Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 10
10 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR
��������� �������������������������
��������� ���������������������������������������������
��������� � � � � � � � � � � � �
� � �� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
� � ��������� �����������������������������������������������������
� � ������������������� ������������������������
� � �������������������������������������������
� � �������������������������������������������������������� ��
� � �������
� � ������������������������������������������
� � ��� ������������������������������������
� � �����������������������������������������������������������
� � ����������������������������������������������������������
���������� ���������
��������������� �������������������������������������������������
� � � � � � � � ���������������������������� � �
�
� � � � �
�����������
����������������������
���������������
�������������
� � � � � � � � � � � � �
� � � � � � � � � � � � � �
��������
����������
�
�
��
�
��
�
���
��
�
��
�
�
� ��
�
�
�
�
�
Lögregla skaut byssumann
Norskir lögreglumenn skutu á laugardag
til bana mann sem braust inn hjá
aldraðri konu rétt vestan við Ósló og hóf
skothríð úr hlaupsagaðri haglabyssu er
lögregla nálgaðist. Lögreglan var kvödd
á vettvang vegna skothríðar í bænum
Bærum og maðurinn var umkringdur á
flótta þaðan.
NOREGUR
Eyjadeila sett til hliðar Japanar
hafa fallist á að hætta við könnunarleið-
angur á hafsvæði í kringum smáeyjar í
Japanshafi sem bæði Japan og Suður-
Kórea gera tilkall til, eftir spennuþrungn-
ar sáttaviðræður í Seúl síðustu daga.
SUÐUR-KÓREA
AUSTURKIRKJUPÁSKAR Bosníu-serbneskar
stúlkur brjóta máluð egg eins og siður er
um páskana í Austurkirkjunni í bænum
Baja Luka í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
W tekið inn í sænsku Sænska
akademían hefur ákveðið að helga bók-
stafnum W eigin kafla í nýjustu útgáfu
sænsku orðabókarinnar sem akademían
gefur út. Þar með stækkar sænska staf-
rófið úr 28 stöfum í 29. Fram til þessa
höfðu orð sem byrjuðu á W – sem öll
eru tökuorð úr öðrum tungum – verið
skráð undir V-kaflanum í orðabókinni.
SVÍÞJÓÐ
STJÓRNMÁL Frambjóðendur Sam-
fylkingarinnar til borgarstjórnar
kynntu tímasetningar á lækkun
leikskólagjalda á blaðamannafundi
í gær. Samkvæmt áætlun Reykja-
víkurborgar lýkur lækkuninni
haustið 2008 en þá munu öll leik-
skólabörn í Reykjavík njóta sjö
stunda gjaldfrjáls leikskóla.
Markviss lækkun leikskóla-
gjalda hófst haustið 2004 þegar
fimm ára börn fóru að njóta þriggja
gjaldfrjálsra stunda á dag og um
síðustu áramót var gjaldskráin
lækkuð sem nemur tveimur stund-
um hjá öllum börnum. Áætlað er að
gjöldin lækki næst haustið 2007, þá
um tvær klukkustundir hjá öllum
börnum, og síðast haustið 2008, um
þrjár stundir hjá öllum börnum
öðrum en þeim fimm ára gömlu.
Athygli var þó vakin á því á fundin-
um að um hlutfallsgreiðslur væri
að ræða og því væri ekki hægt að
panta leikskólapláss fyrir fimm
ára barn sitt í fimm klukkustundir
á dag og greiða ekkert fyrir.
„Foreldrar leikskólabarna eru
sá hópur sem er hvað mest hugsi
þessa dagana vegna þeirra blikna
sem eru á lofti í efnahagsmálun-
um. Þetta eru oft skuldsettustu
fjölskyldurnar sem eru að koma
sér þaki yfir höfuðið og hafa mest
útgjöld. Þegar þessu verki okkar
lýkur haustið 2008 munu kjarabæt-
ur foreldra allra leikskólabarna
samsvara 50 þúsund króna kaup-
auka á mánuði á hvert barn,“ sagði
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóraefni Samfylkingarinnar, á
fundinum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálfstæðismanna, segir
rangnefni að tala um gjaldfrjálsan
leikskóla, þar sem áttundi og níundi
tíminn væru nýttir af mörgum og
áfram yrði borgað fyrir þá. - sh
Samfylkingin tímasetur gjaldfrjálsan leikskóla:
Sjö frítímar 2008
Á FUNDINUM Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Stefán Jón Hafstein á
blaðamannafundinum í gær.
BANDARÍKIN, AP Lögregla handtók
á laugardag sex skóladrengi í
smábæ í Alaska, sem lagt höfðu á
ráðin um að slá út rafmagni og
símasambandi við skólann svo
þeir gætu drepið skólafélaga og
kennara sem þeir töldu sig eiga
eitthvað sökótt við, og komist
síðan undan á flótta.
Drengirnir búa í smábænum
North Pole um 20 km suðaustur
af Fairbanks, en þeir voru hand-
teknir eftir að orðrómur komst á
kreik um áform þeirra og vopna-
söfnun.
Þetta var í annað sinn á einni
viku sem komið var í veg fyrir
meint áformað skólafjöldamorð í
stíl við þau sem framin voru í Col-
umbine-miðskólanum í Colorado
fyrir sjö árum. Fimm táningar í
miðskóla í Kansas voru hand-
teknir á fimmtudag, grunaðir um
slík áform. - aa
Skólapiltar handteknir í smábæ í Alaska:
Skipulögðu morð
MIÐSKÓLINN Í NORTH POLE Sex drengir í sjöunda bekk eru sagðir hafa ætlað að myrða
skólafélaga og kennara. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins til borgarstjórn-
ar kynntu fjölskyldustefnu sína á
blaðamannafundi á leikskólanum
Hamraborg í gær. Á fundinum
kynnti Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son niðurstöður úr viðhorfskönn-
un IMG Gallup þar sem fram
kemur að mikill meirihluti borg-
arbúa vilji fleiri tækifæri til sam-
verustunda með fjölskyldu sinni.
„Betri þjónusta, léttari byrðar,
minna skutl og fleiri gæðastundir
er það sem stefna Sjálfstæðis-
flokksins skilar reykvískum fjöl-
skyldum,“ sagði Vilhjálmur á
fundinum. Hann sagði markmið
stefnu flokksins vera að auka val,
gæði og árangur í allri þjónustu
Reykjavíkurborgar og fjölga
tækifærum fjölskyldna til sam-
verustunda.
Fjölskyldustefnan skiptist í
fjóra meginþætti sem lúta að leik-
skólamálum, skólamálum, íþrótta-
og tómstundastarfi og borgarum-
hverfi.
Meðal þess sem fram kemur í
stefnuskránni er að Sjálfstæðis-
flokkurinn hyggst lækka leik-
skólagjöld í öllum borgarreknum
leikskólum um 25 prósent 1. sept-
ember 2006. „Við viljum fara þá
leið að lækka gjöldin alla tímana,
líka þeim áttunda og níunda, ólíkt
Samfylkingunni sem ætlar bara
að afnema gjöld af fyrstu sjö tím-
unum,“ segir Vilhjálmur. Einnig
vilja sjálfstæðismenn tryggja það
að foreldrar greiði aðeins leik-
skólagjald fyrir eitt barna sinna í
einu. Þannig telur Vilhjálmur að
best sé komið til móts við barna-
fjölskyldur.
Vilhjálmur segir einnig að
mikilvægt sé að útrýma biðlistum
eftir leikskólaplássum og bæta
innra starf þeirra. Það kosti fé
sem hann telur betur varið þannig
en í hreint afnám leikskóla-
gjalda.
Annað sem fram kemur í
stefnuskránni er að flokkurinn
hyggst skapa foreldrum val um
vistun fyrir ung börn frá lokum
fæðingarorlofs þar til þau hafa
kost á almennu leikskólaplássi.
Þetta verði gert með sérstökum
smábarnadeildum í leikskólum í
hverju hverfi. Einnig vill flokkur-
inn starfa með íþrótta- og æsku-
lýðsfélögum við lækkun þátttöku-
gjalda, efla hverfalöggæslu og
forvarnir í skólum og minnka
miðstýringu í skólakerfinu.
Í könnuninni sem Gallup gerði
fyrir flokkinn kemur fram að 94
prósent borgarbúa telja mikil-
vægt að fá fleiri tækifæri til sam-
verustunda með fjölskyldunni.
Þetta segir Vilhjálmur ekki koma
á óvart en gefi flokknum tæki-
færi til að verða við óskum borg-
arbúa. - sh
Ódýrari en ekki
ókeypis leikskóla
Sjálfstæðismenn vilja lækka leikskólagjöld í Reykja-
vík um 25 prósent í september nái þeir völdum.
MEÐAL BARNANNA Frambjóðendurnir á Hamraborg í gær. Á myndinni eru Gísli Marteinn
Baldursson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir.