Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 70
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
PÁSKAMYNDIN 2006
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
37.000 MANNS
Á AÐEINS 15 DÖG
UM!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
- JÞP Blaðið
ÓHUGNANLEGASTA
MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA Í SÍMANN!
- LIB, Topp5.is
- Dóri DNA, DV
- DÖJ, Kvikmyndir.com
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ SALINN!
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.10
ICE AGE 2 kl. 6 og 8 M/ENSKU TALI
ÍSÖLD 2 kl. 6 M/ÍSL. TALI
WHEN A STRANGER CALLS kl. 10 B.I. 16 ÁRA
THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 5.30 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 5.30, 8 og 10
THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4, og 6
DATE MOVIE kl. 4 6, 8, og 10 B.I. 14 ÁRA
„MANNSKEMMANDI HRYLLINGSMYND“ K.M. - BIO.IS
„HREINN VIÐBJÓÐUR“ H.Þ.A. - BIO.IS
,,HOSTEL ER EINS OG DRAUMALANDIÐ Í SAMANBURÐI VIÐ THE HILLS HAVE EYES” J.G.G. SENA
Leikarinn Charlie Sheen hefur
snúið sér að netinu til að reyna að
finna ástina, en hann skildi nýlega
við leikkonuna Denise Richards.
Sheen hefur skráð sig í paraþjón-
ustu á netinu, millionairematch.
com og að sögn bandaríska tíma-
ritsins Life + Style hefur hann nú
þegar dottið í lukkupottinn. „Hann
hitti konu á netinu og þau ætla á
stefnumót seinna í vikunni. Þau
skiptust á tölvupósti og svo hringdi
hann í hana. Hún er mjög spennt
og segir að þau eigi margt sameigin-
legt,“ sagði vinur leikarans.
Ást á netinu
CHARLIE SHEEN Leitar nú að ástinni á
internetinu.
Dans- og söngvamyndin Footloose
er líklega enn fersk í minni flestra
þeirra sem áttu sitt blómaskeið á
níunda áratugnum. Myndin sló í
gegn árið 1984 og nokkur lög úr
henni ruku upp vinsældarlistana og
nægir þar að nefna Holding out for
a Hero, Footloose og Let‘s Hear It
for the Boy. Eðalleikarinn Kevin
Bacon vakti mikla athygli fyrir
frammistöðu sína í myndinni en
þar dansaði hann af miklum móð
við Lori Singer.
Söngleikur sem byggður er á
myndinni verður frumsýndur í
Borgarleikhúsinu þann 29. júní.
Söngleikurinn hefur ekki verið
sviðsettur á Íslandi áður og eftir
því sem næst verður komist er
þessi uppfærsla hans einnig sú
fyrsta á Norðurlöndum.
Unnur Ösp Stefánsdóttir
leikstýrir verkinu en með helstu
hlutverk fara Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, Halla Vilhjálmsdóttir,
Jóhann Sigurðsson, Guðlaug Elísa-
bet Ólafsdóttir, Jörundur Ragnars-
son og Aðalbjörg Árnadóttir.
Footloose fjallar um ungan
mann, Aron, sem flytur úr stór-
borginni til smábæjar. Þar upp-
götvar hann sér til nokkurrar skelf-
ingar að dans er bannaður þannig
að unga fólkið í bænum þarf að leita
út fyrir bæjarmörkin til að fá útrás
fyrir dansþörfina. Aron sættir sig
engan veginn við þetta enda með
fiðring í tánum eftir dansæði stór-
borgarinnar. Hann rís upp gegn
ofríkinu og dansar gegn banninu og
fær fyrir vikið fullorðna fólkið og
kirkjunnar menn upp á móti sér.
Dansað gegn banni
DANSHÖFUNDURINN Roine Söderlundh kemur frá Svíþjóð til þess að laða fram stemningu níunda áratugarins í Borgarleikhúsinu.
MAKS BETROV Er rússneskur dansari sem leiðir hér leikhópinn en
að baki hans glittir í Höllu Vilhjálmsdóttur sem fer með aðalhlut-
verkið ásamt Bjartmari Þórðarsyni, Sigurjóni Brink, Aðalbjörgu Árna-
dóttur, Írisi Maríu og Ástu Bærings.
ROINE SÖDERLUNDH Fer yfir sporin með dönsurum og leikurum
sýningarinnar en sýningin verður vitaskuld hlaðin líflegum dans-
atriðum.
[DVD]
UMFJÖLLUN
Bandarísku gamanþættirnir
Arrested Development eru með
allra besta sjónvarpsefni síðustu
ára. Þeir voru greinilega of góðir
og fyndnir fyrir Bandaríkjamark-
að, féllu ekki nógu vel í kramið hjá
Kananum og framleiðslu þeirra var
því hætt, illu heilli, eftir aðeins þrjá
árganga. Harmakvein Evrópubúa
með hárfínt skopskyn óma hins
vegar enn um álfuna alla.
Þættirnir fjalla um hina kolklikk-
uðu Bluth fjölskyldu sem leysist
endanlega upp þegar fjölskyldu-
faðirinn er dæmdur í fangelsi fyrir
fjársvik og afkomendurnir þurfa
að taka silfurskeiðarnar úr munn-
inum og fara að hugsa um peninga,
rekstur fjölskyldufyrirtækisins og
önnur leiðindi.
Systkinin eru fjögur. Þrjú þeirra
eru nánast klepptæk en einn sonur-
inn, Michael, er með fullum söns-
um og það kemur því í hans hlut að
reyna að halda sínum nánustu innan
marka heilbrigðrar skynsemi. Vita-
vonlaust verkefni auðvitað.
Geggjuð persónusköpunin er
aðall þáttanna en þar er hvert kvik-
indi öðru klikkaðra. Frábær leik-
hópur túlkar liðið svo með miklum
tilþrifum. David Cross er dásam-
legur sem óþolandi tengdasonur,
Portia de Rossi, sem gerði garðinn
frægan í Ally McBeal, gerir eigin-
konu hans óborganleg skil og Tony
Hale og Will Arnett stela hverri
senunni á fætur annarri í hlutverk-
um rugluðu bræðranna Buster og
Gob.
Handrit þáttanna er skrifað af
mikilli list og endalausir orðaleikir
og kostuleg samtöl verða til þess að
það er hægt að marghorfa á sama
þáttinn og rekast sífellt á eitthvað
nýtt. Leikstjórinn góðkunni Ron
Howard er á meðal framleiðenda
Arrested Development en hann
gegnir einnig mikilvægu hlutverki
sögumanns og stendur sig ákaflega
vel sem slíkur. Flétturnar eru það
margar og flóknar og sögumaður-
inn bindur þetta allt saman með
skemmtilega hlutlausri rödd.
Fyrstu tvær þáttaraðirnar eru
komnar út á DVD diskum sem
óhætt er að segja að séu hvalreki
fyrir alla þá sem kunna að meta
úthugsað eðalgrín. Það þarf senni-
lega að leita allt aftur til Löðurs til
þess að finna fjölskyldu sem jafn-
ast á við Bluth fólkið þegar það
kemur að tilfinningalegum van-
þroska og sjúklegu fjölskyldu-
mynstri.
Aukaefnið á diskunum eykur
enn á ánægjuna en þar er meðal
annars að finna atriði sem enduðu á
gólfinu í klippiherberginu og viðtöl
við leikara og aðstandendur sem
varpa skemmtilegu ljósi á þættina
og þennan magnaða hóp sem að
þeim standa.
Þórarinn Þórarinsson
Geggjað fjölskyldugrín
ARRESTED DEVELOPMENT
AÐALHLUTVERK: JASON BATEMAN, PORTIA
DE ROSSI, WILL ARNETT, TONY HALE,
DAVID CROSS.
Niðurstaða: Arrested Development eru með
allra besta grínefni sem Bandaríkjamenn hafa
gert fyrir sjónvarp. Þættirnir þola endalausa
endurskoðun sem gerir þetta DVD safn
afskaplega eigulegt.