Fréttablaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 86
Hljómsveitin Red Hot Chili Pepp-
ers gefur út sína níundu hljóðvers-
plötu, Stadium Arcadium, á mánu-
daginn.
Söngvarinn Anthony Kiedis
hefur látið hafa eftir sér að platan
sé bæði draumkennd og rómant-
ísk. „Við ætluðum upphaflega að
gera gamaldags plötu í anda Meet
the Beatles,“ sagði söngvarinn
Anthony Kiedis um nýju plötuna.
„Við ætluðum að semja þrettán góð
lög og taka þau upp þannig að fólk
hefði skotheldan pakka sem það
yrði ánægt með.“
Platan varð á endanum tvöföld
með 24 lögum, og er fyrsta smá-
skífulagið ef plötunni Dani Cali-
fornia, sem hefur notið mikilla vin-
sælda. Um tíma stóð jafnvel til að
platan yrði þreföld með 38 lögum
en ekkert varð úr þeim hugmynd-
um.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Red Hot Chili Peppers gerir þrjár
plötur í röð með sömu meðlimum
en sú síðasta, By the Way, kom út
sumarið 2002. Þar á undan gaf hún
út Californication 1999, sem mark-
aði endurkomu gítarleikarans
Johns Fruiscante sem hætti eftir
að sveitin gaf út hina vinsælu
Blood Sugar Sex Magik. Sú plata
var tekin upp í íbúðarhúsi í Holly-
wood og ákváðu þeir félagar að
endurtaka leikinn fyrir nýju plöt-
una. Hefur bassaleikarinn Flea
haldið því fram að platan sé sú
besta sem sveitin hafi gert.
Upptökustjóri Stadium Arcadi-
um er Rick Rubin sem hefur m.a.
unnið með System of a Down og
Beastie Boys.
Red Hot Chili Peppers ætlar í
umfangsmikla tónleikaferð til að
fylgja gripnum eftir. Hefst hún í
Evrópu í þessum mánuði og stend-
ur þar yfir fram í ágúst. Þá fer
sveitin í tónleikaferð um Bandarík-
in og spilar m.a. á Lollapalooza-
hátíðinni í Chicago þann 5. ágúst.
Þess má geta að nýja platan
verður fáanleg í takmörkuðu upp-
lagi með DVD-mynddisk og ýmsum
fylgihlutum. Þessi útgáfa kemur í
verslanir á þriðjudag en venjulega
útgáfan strax á mánudag.
Níunda platan frá Red Hot
RED HOT CHILI PEPPERS Hljómsveitin frá Kaliforníu er að gefa út plötuna Stadium Arcadi-
um sem er tvöföld.
[ BALLET ]
UMFJÖLLUN
Það var eftirvænting í Austurbæ á
fyrstu sýningu James Sewell ball-
ethópsins og þegar fyrsti dansar-
inn leið inn á sviðið datt allt í dúna-
logn. Við tók undarlegt ferðalag
með þremur viðkomustöðum.
Fyrsta atriðið var klassískast ef
svo má að orði komast. Léttleik-
andi og glaðlegt dansnúmer með
útpældum og fáguðum hópdöns-
um í bland við dramatísk sóló.
Skiptingarnar voru örar, tónlistin
falleg en atriðið varð einskonar
kynning á möguleikum hópsins og
grunnur sem þau byggðu á og
snéru út úr í öðrum atriðum sýn-
ingarinnar.
Næsta atriði var ógleymanleg
reynsla af hálf annarlegum og
nútímalegri dansi. Hópurinn hafði
skipt um búninga og nú dansaði
hann í einhvers konar blöndu af
ofbeldi og umhyggju, baðaður í
grængolandi ljósi. Allt sviðið var
nýtt og á köflum erfitt að fylgja
öllum hópnum eftir sem færðist
úr sundrung í iðandi einingu eða
kaos af líkömum. Fínlegur dans-
inn var rofinn með vélrænum
hreyfingum og einhvers konar
ósjálfræði eða jafnvel skepnuskap
en dansararnir sýndu frábær til-
þrif, kraft og ögun hver einn og
einasti og saman er þessi hópur
eins og ævintýri á sviðinu.
