Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 74
24. apríl 2006 MÁNUDAGUR34
LYFTINGAR Þorvaldur Kristbergs-
son, Borgarnesbollan, bætti marg-
frægt unglingamet Íslandsmeist-
arans Auðuns Helgasonar í
hnébeygju á mótinu í Garðaskóla
um helgina. Bollan lyfti 357,5 kíló-
um og bætti met Auðuns um 2,5
kíló en fáir töldu að metin yrði
nokkurn tíma slegið. Samanlagt
lyfti Þorvaldur 882,5 kílóum, í
hnébeygjulyftu, bekkpressu og
réttstöðulyftu, en hann var óhepp-
inn í bekkpressunni þar sem hann
lyfti 220 kílóum en ætlaði sér mun
meira. Hann varð Íslandsmeistari
í -125 kílógramma flokki unglinga
en Borgarnesbollan er aðeins 22
ára gömul.
Auðunn Jónsson, vann besta
afrek karla á mótinu en hann lyfti
samanlagt 1040 kílóum. Þetta er í
níuna sinn sem Auðunn fer yfir
tonnið en hann á best 1117 kíló.
Auðunn er að byggja sig upp fyrir
heimsmeistaramótið í Noregi og
fór því varlega í sakirnar en þrátt
fyrir það bar hann höfuð og herð-
ar yfir aðra á mótinu. Auðunn býst
við nýju heimsmeti í Noregi og
miðast allar hans æfingar að því
þessa dagana.
María Guðsteinsdóttir er sann-
kölluð lyftingadrottning Íslands
en hún bætti enn eitt metið um
helgina. María lyfti samanlagt 475
kílóum en hún er núverandi Norð-
urlandameistari og styttist óðum í
langþráðan 500 kílóa múrinn hjá
henni.
Hjalti Úrsús Árnason, móts-
haldari, sagðist í samtali við
Fréttablaðið í gær, vera mjög
ánægður með mótið og hvernig til
tókst. „Þetta var glæsilegt mót og
áhorfendur létu sig ekki vanta
sem er frábært. Það mætir alltaf
dyggur hópur til að horfa á sem er
ómissandi og gefur íþróttinni
aukið gildi og setur skemmtilegan
svip á mótin,“ sagði Hjalti Úrsus.
Íslandsmótinu verða gerð ítar-
leg skil í þættinum Kraftasport,
sem sýndur verður Sýn á næst-
unni. - hþh
Íslandsmótið í kraftlyftingum fór fram í höfuðvígi íþróttarinnar um helgina að viðstöddu fjölmenni:
Borgarnesbollan bætti margfrægt met Auðuns
HRIKALEG ÁTÖK Borgarnesbollan sjálf á mótinu um helgina. Bollan náði frábærum árangri
og bætti sögufrægt Íslandsmet Auðuns Jónssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HNEFALEIKAR Vel heppnað Íslands-
mót í hnefaleikum fór fram í mik-
illi stemningu á laugardagskvöld-
ið þar sem öll umgjörð var til
fyrirmyndar. Hnefaleikarnir eru
að ryðja sér til rúms í íslensku
íþróttalífi eftir að hafa verið leyfð-
ir aftur árið 2002 og eru í sífelld-
um vexti. Það var Ingrid María
Mathisen úr Hnefaleikafélagi
Reykjavíkur sem varð fyrsti
Íslandsmeistarinn í hnefaleikum í
53 ár en HR var mjög sigursælt
um helgina og eignaðist alls sjö
Íslandsmeistara. Stemningin var
með besta móti og keppendur voru
hvattir áfram af líflegum áhorf-
endum sem létu sitt ekki eftir
liggja. Undirbúningur fyrir mótið
hefur verið mikill en allt var gert
til að gera mótið sem veglegast og
fór það ekki framhjá nærstöddum
í Kaplakrika né áhorfendum Sýnar
en mótið var í beinni útsendingu.
Hnefaleikafélag Reykjavíkur var
eins og áður sagði sigursælast og
nældi í alls sjö titla. Hnefaleikafé-
lag Hafnarfjarðar, Hnefaleikafé-
lag Reykjaness, Hnefaleikafélag
Vestmannaeyja og Hnefaleikafé-
lag Ísafjarðar nældu í einn titill
hvert.
Stefán Breiðjörð úr Hnefa-
leikafélagi Hafnarfjarðar var val-
inn besti boxari kvöldsins. - hþh
Íslandsmeistarar karla:
Yngri flokkur (19 ára og yngri)
Veltivigt - 64-69 kg.
