Fréttablaðið - 24.04.2006, Síða 68

Fréttablaðið - 24.04.2006, Síða 68
 24. apríl 2006 MÁNUDAGUR28 Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 Seltjarnarnesi KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 Bestu dekkin í USA 8 ár í röð Tire Review Magazine Low profile fyrir lúxusjeppa og sportbíla. Frábært veggrip. Mikil mýkt. Hágæða hönnun. Veldu TOYO PROXES og skildu hina eftir. Mikið úrval frábært verð. Fyrir ákaflega leið mistök birtist rangur SMS-kosningatexti með seinni umferð Sigurskáldsins 2006 í blaðinu í gær. Umferðin er því endurtekin í dag og mætast þær Ásta Heiðrún Elísabet Pét- ursdóttir og Hildur Lilliendahl Viggósdóttir á ný. Keppnistím- innn lengist að sama skapi um einn dag þannig að úrslitakeppn- in fer fram á þriðjudag og sjálft Sigurskáldið verður kynnt í Fréttablaðinu á miðvikudag. Skáldin tvö og lesendur eru beðin velvirðingar á mistökunum og þeir sem greiddu atkvæði í gær eru vinsamlegast beðnir að kjósa aftur í dag. Það er eins og í sálinni svamli óragrúi tilfinninga. Straumþungt stórfljót sem streymir í átt að ljóði. Ekki bara hvaða ljóði sem er heldur innihaldsríku og djúpu. En þar liggur vandinn ég er bara stelpugopi. Ég er hvorki ástfangin né í ástarsorg. Ég hef ekki skoðanir á varnarliði eða vatnalögum. Ég hef enga sérstaka innsýn í mannlegt eðli. Eða get skrifað á hnyttinn hátt um hátterni fólks. En ég veit að Marissa skaut Trey, í ðe ósí. Og Rory Gilmore svaf hjá Dean, þó hann væri giftur. Bara. Bara ef ég væri alvöru. Alvarleg með skoðanir á hreinu. Þá gæti ég kannski túlkað þessar tilfinningar sem krauma innra með mér. Sweet Jane Jane. Jane ég vil yrkja þér ljóð. Við eigum allskonar drasl sameiginlegt ég og þú Jane. Allavega þykja mér fatalufsurnar þínar með hlébarðamunstrinu helvíti töff og svo get ég vel skilið að þú skulir falla fyrir gæja eins og Tarzan. Það er eitthvað einkennilega eggjandi við menn sem sveifla sér hálfnaktir og vöðva- stæltir í trjám. Sveifla... hálf... naktir... stæltir... trjám... Það er tryllingurinn í augum ykkar Jane sem fær mig til að yrkja til þín ljóð. Sjáðu til Jane, ég hef aldrei verið sér- lega villt. Það er stafalogn í lífi mínu Jane og ekki endilega vegna þess að ég kæri mig ekki um rok, ekki endilega vegna þess að ég óttist storminn, heldur vegna þess Jane, að breytingar kosta fyrirhöfn. Tíma, orku, peninga. Þess vegna sit ég sem fastast í íbúð- inni minni á eylandinu mínu sem ég elska að hata og hata að elska Þess vegna hírist ég hér Jane og hlusta á vindinn fyrir utan gluggann minn. Svarið fýkur í vindinum sagði Dylan. Sennilega fæ ég aldrei að heyra það. Hálsinn á þér er einkennilega kynæs- andi Jane. Það er eins og hann biðji um að láta narta í sig. Rifbeinin þín eru rimlar í fangaklefa Jane og ég, ég er lokuð fyrir utan hann en ekki inni í honum. Hvað segirðu um það Jane, ha? Þokki konu í frumskógi er áreynslu- laus. Þú ert öfundsverð Jane. Ef þú bara vissir hvað vestræn nútíma- kona