Þriðja atriðið var lítil saga í
anda noir glæpasagnanna þar sem
dansarnir tóku sér óvenjuleg hlut-
verk og léku með fjölbreytta
sviðsmuni og hjálpartæki, Þetta
var stórskemmtilegt agað grín en
yngsta kynslóð áhorfendanna saup
hveljur af kátínu yfir öllu þessu
sprelli. Eldri áhorfendur heyrðu
söguna einnig útskýrða í laginu
sem leikið var undir og þótt hún
væri ekki frumlegasta glæpatvist
í heimi var þetta smellið og for-
vitnilegt. Ég hef aldrei séð halla-
mál og skrúfjárn nýtt í jafn hug-
vitssamlegum tilgangi.
Þessi sýning er fyrirtaks kvöld-
skemmtun fyrir alla aldurshópa,
sérstaklega fyrir fólk sem langar
að kynna sér möguleika danslist-
arinnar Ég dreif mig í það minnsta
heim og reyndi að dansa við
juðara. -khh
Háskaleikur í táskóm
DANSFLOKKUR JAMES SEWELL
Niðurstaða James Sewell sýnir fram á óend-
anlega möguleika danslistarinnar í Austurbæ.
Tom Cruise viðurkenndi á dögun-
um að hann hefði verið nær dauða
en lífi eftir „áhættuatriði“ sem
hann reyndi á yngri árum. Þegar
leikarinn var fjögurra ára lék
hann sér með „action-karl“ sem
hafði fallhlíf. Cruise taldi sig ekki
vera minni mann, festi lak á bakið
með reipi og stökk ofan af hús-
þaki. „Það eina sem ég man eftir
er lendingin, kannski ekki gáfu-
legasta ákvörðun sem ég hef tekið
um ævina og sem betur fer hef ég
þroskast aðeins,“ sagði Cruise í
samtali við blaðamenn en hann er
á kynningarferðalagi með þriðju
myndina um Ethan Hunt og félaga
í Mission:Impossible.
Leikarinn hefur ávallt krafist
þess að leika áhættuatriðin sín
sjálfur og segir sagan að þegar
skrifa átti handritið hafi höfund-
arnir reynt að tóna sig niður til að
leikarinn myndi ekki drepa sig.
„Ég fer út á ystu nöf og hef alltaf
gert það,“ sagði Cruise. „Ég hef
brotið sérhvert bein í líkamanum
og misst nokkrar tennur,“ bætti
hann við.
Tom Cruise alltaf
verið áhættufíkill
HOLMES OG CRUISE Óvíst hvernig eigin-
kona Cruise tekur í áhættufíkn heitmanns
síns. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Kate Moss ætlar að helga sig fata-
hönnun og byrja með nýja línu
eftir að ferli hennar á tískupallin-
um lýkur. Breska fegurðardísin
hefur marga fjöruna sopið á ferli
sínum en samkvæmt talsmanni
hennar ætlar fyrirsætan ekki að
hefjast handa fyrr en að nokkrum
árum liðnum enda telur hún sig
eiga nokkur góð ár eftir. „Þetta er
bara einn af þeim möguleikum
sem hún er að íhuga eftir að ferl-
inum lýkur sem verður ekki fyrr
en eftir fjögur til fimm ár.“
Kate Moss
með fatalínu
KATE MOSS Ætlar líklega að einbeita sér að
fatahönnun þegar ferlinum lýkur.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
INSIDE MAN kl. 8 og 10.25 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 2, (400 KR.) 4 og 6
ÍSÖLD 2 M/ÍSL. TALI kl. 2, (400 KR.) 4 og 6
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 3, 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 3 og 6
PRIME kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MISSION IMPOSSIBLE 3 kl. 3.20, 6, 9 og 11.40
SÝND Í LÚXUS kl. 3.20, 6, 9 og 11.40
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 2, 4, 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 2, 4 og 6
PRIME kl. 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 8
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 2, 4 og 6
Mannbætandi og þrælfyndin
rómantísk gamanmynd með
Uma Thurman og Meryl
Streep í fantaformi!
„Ég var ónýtur eftir
myndina. Hún var
svo fyndin“
- Svali á FM957
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Birgitta Haukdal fer á
kostum sem Rauðhetta
í íslensku talsetningunni
ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA Í SÍMANN!
- SV, MBL - LIB, Topp5.isSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
- JÞP Blaðið
- Ó.Ö.H. - DV
- SV - MBL
- LIB. - TOPP5.IS
STRANGLEGA BÖNN
UÐ
INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ
SALINN!
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN!
AF MÖRGUM TALIN VERA BESTA MISSION
IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA!
DOLBY DIGITAL
POWER
SÝNING Í SMÁR
ABÍÓ
KL. 23.40