Aðalsteinn Halldórsson (HR)
Millivigt - 69-75 kg.
Sæþór Pétursson (HFV)
Léttþungavigt - 75-81 kg.
Davíð Rafn Björgvinsson (HR)
Þungavigt - 81-91 kg.
Egill Jónsson (HR)
Eldri flokkur (19 ára og eldri)
Léttveltivigt - 60-64 kg.
Gunnar Óli Guðjónsson (HR)
Veltivigt - 64-69 kg.
Þórir Fannar Þórisson (HR)
Millivigt - 69-75 kg.
Stefán Breiðfjörð (HFH)
Léttþungavigt - 75-81 kg.
Guðmundur Jónsson (HRn)
Þungavigt - 81-91 kg.
Lárus Mikael Daníelsson (HFÍ)
Íslandsmeistarar kvenna:
Fjaðurvigt - 54-57 kg.
Ingrid Maria Mathisen (HR)
Léttvigt - 57-60 kg.
Áslaug Rós Guðmundsdóttir (HR)
Fyrsta Íslandsmótið í hnefaleikum í 53 ár var haldið í mikilli stemningu í Kaplakrika á laugardagskvöldið:
Hnefaleikafélag Reykjavíkur í sigurvímu
BARÁTTAN Í HÁVEGUM HÖFÐ Tveir kvenna-
bardagar fóru fram á laugardaginn. Hér er
Maríanna Sigurðardóttir úr HAK i bláu og
Ingrid María Mathisen í rauðu. Hún er úr
HR og fór með sigraði bardagann.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HART TEKIST Á Sigurjón Arnórsson úr HR í bláu og Egill Jónasson, einnig úr HR, takast á.
Egill fór með sigur af hólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FORMÚLA-1 Hinn sjöfaldi heims-
meistari, Michael Schumacher, ók
Ferrarifák sínum til sigurs á
heimavelli ítalska liðsins á Imola í
gær. Þetta var fyrsti sigur Þjóð-
verjans á tímabilinu en um leið
fimmtánda tímabilið í röð þar sem
hann vinnur að minnsta kosti eina
keppni. Hann er langt á undan
Alain Prost sem gerði slíkt hið
sama ellefu sinnum í röð.
Þrátt fyrir mikla pressu frá
núverandi heimsmeistara, Fern-
ando Alonso á Renault, hélt Schum-
acher velli en tæpara mátti það
ekki standa. Alonso gerði harða
hríð að Schumacher sem hægði
mikið á sér á tímabili. Alonso var
nálægt því að taka fram úr en
reynslan skilaði Schumacher
fyrstum í mark en hann hélt for-
ystunni frá upphafi til enda eftir
að hafa verið á ráspól.
„Þetta er frábær tilfinning,
hvað annað get ég sagt? Þetta
hefur verið frábær helgi. Við
unnum vel og mikið sem skilaði
sér á endanum þar sem við gerð-
um nokkur mistök sem hefðu
getað verið dýrkeypt. Sem betur
fer fór þetta vel,“ sagði Schum-
acher en Alonso varð annar og
Kólumbíumaðurinn Juan Pablo
Montoya á McLaren þriðji. - hþh
Formúla-1:
Schumacher á
heimavelli
Í SIGURVÍMU Schumacher fagnaði sigri
sínum vel og innilega. NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI „Var við nokkru öðru að
búast en ég yrði markahæstur?“
sagði eldhress Logi Geirsson við
Fréttablaðið í gær þegar honum
var hrósað í hástert fyrir frábær-
an leik. Logi bar af í liði Lemgo,
skoraði átta mörk í öllum regn-
bogans litum, og fann félaga sína
ítrekað í sókninni. Ásgeir Örn
Hallgrímsson átti einnig mjög
góðan leik, hann skoraði fjögur
mörk í 30-29 sigri Lemgo á mjög
erfiðum útivelli Göppingen.
„Við hugsuðum með okkur að
eins marks tap til fjögurra marka
sigur yrði frábært á þessum ótrú-
lega útivelli þar sem fólk er gjör-
samlega brjálað. Ef boltinn fer
upp í stúku þá færðu hann ekkert
aftur. Við erum því sáttir,“ sagði
Logi sem var nýbúinn að fá sekt
fyrir að tala í símann á meðan leik-
menn voru að borða eftir matinn.
„Svona er þetta,“ sagði Logi sem
tók lífinu með stóískri ró að
vanda.
