Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 16
 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR16 fréttir og fróðleikur Fjölmargir þjást af lesblindu. Hún þarf þó ekki að koma í veg fyrir að fólki vegni vel. Sjáum hér dæmi um innlenda og erlenda snillinga á sínu sviði. Látnir lesblindir snillingar Thomas Alva Edison er sagður hafa verið lesblind- ur. Hann er meðal annars titlaður faðir ljósaper- unnar og plötuspilarans, ásamt hundruðum ann- arra uppfinninga sem skipa honum sess sem einn mesti uppfinningamaður sögunnar. Alexander Graham Bell er einnig úr þeim hópi en hann fann upp símann. Bílaframleiðandinn Henry Ford er talinn meðal lesblindra en hann notaði fyrstur allra færiband til að fjöldaframleiða bíla. Albert Einstein var talinn með ofurgreind og hann var óumdeilandlega mikill frumkvöðull á sínu sviði og lesblindan aftraði honum ekki. Isaac Newton var meðal áhrifamestu frumkvöðla sögunnar og er þekktastur fyrir að uppgötva aðdráttarafl jarðar, en hann var einnig lesblindur. Auðkýfingar nútímans Hinn lesblindi Bill Gates er ótvírætt frumkvöðull í tölvutækni og það gerði hann að ríkasta manni í heimi. William Hewlett, stofnandi Hewlett-Pack- ard tölvurisans er lesblindur sem og Steve Jobs, stofnandi Apple tölvurisans og maðurinn á bak við teiknimyndarisann Pixar, sem framleiddi Toy Story, Bug‘s Life og núna síðast Finding Nemo. Lesblindir ofurleikarar Tom Cruise er gott dæmi um lesblindan einstakling sem nær langt í leiklist, en það er einmitt grein sem margir lesblindir leita í, þrátt fyrir að þurfa að lesa mikið í því starfi. Einnig má nefna Anthony Hopkins, sem frægastur er fyrir að leika fjöldamorðingjann Hannibal Lecter, og Will Smith sem er einn fárra sem hafa náð jafnmiklum frama í tónlist og leiklist að ógleymdri Agöthu Christie, drottningu leynilög- reglusagnanna. Lesblindir landsmenn Á Íslandi má nefna forsetafrúna Dorrit Moussaieff, kvikmyndagerða- mennina Hrafn Gunnlaugsson og Friðrik Þór Friðriksson, sem báðir hafa verið gífurlega afkastamiklir og má segja að þeir hafi farið með lykilhlutverk í að byggja upp íslenska kvikmyndagerð. Friðrik Þór er einn af örfáum Íslendingum sem tilnefndir hafa verið til óskarsverðlauna. FBL-GREINING: LESBLINDA SNILLINGA Edison, Bill Gates og Agataha Christie lesblind Gyanendra Nepalskonungur lofaði á föstudag að koma aftur á lýðræði í landinu, þar sem mótmæli gegn alvaldi konungs hafa farið stigvaxandi undanfarnar vikur og mánuði. Spennan í Nepal hefur magnast gíf- urlega undanfarið, og hefur nú rúmur tugur manna farist í átökun- um milli uppreisnarmanna og her- manna Gyanendra konungs sein- ustu vikurnar. Gyanendra reyndi á föstudag að binda enda á mótmælin með því að lofa að fjölflokkalýð- ræði yrði aftur komið á í landinu sem allra fyrst. En skipuleggjend- ur mótmælanna voru ósáttir við orð hans, og sögðu loforðið innantómt. Forsaga mótmælanna Óeirðirnar má rekja til óánægju Nepala með konung sinn, en hann hefur síður en svo átt sjö dagana sæla síðan hann tók við krúnunni. Gyanendra var krýndur í júní 2001, eftir mikinn fjölskylduharm- leik þegar Dipendra krónprins, drukkinn og á lyfjum, skaut for- eldra sína, Birendra konung og Aishwarya drottningu, og sjö aðra fjölskyldumeðlimi til bana, og svipti sig svo lífi. Stjórnmál landsins voru í miklu uppnámi þegar Gyanendra kon- ungur komst til valda eftir lát Bir- endra bróður síns, en uppreisnar- menn maóista höfðu lengi háð blóðuga uppreisn gegn konungs- valdinu. Brást Gyanendra við með því að reka lýðræðislega kosna rík- isstjórn landsins í október 2002. Ári síðar, þegar friðarumleit- anir fóru út um þúfur, lýsti hann yfir neyðarástandi í landinu og sendi hermenn eftir uppreisnar- mönnunum. Næstu mánuðina útnefndi kon- ungur hvern forsætisráðherrann á fætur öðrum, allt þar til hann rak stjórnina eins og hún lagði sig og tók öll völd í sínar hendur í febrúar 2005. Hann lét loka símum landsmanna, allt flug lá niðri og herlögregla ók um götur höfuð- borgarinnar Katmandú. Hermenn stóðu vörð við heimili þing- mannanna sem bolað hafði verið burtu og forsætisráðherranum var haldið í stofufangelsi. Þetta var í fyrsta sinn sem kon- ungur tók til sín öll völd í Nepal síðan árið 1991, þegar þáverandi konungur lét af algjöru einveldi sínu og Nepalar kusu sér forsætis- ráðherra í fyrsta sinn. Opinber- lega gaf Gyanendra þá ástæðu að Sher Bahadur Deuba forsætisráð- herra og ríkisstjórnin hefðu ekki gert nóg til þess að binda enda á uppreisn maóista, en stjórnmála- skýrendur töldu að konungurinn notfærði sér ástandið til að styrkja stöðu sína, hugsanlega í þeim til- gangi að skapa algjört einræði í landinu á nýjan leik. Konungurinn neitaði þessum ásökunum harðlega og lofaði að lýðræði og frið yrði aftur komið á í landinu innan þriggja ára. Stjórnir margra landa brugðust harkalega við valdatöku Gyan- endra, og í refsingarskyni hættu Bretland, Indland og Bandaríkin að útvega nepalska hernum vopn. Skipulögð mótmæli Uppreisn maóista hófst árið 1996, og síðan hafa yfir 13.000 manns látið lífið í henni. Þrátt fyrir heit konungs um að stöðva uppreisn- ina, hefur ekkert lát orðið á átök- unum. Í lok nóvember í fyrra, eftir valdatöku konungs, tóku sjö stærstu stjórnmálaflokkar lands- ins, þar með taldir maóistar, hönd- um saman og hófu skipuleg mót- mæli til að heimta að lýðræði yrði aftur komið á í landinu. Gyanendra lofaði almennum kosningum árið 2007, og í febrúar á þessu ári boðaði hann til sveitar- stjórnarkosninga. Þær milduðu þó síður en svo reiði landsmanna, sem sögðu kosningarnar vera blekkingu eina sem ætlað var að friða fáfróð- an almenning. Fáir mættu á kjör- stað, en fjöldi manna flykktist hins vegar á mótmælafundi og síðan þá hafa óeirðirnar farið stigvaxandi. Á föstudag mættu um 150.000 manns á útifundi í Katmandú þótt útgöngu- bann ríkti í borginni og hafði kon- ungur skipað hersveitum sínum að grípa til allra mögulegra ráðstafana til að stöðva fjöldafundina. Um kvöldið birtist hann svo á sjónvarpsskjám landsmanna, lofaði að endurreisa lýðræði í landinu og bað leiðtoga helstu stjórnmála- flokkanna um að tilnefna nýjan for- sætisráðherra sem allra fyrst. Tals- menn stjórnmálaflokkanna voru samt sem áður ósáttir, því konung- ur varð ekki við kröfum þeirra um að skipa nefnd sem ætlað væri að endurskrifa stjórnarskrá landsins. Um helgina héldu mótmæli gegn konungi áfram, þrátt fyrir útgöngubann. Mannfjöldinn reyndi að brjóta sér leið að höllu konungs í Katmandú á laugardag, hrópandi slagorð gegn konungi, en óeirða- lögregla beitti óspart barsmíðum til að hindra kröfugönguna. Tugir manna særðust alvarlega, að sögn starfsmanna Rauða krossins. Konungur Nepals lofar lýðræði LÖGREGLAN BEITIR VALDI Herlögreglan þjarmar að mótmælendum í fjöldamótmælum í Katmandú. Á föstudaginn hét konungurinn að endurreisa lýðræði í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURT & SVARAÐ SAMKEPPNI Í FLUGINU Fleiri ferðast Samkeppni á flugleiðum til og frá Íslandi hefur margfaldast með til- komu Scandinavian Airlines og British Airways en fyrir voru íslensku fyrirtækin Icelandair og Ice- land Express. Birgir Jónsson, forstjóri þess síðastnefnda, segir að svo virðist sem staðan sé að kakan hafi stækkað. Áhrif nýju félaganna? Svo merkilegt sem það er hefur ferða- mönnum til London fjölgað hjá okkur þrátt fyrir tilkomu British Airways. Á því hef ég engar sérstakar skýringar aðrar en að kakan hafi stækkað. Ferðamenn eru fleiri og það kemur á óvart. Hvað breytist gagnvart neytendum? Þeir verða varir við aukna og betri þjónustu. Það eru margir um hituna og gríðarlega mikilvægt að viðskipta- vinir séu ánægðir því þá koma þeir aftur og fara ekki annað. Annað sem breytist er fjölbreytni í áfangastöð- um og lægra verð. Við höfum verið að bjóða lág verð og næst bjóðum við upp á fleiri áfangastaði og betri almenna þjónustu í vélum okkar. Verða frekari verðlækkanir? Það tel ég ólíklegt. Miðað við rekstarumhverfi flugfélaga nú í ljósi olíuverðsins og annarra hluta þá held ég að hægt sé að fullyrða að lægri gerist verðið ekki. BIRGIR JÓNSSON Forstjóri Iceland Express © GRAPHIC NEWS 75 km Ástandið í Nepal alvarlegt Myndir: Associated PressHeimildir: Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðabankinn. 1. feb. 2005: Gyanendra konungur 30. apríl: Konungur endar neyðarástandið. rekur ríkisstjórn sem leidd er af Sher Bahadur Deuba forsætisráðherra, lýsir yfir neyðarástandi, tekur sér öll völd og heitir því að berja niður uppreisn maóistanna. 8. feb.: Bæjarkosningar haldnar að skipun konungs til að sýna að lýðræði sé við lýði, en fáir kjósa og margir mótmæla. 14. mar.: Uppreisnarmenn loka götum í sex daga og stöðva birgðaflæði. 6. apr.: Almennt verkfall hefst, ofbeldisfull mótmæli breiðast út. 21. apr.: 150.000 manns mæta á fjölda- mótmælafund í Katmandú þrátt fyrir útgöngubann. Minnst fjórtán hafa farist í mótmælunum undanfarna daga. Konungur lofar að endurvekja lýðræði. 3. sept.: Uppreisnarmenn maóista tilkynna einhliða vopnahlé. Júlí: Konungleg andspillingarnefnd dæmir Deuba í tveggja ára fangelsi fyrir siðspillingu – hann er leystur úr haldi í feb. 2006, eftir að nefndin er bönnuð. 22. nóv.: Helstu stjórnmálaflokkarnir og Maóistar heita samvinnu til að koma lýðræði aftur á og til að taka völd frá konungi. 2. jan., 2006: Uppreisnarmenn rifta vopnahléi. 1. feb.: Götumótmæli breiðast út um allt Nepal þegar ár er liðið frá valdatöku Gyanendra konungs. Katmandú K Í N A I N D L A N D Uppreisnir (des. 2005 −jan. 2006) Gyanendra konungur: Tók við krúnunni í júní 2001, eftir að Dipendra krónprins skaut bróður Gyanendra, Birendra konung (neðri mynd) og fjölskyldu hans til bana og beindi svo byssunni að sjálfum sér. Uppreisnar- menn maóista: Allt að 15.000 berjast fyrir sósíalísku lýðveldi. Yfir 13.000 manns hafa farist í átökum síðan 1996. N E PA L Íbúar: 26 milljónir Þjóðartekjur á mann: 20.000 krónur BiratnagarJanakpur Patan Pokhara Butwal Hetauda Nepalganj Dhangarhi Bhaktapur FRÉTTASKÝRING SIGRÚN MARÍA KRISTINSD. smk@frettabladid.is Svona erum við >Mannfjöldi við þrjár götur í Reykjavík eftir kyni karlar konur 18 22 karlar konur 13 5 karlar konur 7 4 Aðalstræti Bankastræti Pósthússtræti Heimild: Hagstofa Íslands ������ ������� ������������� ����������� ��������� ����������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.