Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 72
32 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
21 22 23 24 25 26 27
Mánudagur
■ ■ SJÓNVARP
19.50 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Fulham og Wigan.
20.30 Ítölsku mörkin á Sýn.
21.00 Ensku mörkin á Sýn.
21.30 Spænsku mörkin á Sýn.
FÓTBOLTI Baldur Aðalsteinsson,
leikmaður Vals, verður orðinn
góður af liðþófameiðslum fyrir
sumarið en hann gekkst undir
aðgerð á vinstra hné í lok mars-
mánaðar.
„Ég næ vonandi að byrja að
æfa með bolta í næstu viku og þá
kemur betur í ljós hvernig staðan
er á mér. Ég hef haldið mér sjálfur
við en vissulega er þetta mjög
slæm tímasetning þar sem svo
stutt er í mótið. Það er mikilvægt
að taka þátt í undirbúningstíma-
bilinu og þá var líka leiðinlegt að
komast ekki í æfingaferðina með
strákunum,“ sagði Baldur en Vals-
menn fóru til Tyrklands en komu
heim þaðan um helgina.
„Ég verð tilbúinn í fyrsta leik,
það kemur ekkert annað til greina.
Ég hef lent í þessu áður, þá á
hægra hnénu, og þá var ég mjög
lengi að ná mér. Liðþófameiðsli
eru skrýtin að því leyti að mjög
mismunandi er hversu lengi menn
eru að ná sér. Aðgerðin heppnaðist
þó vel hjá mér og því verð ég orð-
inn góður fyrir fyrsta leik,“ sagði
Baldur en aðeins eru þrjár vikur í
Íslandsmótið þar sem Valsmenn
mæta nýliðum Breiðabliks í fyrstu
umferð. - hþh
Baldur Aðalsteinsson:
Að ná sér eftir
liðþófaaðgerð
BIKAR HAFINN Á LOFT Baldur í sigurvímu í
fyrrasumar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
ÍSHOKKÍ HM 3. deildar karla í
íshokkí hefst í Skautahöllinni í
Laugardal í dag en mótinu lýkur
um næstu helgi. Vorið 2004 vann
Ísland sig upp í 2. deild eftir sigur
á heimavelli en féll aftur niður í
fyrra.
Fyrsti leikur Íslands er klukk-
an 20 í kvöld þegar liðið tekst á við
Lúxemborg en auk þeirra eru
Armenía, Írland og Tyrkland með
á mótinu í ár.
Það er spennandi vika sem
bíður liðanna og áhugamanna um
íshokkí en leiknir verða alls tíu
leikir frá mánudegi til laugardags.
Þetta er í 8. sinn sem ÍHÍ teflir
fram landsliði í fullorðinsflokki og
í þriðja sinn sem heimsmeistara-
keppnin er haldin hér á landi. - hþh
Heimsmeistaramót í íshokkí:
Fer fram hér á
landi í vikunni
FAGNA ÞEIR AFTUR? Íslenska landsliðið
fagnaði árið 2004 þegar það vann sér sæti
í 2. deild. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það var nóg um lokahófsviðræðurnar
svokölluðu á föstudaginn þegar Sigurður
Þorvaldsson mætti í lokahóf KKÍ. „Ég
held að flest liðin hafi sent fulltrúa til
sín, af hvaða togi sem það var. Það var
mjög gaman að fylgjast með liðunum
koma hvert á fætur öðrum,“ sagði
Sigurður glaðbeittur en ljóst er að hann
er eftirsóttur af nánast öllum liðum
deildarinnar.
„Ég hef ekkert ákveðið en mér líst
til dæmis mjög vel á ÍR. Ég hef oft verið
með góða þjálfara, Bárður Eyþórsson er
einn af þeim og það má segja að hann
sé í uppáhaldi hjá mér hvað þjálfara
varðar. Það þýðir þó ekki að ég verði þar
enda ber ég mjög sterkar taugar til Snæ-
fells líka,“ sagði Sigurður sem ólst upp
hjá Breiðholtsliðinu en Bárður þjálfaði
hann hjá Snæfell.
„Ég er búinn að hugsa um ÍR eftir
að Bárður tók við en ég hef ekkert
ákveðið í þessum efnum. Mér leið
mjög vel í Hólminum og ég hef líka
áhuga á að vera þar. Ef Bárður er
uppáhaldsþjálfarinn minn þá er
Stykkishólmur uppáhalds-
bærinn minn,“ sagði Sig-
urður sem á von á barni
með Öldu Leif Jóns-
dóttur, körfuboltakonu.
Óvíst er hvar þau munu
vera búsett en ljóst er
að það kemur til með að
ráða miklu þegar kemur að
því að Sigurður velji sér lið.
„Það er ekki útilokað að við
munum búa í Hólminum,“
sagði Sigurður sem er nýkominn heim
frá Hollandi þar sem hann spilaði
með Woon!Aris ásamt Hlyni
Bæringssyni en hann gefur lítið
fyrir þjálfara sína hjá liðinu.
„Körfuboltahliðin var ekki
alveg eins og ég bjóst við. Ég
var með tvo þjálfara á
þessu tímabili og ég er
óhræddur við að segja
að hvorugur þeirra yrði
ráðinn hjá liðunum
hérna heima. Lífið sem
slíkt var aftur á móti mjög
gott og ég naut dvalarinnar
til fullnustu,“ sagði Sigurður
Þorvaldsson, eftirsóttasti
körfuknattleiksmaður landsins,
að lokum.
KÖRFUKNATTLEIKSKAPPINN SIGURÐUR ÞORVALDSSON: ER EFTIRSÓTTUR AF ÖLLUM LIÐUM Í DEILDINNI
Græddi vel á lokahófsviðræðunum
JÚDÓ Spennandi meistaramóti
Íslands í júdó lauk um helgina en
reynsluboltarnir í Ármanni stóðu
uppi sem sigurvegarar í sveita-
keppninni eftir æsispennandi
úrslitaglímur.
Í opnum flokki karla sigraði
Bjarni Skúlason úr Ármanni en
hann vann einnig í 90 kílógramma
flokknum. Jón Þór Þórisson úr JR
sigraði í 73 kílóa flokki og Vignir
Stefánsson úr Ármanni í 81 kíló-
gramma flokki. Þorvaldur Blön-
dal, félagi hans úr Ármanni varð
Íslandsmeistari í 100 kílóa flokki
og gamla kempan Vernharð Þor-
leifsson stóð uppi sem sigurvegari
í +100 kílógramma flokknum.
Gígja Guðbrandsdóttir var
kona helgarinnar en hún sigraði í
opna flokknum sem og í 70 kíló-
gramma flokki. Árdís Steinars-
dóttir vann síðan í +78 kíló-
gramma flokki kvenna. - hþh
Íslandsmeistaramótið í júdó fór fram í íþróttahúsinu í Austurbergi um helgina:
Ármann sigraði í sveitakeppninni
SKELLUR Gígja Guðbrandsdóttir, í bláum galla, skellir Ingibjörgu Guðmundsdóttur í úrslita-
glímunni í opna flokknum. Gígja sigraði í viðureigninni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AZ Alkmaar úr leik
Grétar Rafn Steinsson og félagar hans í
AZ Alkmaar komust ekki í meistaradeild-
ina á næstu leiktíð en þeir léku í umspili
um það gegn Groningen. AZ tapaði fyrri
leiknum 3-1 en vann þann síðari 2-1.
Það dugði ekki til og því verður félagið
að láta sér lynda sæti í UEFA bikar-
keppninni.
> FH í úrslit deildabikarsins
Íslandsmeistarar FH eru komnir í úrslita-
leik deildabikars KSÍ eftir sigur á Þór í
Fífunni í gær. Ármann Smári Björnsson
kom FH yfir með skalla eftir hornspyrnu.