Leikurinn var í járnum allan
tímann og mátti vart á milli sjá
með liðunum. Þau skiptust á að
taka forystu og hver mistök voru
dýrkeypt en Lemgo náði mest
þriggja marka forystu í síðari
hálfleiknum eftir að jafnt hafði
verið í öllu í fyrri hálfleik. Eftir
hálfleik var staðan 14-14 og Lemgo
hafði síðan undirtökin í byrjun
síðari hálfleiks. Göppingen tókst
þó ávallt að koma sterkir til baka
og komust yfir áður en Lemgo
hafði betur undir lokin. Jaliesky
Garcia Padron átti ágætis leik
fyrir heimamenn en hann skoraði
þrjú mörk.
„Við erum mjög ánægðir með
þetta. Við vorum skíthræddir fyrir
þennan leik enda höfum við ekki
sótt gull í greipar Göppingen á
þessum velli undanfarin ár, ekki
frekar en önnur lið,“ sagði Logi en
Lemgo er nú í bílstjórasætinu í
viðureigninni.
„Það verður erfitt fyrir þá að
koma á heimavöllinn til okkar. Ég
held að ég geti nánast lofað því að
við töpum ekki á heimavelli á
þessu tímabili. Við sleppum Evr-
ópumeistaratitlinum ekki svo glatt
frá okkur. Við erum með reynslu-
mikið lið sem þekkir þetta vel og
við erum ekki að hafa neinar
áhyggjur af þessu. Við mætum
bara í leikinn og gerum okkar
hluti, ef það dugir ekki þá veit ég
ekki hvað,“ sagði Logi en liðinu
hefur vegnað mjög vel að undan-
förnu.
„Það er mikið sjálfstraust í lið-
inu. Við erum nánast með þetta í
okkar höndum. Við verðum að
spyrja að leikslokum,“ sagði heið-
ursmaðurinn Logi Geirsson en síð-
ari leikurinn fer fram á heimavelli
Lemgo á laugardaginn.
hjalti@frettabladid.is
Við spyrjum að leikslokum
Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fóru fyrir Lemgo sem lagði Jaliesky Garcia Padron og félaga
hans í Göppingen 30-29. Leikurinn var fyrri viðureign liðanna í úrslitum EFH-keppninnar í handbolta.
ÖRUGGUR Logi Geirsson var feykilega öruggur í aðgerðum sínum eins og honum er von og
vísa. Logi átti sannkallaðan stórleik og dró félaga sína áfram. FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI Það verða West Ham og
Liverpool sem leiða saman hesta
sína í úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar þann 13. maí. Leikur-
inn fer fram á Þúsaldarvellinum í
Cardiff en ljóst er að ríkjandi Evr-
ópumeistarar eru mun sigur-
stranglegri fyrir leikinn.
Það var Marlon Harewood sem
skoraði eina mark leiks West Ham
og Middlesbrough í síðari undan-
úrslitaleiknum í gær. Leikurinn
var bráðfjörugur og Boro hafði
undirtökin en náði ekki að nýta
færin sín. Harewood nýtti sér það
og skoraði eina mark leiksins á 78.
mínútu með góðu skoti. - hþh
Úrslitaleikur FA bikarsins:
West Ham
gegn Liverpool
Evrópukeppni kvenna:
VALUR-CONSTANTAXX-XX
Mörk Vals: 0-1 Robbie Keane (65.), 1-1 Thierry
Henry (83.)
Varin skot:
Enska bikarkeppnin:
MIDDLESBROUGH-WEST HAM0-1
0-1 Marlon Harewood (78.).
EFH-keppnin í handbolta:
GÖPPINGEN-LEMGO29-30
Logi Geirsson var markahæstur í liði Lemgo með
átta mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði
fjögur. Jaliesky Garcia Padron skoraði þrjú mörk
fyrir Göppingen.
Sænski boltinn:
HAMMARBY-HALMSTAD0-0
Gunnar Þór Gunnarsson og Pétur Hafliði Mart-
einsson spiluðu allan leikinn fyrir Hammarby og
Gunnar Heiðar Þorvaldsson fyrir Halmstad.
Norski boltinn:
STABÆK-ODD GRENLAND1-1
Veigar Páll gunnarsson skoraði mark Stabæk.
Danski boltinn:
OB ODINSVÉ-SILKEBORG2-1
Bjarni Ólafur Eiríksson og Hörður Sveinsson léku
allan leikinn fyrir Silkeborg.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS