Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 8
8 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR
���������������
����������
���������������
����������������������������������������������������������
���������������������������
��������������������������
��������������������
���������������
�����������
�
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
��������������������������������������������������
�������������������������������������������������������
����������������������
�
�� ��������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
�������������������������
��������������������
STÓRIÐJA Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar (AFE) vill að miðstöð
þjónustu fyrir álver Alcoa í Reyð-
arfirði og við Húsavík, reisi Alcoa
álver þar, verði byggð upp með
skipulögðum hætti á Akureyri.
Félagið hyggst stuðla að sam-
vinnu fyrirtækja í bænum en
eftir miklu er að seilast. Verði af
framkvæmdum við Húsavík er
hugsanlegt að til verði um fjögur-
hundruð ný störf á Akureyri.
Hugmyndin hefur verið kynnt
stjórnendum Alcoa sem tekið
hafa henni vel. Stefna Alcoa er að
bjóða út stóran hluta þeirra þjón-
ustustarfa sem til falla vegna
álframleiðslunnar og segir Tómas
Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa
Fjarðaáls, mjög jákvætt ef fyrir-
tæki á Akureyri geti tekið að sér
þjónustuna.
Í samanburðarskýrslu sem
unnin var í tengslum við staðar-
valsathuganir vegna álvers á
Norðurlandi kemur fram að álver
við Húsavík muni skapa allt að
200 ný störf á Norðurlandi, utan
Húsavíkur. Er þar einkum um að
ræða sérhæfð störf sem flest
myndu falla starfandi fyrirtækj-
um á Akureyri í skaut. Skýrslu-
höfundar gera jafnframt ráð fyrir
að álver við Húsavík muni skapa
300 til 450 störf utan Norður-
lands; væntanlega á höfuðborgar-
svæðinu. Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar vill að hluti þeirra
starfa verði til á Akureyri og
segir Valur Knútsson, stjórnar-
formaður AFE, að félagið muni
aðstoða fyrirtæki á Akureyri til
að svo verði.
Alls verða um eitt þúsund
afleidd störf í pottinum, ef af
byggingu beggja álvera verður,
og segir Magnús Þór Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri AFE, að allt
að fjögurhundruð ný störf gætu
orðið til á Akureyri. „Á næstu
vikum munum við kanna hvernig
fyrirtæki í þekkingariðnaði á
Akureyri eru í stakk búin til að
þjónusta álver Alcoa fyrir austan.
Það er ljóst að Alcoa mun gera
margvíslegar kröfur er lúta að
gæðum þjónustunnar og við vilj-
um tryggja að okkar fólk standist
þær kröfur. Fyrirtæki á Akureyri
geta náð fram mikilli samlegð
með því að þjónusta bæði álverin
og eins er hugsanlegt að þau geti
unnið saman að einhverju leyti,“
segir Magnús.
kk@frettabladid.is
Vilja að á Akureyri verði miðstöð þjónustu fyrir álver Alcoa í Reyðarfirði:
Akureyringar vilja álstörf
TÓMAS MÁR SIG-
URÐSSON
MAGNÚS ÞÓR
ÁSGEIRSSON
JAPAN, AP Tvö bíóhús í Japan bjóða
nú bíógestum upp á að leikið sé á
fleiri skilningarvit en sjón og heyrn;
lyktarskynið er virkjað með nýrri
tækni í takt við það sem er að gerast
á hvíta tjaldinu hverju sinni.
Sjö mismunandi lyktargjafar
undir sætum bíógesta kalla fram
lykt sem þykir hæfa hverju atriði.
Sæt blómaangan fylgir ástarsenu
en beisk piparmyntu- og steinselju-
lykt í dapurlegu atriði, svo dæmi
séu nefnd.
