Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 61
MÁNUDAGUR 24. apríl 2006 21
Fleytitími er hugtak sem aðeins
hefur heyrst undanfarin misseri.
Þar er átt við að sá tími þegar fólk
hefur vinnu að morgni, eða lýkur
henni seinni part dags geti verið
„fljótandi“. Þetta þýðir meðal ann-
ars að í stað þess að flestir mæti
til vinnu kl. 8.00 að morgni (eða
9.00) geti verið um það að ræða að
fólk mæti 7.40, 7.50, 8.10, 8.20
o.s.frv. Með þessu móti dreifist
álag á umferðarmannvirki jafnar,
og minna verður um að bílar gangi
í lausagangi, en lausagangur bif-
reiða eykur á mengun.
Það sem skiptir ekki minna
máli er að með þessu komast allir
leiðar sinnar á skemmri tíma, og
án umferðarhnúta og þeirra
streitueinkenna sem geta fylgt
þeim. Samfélagslegur kostnaður
verður líka minni því að með
dreifðari umferð verður þörfin
fyrir plássfrek umferðarmann-
virki minni, því mannvirkin fá
meiri tíma til að skila því verki
sínu að koma fólki frá heimili til
vinnu og til baka.
Fleytitími getur þannig í senn
verið mikilvægt skipulagsmál
fyrir sveitarfélögin, en um leið
stórt umhverfismál. Það þarf að
fara að huga að þessum málum á
höfuðborgarsvæðinu, og mikil-
vægt að það sé gert fyrir svæðið í
heild. Þetta er verkefni sem er
kjörið samstarfsverkefni sveitar-
félaganna, jafnhliða því að vera
mikið hagsmunamál fyrir þau öll.
Samstarf við samtök launafólks
og vinnuveitendur þyrfti vissu-
lega einnig að koma til. Minni pen-
ingar í flókin umferðarmannvirki
þýða meira fé í önnur brýn verk-
efni eins og til dæmis grunnskóla
og leikskóla. Minna fjármagn í
flókin og plássfrek umferðar-
mannvirki þýðir meira fjármagn í
umhverfisvænar samgöngur eins
og strætó, hjólreiðabrautir og
göngustíga. Einnig verður þá
meira pláss í græn svæði. Færri
umferðarteppur þýða væntanlega
minna stressaða og ánægðari
borgara.
Það er hægt að hugsa sér fyrir-
komulagið með ýmsum hætti.
Annars vegar væri hægt að skipu-
leggja eftir hverfum eða póstnúm-
erum, eða eftir til dæmis tegund
starfsemi (skólar, bankar, opinber
þjónusta o.s.frv.). Aðalatriðið er
að gefast ekki upp fyrir vaxandi
umferðarálagi, sem í meginatrið-
um hleðst upp í tvisvar 30 mínútur
á dag, með því einu að leggja til
sífellda stækkun umferðarmann-
virkja, án þess að skoða aðrar leið-
ir til hlítar. Vinstri græn vilja
umhverfisvæna hugsun í skipu-
lags- og samgöngumálum. Fleyti-
tími er einn flötur á slíkri hugsun.
Höfundur er öldrunarlæknir og
skipar 1. sæti V-lista vinstri
grænna í Kópavogi.
Brýnt umhverfismál
UMRÆÐAN
FLEYTITÍMI
ÓLAFUR ÞÓR GUNNARSSON
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI