Fréttablaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 6
6 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR
Virðing
Réttlæti
Aðalfundur VR
verður haldinn á Nordica hótel í dag
mánudaginn 24. apríl og hefst kl. 19:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Laga- og reglugerðabreytingar
• Nýtt nafn
• Stofnun Varasjóðs
• Sameining við Verslunarmannafélag
Hafnarfjarðar
20%
afsláttur af brjóstahöldurum
AUK ÞESS 24. – 26. APRÍL
debenhams
vorútsala
í ellefu daga
50afsláttur%
af völdum vörum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
23
13
04
/2
00
6
MIÐAUSTURLÖND, AP Osama bin
Laden lét nýjar hótanir í garð
Vesturlanda frá sér fara í hljóð-
upptöku sem send var út á arab-
ísku Al-Jazeera-sjónvarpsstöðinni
í gær. Í upptökunni sakar bin
Laden almenning á Vesturlöndum
um að styðja í reynd stríð á hendur
íslam; enn fremur hvatti hann
fylgismenn sína til að fara til
Súdan til að berjast gegn friðar-
gæsluliði á vegum Sameinuðu
þjóðanna sem kann að verða sent
þangað.
Þetta er fyrsta orðsendingin
sem frá bin Laden kemur í þrjá
mánuði. Með henni virtist hann
ætla að réttlæta hugsanlegar árás-
ir á óbreytta borgara, en fyrir slík-
ar hryðjuverkaárásir hefur hann
og al-Kaída-samtökin verið gagn-
rýnd jafnvel af aröbum hliðhollum
málstað þeirra. Hann virtist í orð-
sendingunni einnig vera að reyna
að stappa stálinu í araba til að
snúa bökum saman með því að
saka Vesturlönd um að reyna að
ganga á milli bols og höfuðs á
Hamas-samtökum herskárra Pal-
estínumanna sem nú halda um
stjórntaumana á palestínsku sjálf-
stjórnarsvæðunum. Þau hafa enn
á stefnuskránni að útmá Ísraels-
ríki.
Með vísan til þess að Bandarík-
in og Evrópusambandið hafa
ákveðið að frysta allan fjárstuðn-
ing við Hamas-stjórnina sagði bin
Laden að Vesturlönd væru að
heyja „síonískt krossfarastríð“ á
hendur íslam.
Ekki er vitað til þess að nein
bein tengsl séu á milli al-Kaída og
Hamas, en Hamas er upprunalega
sprottin út af Bræðralagi mús-
lima, sem er áhrifamikil stjórn-
málahreyfing með deildir í flestum
arabalöndum. Sami Abu Zuhri,
einn talsmanna Hamas, var líka
fljótur til að lýsa því yfir opinber-
lega að „hugmyndafræði Hamas“
væri „gerólík hugmyndafræði
sjeik bin Ladens“.
Al-Jazeera-stöðin virtist hafa
haft upptökuna nægilega lengi
undir höndum til að velja úr henni
það sem henni þótti bitastæðast til
birtingar. Þulurinn las skýringar
með bakgrunnsupplýsingum inn á
milli valinna brota úr upptökunni
sem spiluð var í útsendingu
stöðvarinnar í gær.
Talið er að bin Laden leynist
enn í fjöllunum á landamærum
Afganistans og Pakistans.
audunn@frettabladid.is
Segir Vesturlönd
reka stríð gegn íslam
Í nýrri hljóðupptöku hótar al-Kaída-forsprakkinn Osama bin Laden nýjum árás-
um á hendur óbreyttum borgurum á Vesturlöndum, sem hann segir heyja stríð
gegn íslam. Hann hvetur múslima til að taka þátt í skæruhernaði í Súdan.
HERSKÁR AÐ VANDA Mynd úr útsendingu Al-Jazeera-sjónvarpsstöðvarinnar á nýjustu orðsendingu al-Kaída-foringjans í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
ILMUR Árrisulir Akureyringar
urðu varir við megnan brenni-
steinsfnyk í bítið í gærmorgun.
Jöklafýlan fannst víðar á Norður-
landi og átti að líkindum uppruna
sinn að rekja til hlaupsins í Skaftá
en allstíf suðaustanátt var um
miðbik landsins.
Fremur sjaldgæft er að jafn
sterk jöklafýla berist frá Skaftá til
Norðurlands og dæmi um að illa
vaknaðir Akureyringar áttuðu sig
ekki á uppruna ilmsins. Húsmóðir
í Þorpinu tók sig til og henti
skreyttum eggjum sem börnin á
heimilinu höfðu málað fyrir pásk-
ana en vissi ekki að lyktin var
sterkari utan dyra en innan. - kk
Skaftárhlaup:
Brennisteins-
fnykur nyrðra
Fíkniefni í Kópavogi Rólegt var hjá
lögreglunni í Kópavogi í fyrrinótt þar sem
einn maður var stöðvaður fyrir ölvunar-
akstur. Við reglubundið eftirlit fundust
fíkniefni á öðrum manni og var hann
færður til yfirheyrslu. Málið telst upplýst.