leggur á sig til að laða að sér sæmilegan karl- mann. Ég hef jafnvel heyrt að til séu konur sem geri sér upp kynferðislega fullnægingu! Hugsaðu þér Jane. Allt til þess að karl- manninum líði betur með frammistöðu sína í (þarna ætlaði ég að segja rúminu, en sennilega hefur það ekki merkingu fyrir þér, svo ég læt hér við Seinni umferð fjögurra ljóða úrslita HILDUR LILLIENDAHL VIGGÓSDÓTTIR Fædd 1981. ÁSTA HEIÐRÚN ELÍSABET PÉTURSDÓTTIR Fædd 1984. Álit dómnefndar: Kristján Bjarki Jónasson: Sannleikurinn um okkur öll, sagður á umbúðalausan og glæsilegan hátt. Flott ljóð. Ragnheiður Eiríksdóttir: Raunsæi ungra kvenna í dag, þar sem raunverulegasti hlutur lífs þeirra er bandarískur sjónvarpsþáttur. Þráin eftir frekari dýpt verður sjálf dýptin. Þórarinn Þórarinsson: Afskaplega „ljóðalegt“ ljóð sem fangar vel angistina sem fylgir því að vera hugsandi manneskja í neyslusamfélagi. Álit dómnefndar: Kristján Bjarki Jónasson: Nútímakonan hittir frumskógarkonuna. Fyndið en um leið tragískt ljóð um von okkar allra um frelsi. Ragnheiður Eiríksdóttir: Poppað ljóð, með titli úr popplagi og tilvísun í annað. Hér er hita, frum- skógi og ævintýraþrá stillt upp móti íslenskum kynkulda og afborgunum af íbúðarlánum. Sterkar andstæður. Þórarinn Þórarinsson: Rosa „kynjað“ ljóð með skemmtilegu andstæðupari sem virðist þó eiga ansi margt sameiginlegt. Skógarkonan býr með mannapa og borgardaman tekst á við menn sem eru hálfgerðir apar. Ég er hálf týndur í þessum skógi Ef þú kýst ljóð Ástu sendir þú SMS skeytið JA L2 í númerið 1900*. Ef þú kýst ljóð Hildar sendir þú SMS skeytið JA L7 í númerið 1900*. * Hvert skeyti kostar 99 krónur. Dregið verður úr innsendum SMS skeytum á hverjum degi. Vinningshafi dagsins fær bókina Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. HVERNIG VELUR ÞÚ LJÓÐ? Til að kjósa þitt ljóð sendir þú einfaldlega SMS-skeyti, eitt eða fleiri. Myndlistarmaðurinn Steingrím- ur Eyfjörð opnaði sýningu sína Bein í skriðu (Bone in a Landslide) í 101 Gallerí á Hverfisgötu 18a á föstudaginn. Góðir gestir heiðr- uðu listamanninn með nærveru sinni við sýningaropnunina. Dvergar og tröll setja svip sinn á verk Steingríms en í þeim leikur hann sér með þá gamalgrónu til- hneigingu Íslendinga til þess að skýra skriðuföll með því að dvergar og tröll standi fyrir þeim. 101 Gallerí er opið fimmtu- daga til laugardaga frá klukkan 14 til 17. Sýningin stendur til 3. júní 2006. Dvergar, tröll og skriðuföll HANS KRISTJÁN ÁRNASON Hinn vaski liðsmaður Þjóðarhreyfingarinnar lét sig ekki vanta og tók sig vel út innan um álfa og tröll. FEÐGARNIR VALGARÐUR ÍVARSSON OG ÍVAR VALGARÐSSON Stóðu keikir upp úr skriðum Steingríms. ERNA RÚN OG ODDNÝ MARGRÉT RAGNARSDÓTTIR Skáluðu við dverga og tröll í 101 Gallerí. LISTAMAÐURINN Steingrímur Eyfjörð tók á móti sýningargestum. ÞORBJÖRG DANÍELSDÓTTIR OG GEIRLAUG ÞORVALDSDÓTTIR Voru glaðbeittar í dvergafansinum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.