Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Breyting frá Arctic Trucks
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
12
4
9
NISSAN PATHFINDER
ÆVINTÝRI
LÍKASTUR
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Verðið á Nissan Pathfinder er frá 4.090.000 kr.
Verðið á Nissan Pathfinder hefur líklega aldrei verið hagstæðara.
Þessi skemmtilegi jeppi er blanda af krafti alvöru fjallajeppa eins
og þeir gerast bestir og lipurð flottustu götubíla. Útkoman er
ævintýri líkust og hefur slegið eftirminnilega í gegn.
Líttu inn og berðu hetjuna augum!
27.-30. apríl
Á NASA við Austurvöll.
www.riteofspring.is
����������
�������������������
Borgarbúar og ferðamenn flykkjast í Menningarhúsið í
Stokkhólmi til að skoða heljar-
stórt líkan af höfuðborg Svíþjóð-
ar. Með því að nota ljósmyndir og
tölvuútreikninga hefur sænskt
hagleiksfólk búið til nákvæmt
líkan af höfuðborg Svíþjóðar í
hlutföllunum þúsund á móti
einum. Í kjallaranum á Ráðhúsi
Reykjavíkur er að finna líkan sem
einnig hefur laðað að sér marga
gesti, en það líkan er af landinu
öllu og á því er Reykjavík bara
málningarklessa.
FYRIR UTAN að vera augnayndi
og hagleiksvottur eru líkön til
margra hluta nytsamleg. Uppfinn-
ingamenn og hönnuðir búa til líkön
af hugarfóstrum sínum og gera á
þeim ýmsar tilraunir áður en ráð-
ist er í að búa til gripina í fullri
stærð.
BORGARLÍKAN af Reykjavík
mundi veita frábæra yfirsýn og
mun raunverulegri innsýn í
skipulag eða skipulagsleysi höf-
uðborgarinnar en fæst með teikn-
ingum og jafnvel nýtísku tölvu-
grafík á flötum skjá. Uppdrættir
af bestu gerð standast ekki sam-
anburð við þrívíða eftirlíkingu.
Miðað við þau skipulagsslys sem
þegar hafa orðið í Reykjavík og
þær umdeildu hugmyndir sem
settar hafa verið fram um fram-
tíðarskipulag veitir sannarlega
ekki af því að gera bæði borgar-
búum og fulltrúum þeirra í borg-
arstjórn kleift að skoða borgina
og móta hana með bestu fáanlegu
aðferðum.
TÖLVUGRAFÍK og teikningar
eru ófullkomin hjálpartæki í
skipulagsmálum. Líkan af Reykja-
vík væri ómetanlegt og mundi
sóma sér vel í kjallara Ráðhússins
þar sem borgarfulltrúar, borgar-
búar og gestir gætu haft það dag-
lega fyrir augunum og prófað
nýjar hugmyndir með litlum til-
kostnaði. Líkanið af Íslandi mundi
hins vegar taka sig vel út og draga
að sér mikla athygli í snotrum
glerskála á Ingólfstorgi – torgi
sem hingað til hefur engum til-
gangi þjónað nema sem kostnað-
arsöm og kuldaleg umgjörð um
skyndibitastað. Málningarklessan
sem táknar Reykjavík í kjallara
Ráðhússins er táknræn fyrir þau
fálmkenndu vinnubrögð sem tíðk-
ast hafa í skipulagsmálum.
Reykjavík á betra skilið en að
vera bara ólöguleg klessa.
Ekki bara
klessa!