LÖGREGLUMÁL
WASHINGTON, AP Fjármálaráðherrar
ríkjanna sem bera hitann og þung-
ann af fjármögnun Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og Alþjóðabankans
samþykktu í gær tillögur sem hafa
það að markmiði að gera alþjóð-
legum lánastofnunum auðveldara
um vik að bregðast við stórhækk-
uðu olíuverði, óvæntum skakka-
föllum í viðskiptum milli landa og
öðrum vandamálum sem ógna
hagvexti í heiminum.
Stefnumótunarnefndir Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, IMF, og
Alþjóðabankans sem 184 þjóðir
eiga aðild að sögðu stjórnendum
beggja stofnana að gera gangskör
að því að uppræta spillingu og, að
því er IMF varðar, gefa stjórn-
völdum aðildarríkja sjóðsins
strangari ráðgjöf en hingað til.
Ágreiningur var allgreinilegur
á fundum ráðherranna í Washing-
ton um helgina. Bar mest á því að
ráðherrar sumra Evrópuríkja
töldu að Paul Wolfowitz, forseti
Alþjóðabankans, legði ofuráherslu
á baráttu gegn spillingu á kostnað
baráttunnar fyrir því að draga úr
fátækt í heiminum. Wolfowitz,
sem áður var aðstoðarvarnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, tók við
stjórn Alþjóðabankans um mitt ár
í fyrra. - aa
WOLFOWITZ SÁTTUR Samþykktir ráð-
herrafundarins enduðu í takt við áherslur
Alþjóðabankaforsetans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ráðherrafundur IMF og Alþjóðabankans:
Barátta gegn spillingu í fyrirrúmi
UNGVERJALAND, AP Ferenc Gyurc-
sany, sem farið hefur fyrir ung-
versku ríkisstjórninni undanfarið
kjörtímabil, lýsti í gærkvöld yfir
sigri stjórnarflokkanna, eftir að
allt benti til að þeir myndu ná 210
þingsætum af 386 er 98 prósent
atkvæða höfðu verið talin í síðari
umferð þingkosninganna sem fram
fór í gær.
Áður hafði Istvan Hiller, flokks-
formaður Sósíalistaflokksins,
stærsta stjórnarflokksins, greint
frá því að leiðtogi hægrimanna,
Viktor Orban, hefði játað sig sigr-
aðan og óskað Gyurcsany til ham-
ingju með sigurinn í símasamtali.
Þegar úrslit lágu fyrir í 98 af
hundraði kjördæma virtust sósíalist-
ar og bandamenn þeirra hafa tryggt
sér 210 þingsæti en borgaraflokk-
arnir 175. Einn óháður náði kjöri.
Kosið var í gær aftur í 110 kjör-
dæmum eftir að enginn einn fram-
bjóðandi náði afgerandi sigri í þeim
í fyrri umferð þingkosninganna
fyrir tveimur vikum. Í fyrri
umferðinni tryggðu vinstriflokk-
arnir sér 113 af þingsætunum 386
en borgaraflokkarnir 99.
Kjörsókn var um 64,3 prósent en
hún var 67,8 prósent í fyrri umferð-
inni. - aa
Síðari umferð þingkosninga í Ungverjalandi:
Sósíalistar áfram við völd
FERENC GYURCSANY Ungverski forsætisráð-
herrann á kjörstað ásamt fjölskyldu sinni í
Búdapest í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bílrúður brotnar Sjö bílar við
Reykjavíkurhöfn urðu fyrir barðinu á
skemmdarverkafólki í gærmorgun. Voru
rúður brotnar og leitað að verðmætum
í bílunum. Fólkið hafði þó lítið sem
ekkert upp úr krafsinu.
Reykæfing á Suðurnesjum Glatt
logaði í gamalli steypustöð í Reykjanes-
bæ þegar slökkviliðsmenn Brunavarna
Suðurnesja voru við æfingar. Stöðin var
látin brenna til grunna eftir að æfing-
unni lauk.
Annir vegna hlaups Lítið var um að
vera hjá lögreglunni í Vík og á Kirkju-
bæjarklaustri ef frá eru taldar annir
vegna Skaftárhlaups. Voru lögreglu-
menn á varðbergi í nágrenni við ána og
könnuðu skemmdir á vegum.
LÖGREGLUMÁL
KJÖRKASSINN
Myndir þú kjósa flokk þjóðernis-
sinna?
já 42%
nei 58%
Vilt þú sjá gjaldfrjálsan leikskóla?
Segðu þína skoðun á visir.is