Forrit fyrir réttu lyktarblönduna
með hverri bíómynd er sótt á vef
fyrirtækisins sem að nýju bíólykt-
artækninni stendur. Ýmsar fyrri til-
raunir til markaðssetningar slíkrar
tækni hafa mistekist. Sumir kunna
að muna eftir „Scent-o-rama“-sýn-
ingum í bíóhúsi sem til skamms
tíma var rekið á Smiðjuveginum í
Kópavogi. - aa
Nýjung fyrir bíógesti í Tókýó:
Lyktarskynið
virkjað í bíó
AFGANISTAN, AP Mannskæð átök
blossuðu upp í Afganistan um helg-
ina. Fjórir kanadískir hermenn létu
lífið er sprengja sprakk í vegkanti
þar sem þeir óku um í Suður-Afgan-
istan á laugardag. Í gær umkringdu
her- og lögreglumenn hóp skæru-
liða talibana sem voru í felum í bæ í
Ghazni-sýslu í Suður-Afganistan.
Að minnsta kosti þrír skæruliðar og
einn lögreglumaður féllu í skotbar-
daganum.
Talsmenn NATO-herliðsins í
Afganistan sögðu skæruliða talibana
bera ábyrgð á árásinni á laugardag,
sem var gerð í bænum Gomboth, um
40 km norður af Kandahar. Hamid
Karzai, forseti Afganistans, sakaði
aftur á móti „útlendinga“ um að
kynda undir uppreisninni í landinu.
Þetta er mesta mannfall sem kan-
adíski herinn hefur orðið fyrir í
Afganistan frá því hann hóf þátttöku
í friðargæslu þar árið 2002. Minnst
sextán Kanadamenn hafa látið lífið í
Afganistan á þessu tímabili.
Skæruliðar talibana hafa látið
þau boð út berast að þeir muni herða
á árásum á erlenda hermenn og
afganska stjórnarhermenn í vor og
sumar. - aa
KENNIR ÚTLENDINGUM UM Hamid Karzai
forseti Afganistans í Qalay-I-Naw í Vestur-
Afganistan, þar sem friðvænlegra er en í
suðurhlutanum þar sem árásin á kanadísku
hermennina var gerð.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mannskæð átök blossuðu upp í Suður-Afganistan:
Felldu fjóra Kanadamenn
DANMÖRK Fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Kaupmannahöfn fann
nýverið 800 grömm af sterku heró-
íni falið í 25 antíksverðum.
Vitað er um tvær manneskjur
sem látist hafa af völdum efnisins
og telur lögreglan að fleiri sverð
séu í umferð, að því er fram kemur
á fréttavef Politiken.
Lögreglan komst á sporið eftir
að hafa fundið mann og konu látin
vegna ofneyslu heróíns á hótelher-
bergi í febrúar. Eftir vísbendingu
fann lögregla sverðin í pappakassa
heima hjá manninum á Norðurbrú.
Sverð þessi eru frá Pakistan og
eru yfirleitt notuð sem veggja-
skraut. - sdg
Fíkniefnamál í Danmörku:
Heróín falið í
antík-sverðum
VEISTU SVARIÐ?
1Skoðanakönnun Fréttablaðsins bendir til jafnrar baráttu um borgarfulltrúa-
sæti milli annars manns á lista vinstri
grænna og efsta manns á lista Framsókn-
ar. Hver er í öðru sæti á lista VG?
2Eiður Smári hefur ekki getað leikið undanfarna leiki með Chelsea vegna
veikinda. Hvaða sjúkdómur hrjáir
kappann?
3Íraksþing hefur samþykkt að veita lítt þekktum stjórnmálamanni umboð til
að mynda ríkisstjórn. Hvað heitir væntan-
legur forsætisráðherra Íraks?
SVÖRIN ERU Á BLS. 38
ÍTALÍA, AP Í kjölfar þess að staðfest
úrslit kosninga til beggja deilda
ítalska þingsins lágu loks fyrir um
helgina hét Romano Prodi, forsæt-
isráðherraefni miðju- og vinstri-
flokkabandalagsins á Ítalíu, því í
gær að mynda ríkisstjórn sem
halda myndi um stjórntaumana
allt kjörtímabilið. Brestir virtust
þó strax vera komnir í fjölflokka-
bandalagið; leiðtogi eins smá-
flokksins innan þess lýsti því yfir
í gær að flokkurinn myndi standa
utan hinnar væntanlegu sam-
steypustjórnar.
