ytri-Ásum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Kirkjubæjarklaustri
er ljóst að hlaupið fór yfir vegi
heim að bæjum í Skaftárdal og við
Skál. Einnig er talið líklegt að
flætt hafi yfir Fjallabaksleið
nyrðri við Hólaskjól en sá vegur
er lokaður vegna árstíðar.
Skemmdir liggja þó ekki endan-
lega fyrir fyrr en vatnsyfirborðið
tekur að lækka og vegirnir koma
aftur í ljós. - at
Skaftárhlaup náði hámarki í gær og gengur að mestu yfir næstu tvo daga:
Eitt stærsta hlaup sögunnar
VATNAMÆLINGAMENN VIÐ STÖRF Rennslis-
mæling var gerð í Eldvatni við Ása.
BORGARMÁL Ársreikningar Reykja-
víkurborgar og hlutdeildarfélaga,
sem ræddir verða í borgarstjórn á
morgun, voru sendir borgarfull-
trúum upp úr hádegi í gær.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, gagn-
rýnir að ekki gefist meira rúm til
að rýna í reikninginn. „Þetta er á
fjórða hundrað síður og maður
spyr sig hvort R-listinn sé að
reyna að koma í veg fyrir upplýsta
umræðu á fundinum. Staðan er
ójöfn þar sem oddvitar minni-
hlutaflokkanna hafa ekki þann
herskara embættismanna á bak
við sig sem borgarstjóri hefur.“
Borgarfulltrúar og embættis-
menn eru bundnir innherjalögum
þar sem ársreikninginn ber að
birta í Kauphöll Íslands. Fyrr
mega þeir ekkert láta uppi um efni
hans og innihald. ■
Ársreikningur borgarinnar:
Dreift seint til
borgarfulltrúa
KJARTAN MAGNÚSSON Borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks.
SLYSFARIR Umferðarslys varð á
Selfossi um klukkan hálf tvö í
fyrrinótt. Tveimur bílum, jeppa
og fólksbíl, var ekið samsíða eftir
einni af götum bæjarins og skullu
þeir saman þegar þeim var ekið
yfir gatnamót.
Þrír slösuðust og voru fluttir á
slysadeild. Einum hinna slöusuðu
var ekið til Reykjavíkur til
aðhlynningar.
Beita þurfti klippum til að ná
fólki út úr öðrum bílnum og eru
þeir báðir ónýtir.
Lögreglan á Selfossi gat ekk-
ert sagt um tildrög slyssins og
eru þau því óljós. Málið er í rann-
sókn. ■
Árekstur á Selfossi:
Þrír fluttir á
slysadeild
SPURNING DAGSINS
Jón Birgir, var gott að glíma á
Bessastöðum?
Já, Bessastaðastofa er mjög hentug til
glímusýninga og þetta var mikill heiður.
Jón Birgir Valsson, formaður Glímusambands-
ins og handhafi Grettisbeltisins, glímdi við
Pétur Eyþórsson á Bessastöðum á laugardag.
Pétur vann.
Bílrúður brotnar Sjö bílar við
Reykjavíkurhöfn urðu fyrir barðinu á
skemmdarverkafólki í gærmorgun. Voru
rúður brotnar og leitað að verðmætum
í bílunum. Fólkið hafði þó lítið sem
ekkert upp úr krafsinu.
LÖGREGLUMÁL