Fréttablaðið - 24.04.2006, Side 21

Fréttablaðið - 24.04.2006, Side 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.25 13.26 21.29 Akureyri 5.00 13.11 21.24 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is ALLT AÐ 350 NÝJUM LÓÐUM VERÐUR VÆNTANLEGA ÚTHLUTAÐ Í HVERAGERÐI Í SUMAR. Byggðin í Hveragerði kemur til með að teygja sig allt vestur að Kömbum ef deiliskipulag sem fyrir liggur að gera, fær samþykki. Íbúar efstu húsa munu hafa vítt útsýni því þau verða það hátt uppi í brekkunni. Ingimundur Sveinsson arkitekt hefur fengið það hlutverk að gera deiliskipulag að þessu nýja hverfi sem er hugsað fyrir 250-300 lóðir, nánast allar undir einbýlishús. Nýlega voru einnig kynnt drög að deiliskipulagi á lóðum fyrir 80 einbýlishús og raðhús austan Heiðarbrúnar, að bökkum Varmár. Enn nær í sjónmáli er nýbyggingarsvæði á svonefndu Eyktarlandi sem framkvæmdir eru í þann mund að hefjast á. Allt bendir þetta til að bærinn muni stækka um fjórðung á næstu árum því nú nær byggðin til um 700 lóða. Heimild: glugginn. Lóðum fjölgar um 50 prósent Hveragerði kemur til með að ná að Kömbunum ef nýjustu áætlanir ná fram að ganga. FRÉTTABLAÐIÐ E.ÓL. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 02 61 11 /2 00 5 Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is 410 4000 | landsbanki.is Fasteignalán Við hjálpum þér að eignast draumaheimilið Fasteignasalan Domus er með til sölu 217,1 fermetra vel skipulagt einbýlishús á eftirsóttum stað í vesturbæ Kópavogs. Húsið er þrjár hæðir. Á neðstu hæðinni er 71,5 fermetra 3ja herbergja íbúð með sér- inngangi. Önnur hæðin (aðalhæðin) er 90,3 fermetrar og risið er 27 fermetrar. Í risinu er þrjú svefnherbergi, salerni og tvær geymslur ásamt geymsluplássi undir súð. Þegar gengið er inn á aðalhæðina er komið inn í flísalagða forstofu. Þaðan er gengið inn í hol sem tengir saman aðrar vistaverur hæðarinnar. Stofan er teppalögð, rúmgóð og mjög björt. Stórir fallegir bogadregnir gluggar vísa í suður, rennihurð skilur að stofu og borðstofu. Útgengt er út úr stofunni á litlar svalir sem snúa í suður og vestur. Eldhús er með upprunalegri innréttingu með góðu skápapláss og góður borðkrók. Svefnherbergi eru tvö á aðalhæðinni. Annað er rúmgott og þar er skápur og dúkur á gólfi. Hitt svefnherbergið er barnaher- bergi með teppi á gólfi. Hurð er á milli þess- ara svefnherbergja. Baðherbergið er með baðkari, opnanleg- um glugga, flísum í kringum baðið og upp á miðjan vegg, og dúk á gólfi. Þvottahúsið er á neðstu hæðinni en gengið er niður stiga í þvottahúsið. Sérinngangur er að íbúðinni á neðstu hæðinni og er fyrsta herbergið sem gengið er inn í flísalagt hol. Stofan er rúmgóð og mjög björt, eldhús er með upprunalegri inn- réttingu og góðu skápaplássi. Á gólfinu er nýlegt eikarparket. Svefnherbergin á þessari hæð eru tvö. Stærra herbergið er mjög rúmgott með fjórföldum skápi sem nær upp í loft. Hitt herbergið er minna en þar er einnig skápur. Bæði herbergin eru með nýlögðu eikarpark- eti. Tvö baðherbergi eru á hæðinni, annað með ljósum flísum, baðkari og lítilli innrétt- ingu, en hitt er flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og opn- anlegur gluggi. Bílskúrinn er byggður úr timbri en hann stendur sér. Þar er bæði rafmagn og heitt og kalt vatn. Húsið er á eftirsóttum stað með sjávar- útsýni í vesturbæ Kópavogs. Ásett verð er 44,0 milljónir. Fjölskylduhús með sjávarútsýni Huldubraut 1 er falleg eign á góðum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 24. apríl, 114. dagur ársins 2006. FASTEIGNASÖLUR Ás 30-32 Árborgir 28 Domus 6-7, 29 Draumahús 19-22 Perla Investments 15 Eignalistinn 29 Fasteignastofan 13 Fasteignam. Grafarv. 14 Foss 5 Gloria Casa 18 Hof 8 Húseign 10-11 Höfði 25 Lundur 26 Lyngvík 9 Lögmenn Suðurl. 23,28 Neteign 23 Nýtt 33 Perla Investments 15 Remax 5,12,15,24 Stefán Ólafsson 13 Valhöll 16-17 Viðskiptahúsið 29 BLÓMÁLFURINN ÓSIGRANDI Steinar Björgvinsson varð Íslandsmeistari í blómaskreytingum í annað sinn. HÚS 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.