„Við munum standa sameinaðir
og við munum standa þannig í
fimm ár,“ tjáði Prodi fréttamönn-
um fyrir utan heimili sitt í Bologna
í gær. Óstöðugleiki hefur hins
vegar einkennt ríkisstjórnir Ítalíu
síðustu áratugina – að frátalinni
fráfarandi hægristjórn Silivos
Berlusconi sem er sú eina sem
setið hefur heilt kjörtímabil frá
því lýðræði var endurreist í land-
inu eftir síðari heimsstyrjöld.
Á laugardag staðfesti áfrýjun-
ardómstóll í Róm niðurstöðu taln-
ingar atkvæða til öldungadeildar
þingsins, en samkvæmt henni
hefur vinstriflokkabandalagið 158
af 315 fulltrúum í öldungadeild-
inni. Fáeinum dögum áður höfðu
úrslit kosninganna til neðri deild-
arinnar verið staðfest, en Prodi-
bandalagið vann þar mjög nauman
sigur. Berlusconi hefur reyndar
ekki viljað játa sig formlega sigr-
aðan með því að hringja í Prodi.
Hið nýja kosningakerfi gefur sig-
urvegaranum þó ýktan meirihluta
þingsæta svo að þingstyrkurinn
að baki hinni væntanlegu ríkis-
stjórn er traustari en hin tvísýnu
úrslit gefa annars tilefni til að
ætla.
Engu að síður er talið að Prodi
muni eiga erfitt með að halda liði
sínu saman, enda er það býsna
sundurleitt – þar eru leifar af
gamla Kristilega demókrata-
flokknum innan um græningja og
fyrrverandi og „óendurhæfða“
kommúnista.
Clemente Mastille, sem fer
fyrir smáflokki kristilegra demó-
krata, sagði í blaðaviðtali sem birt
var í gær að hann myndi aðeins
veita væntanlegri ríkisstjórn
„stuðning utan frá“ enda ætti hann
„enga samleið“ með henni. Spurð-
ur um lífslíkur samsteypustjórnar
Prodis sagði Mastella að mikið
þyrfti til að halda öllum stjórnar-
liðum sáttum; annars „kemur end-
irinn áður en af stað er farið“.
audunn@frettabladid.is
Prodi heitir stöðugri
stjórn út kjörtímabilið
Romano Prodi reyndi í gær að slá á efasemdaraddir eftir mjög nauman sigur
miðju-vinstriflokkabandalagsins og hét því að mynda ríkisstjórn sem sitja myndi
allt kjörtímabilið. Brestir virðast þó strax komnir í samstöðuna í liði hans.
HEIMA Í BOLOGNA Verðandi forsætisráðherrann Romano Prodi ásamt eiginkonu sinni
Flavíu við heimili þeirra í Bologna í gær. Prodi vísaði á bug efasemdum um að honum
muni takast að halda uppi aga í væntanlegri samsteypustjórn miðju- og vinstriflokka.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FUGLALÍF Krían er komin til lands-
ins en í gærmorgun sá Þórir
Snorrason, fuglaáhugamaður á
Höfn, sex kríur við Óslandið í
Hornafirði. Brynjúlfur Brynjólfs-
son, starfsmaður Fuglaathugunar-
stöðvar Suðausturlands á Höfn,
segir óstaðfestar fregnir herma að
þrjár kríur hafi sést í Hornafirði á
föstudaginn eða sama mánaðardag
og fyrsta krían sást í fyrra. „Krían
er því á eðlilegu róli og eins og oft-
ast verður hennar fyrst vart á
Höfn,“ segir Brynjúlfur. - kk
Farfuglum fjölgar:
Krían komin
KRÍAN Þórir Snorrason sá sex kríur á flugi í
Hornafirði í gærmorgun.