FH var betra liðið í leiknum og átti
sigurinn skilinn en Þórsurum gekk illa
að brjóta sterka vörn Hafnfirðinga á bak
aftur. Tryggvi Guðmundsson skoraði svo
glæsilegt mark beint úr auka-
spyrnu á lokamín-
útum leiksins og
tryggði FH verð-
skuldaðan 2-0
sigur. Í hinum
undanúrslita-
leiknum mæt-
ast Keflavík og
ÍBV en sá leikur
fer fram á
fimmtudaginn.
Úrslitaleikurinn
er síðan 1. maí á
Stjörnuvelli í
Garðabæ.
��������������������������������������������������������������
�������� ������
����������
������������
�����������
HANDBOLTI Jafnfræði var með lið-
unum framan af í gær en fljót-
lega tóku Valsstúlkur að hrista
stöllur sínar frá Rúmeníu af sér.
Berglind Íris Hansdóttir átti frá-
bæran dag í marki Vals en hún
varði fimmtán skot í fyrri hálf-
leik einum og lagði grunninn að
góðu forskoti sem var sjö mörk
þegar hálfleiksflautan gall, 20-
13.
Valsstúlkur réðu þó ekkert við
stórskyttuna Alinu Petrache sem
var illviðráðanleg allan leikinn og
skoraði ellefu mörk. Hún bar af í
rúmenska liðinu sem komst ekki í
hálfkvisti við frískar Valsstúlkur
þegar þær voru upp á sitt besta í
gær. Frábærar sóknir og sterk
vörn í bland við stórleik Berg-
lindar, skiluðu sér í forskot sem
allir sáu að gat farið upp í tólf
mörk, en Valur tapaði fyrri leikn-
um í Rúmeníu 37-25.
Í síðari hálfleik náðu Valsstúlk-
ur mest níu marka forskoti og frá-
bær stemning áhorfenda á pöllun-
um skilaði sér í góðri stemningu
hjá Val. Hvert einasta sæti sem í
boði var í Laugardalshöll var upp-
tekið og Valsararar skiluðu sann-
kallaðri salsastemmningu af sér,
innan sem utan vallar.
Aðeins vantaði herslumuninn
hjá Valsstúlkum en þær glutruðu
niður forskotinu á lokasprettin-
um. Að lokum drógrúmenska liðið
á forskot Vals þegar markmenn
liðsins tóku upp á því að verja
almennilega en Valsstúlkur ætl-
uðu sér um of og lokatölur urðu
35-28, Val í vil. Frábær sigur sem
dugði þó ekki.
„Ég er hundfúll að ná ekki
meiru út úr þessu en við töpum
þessu einvígi í leiknum úti. Við
göngum þó stolt frá velli og áttum
frábæran leik,“ sagði Ágúst
Jóhannsson, þjálfari Vals.
„Við fórum yfir það í hálfleik
að markmiðið væri klárlega að
komast áfram. Við hefðum alveg
getað gert það en klaufaskapur
varð til þess að það verður að
bíða. Ef við hefðum náð tíu marka
forskoti er ég viss um að við hefð-
um náð að komast áfram,“ sagði
Ágúst sem var svekktur yfir að
missa niður níu marka forskotið.
„Við ætluðum okkur um of og
reyndum að skora tvö mörk í
hverri sókn sem kann ekki góðri
lukku að stýra. Það er ekkert
óeðlilegt en ég er fyrst og fremst
stoltur af stelpunum,“ sagði Ágúst
Jóhannsson í leikslok.
hjalti@frettabladid.is
Ævintýri Vals á enda
Valsstúlkur komust ekki áfram í úrslitaleik Áskorendakeppni Evrópu þrátt fyrir
frábæran leik gegn rúmenska liðinu Constanta í Laugardalshöll í gær. Valur
vann leikinn með sjö marka mun, 35-28, en það dugði þeim þó skammt.
ÁTÖK Drífa Skúladóttir reynir að brjóta sér
leið að marki Constanta en er tekin föstum
tökum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁRÆÐNI VALSSTÚLKNA Gríðarlegur dugnaður og áræðni hjá Hlíðarendastúlkum var ekki
nóg gegn feykisterku liði Constanta en ekki mátti sjá hvort liðið var atvinnumannalið
miðað við leik liðanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR