Fréttablaðið - 16.05.2006, Qupperneq 10
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært mann á þrítugsaldri, Mikael
Má Pálsson, fyrir að hafa föstu-
daginn 3. febrúar staðið að ólög-
mætum innflutningi á rúmlega 3,7
kílóum af amfetamíni hingað til
lands, ætluðu til söludreifingar og
í ágóðaskyni. Efnið flutti hann frá
París, en tollverðir fundu það falið
undir fölskum botni í ferðatösku
hans þegar hann kom til landsins.
Ákæran nær til fjögurra ein-
staklinga, auk Mikaels Más, sem
eiga að baki margvíslegan brota-
feril. Auk ofangreinds er Mikael
Már ákærður ásamt þremur tæp-
lega tvítugum piltum fyrir fíkni-
efnalagabrot í janúar síðastliðinn,
þar sem hann fékk tvo þeirra til að
flytja tæplega hálft kíló af kókaíni
frá Amsterdam hingað til lands.
Hann fól þeim að útvega einn til-
tekinn mann til viðbótar til verks-
ins og þar kom þriðji pilturinn inn
í málið. Mikael Már hitti svo pilt-
ana á óþekktum stað í Breiðholti,
veitti þeim nánari leiðbeiningar
um ferðina og upplýsingar um
óþekktan tengilið í Amsterdam,
afhenti þeim flugmiða til farar-
innar og peninga til að greiða fyrir
fíkniefnin og til uppihalds í ferð-
inni.
Piltarnir settu sig í samband við
tengiliðinn ytra sunnudaginn 22.
janúar og fóru síðan með fíkniefn-
ið á Hótel Nova í Amsterdam. Þar
pökkuðu þeir kókaíninu og fluttu
það síðan með sér til Frankfurt í
Þýskalandi, þar sem þeir skiptu
því á milli sín, földu það innan
klæða og fluttu hingað til lands.
Þeir voru teknir af tollinum við
komuna til landsins.
Mikael Már hefur jafnframt
verið ákærður fyrir fíkniefnalaga-
brot, umferðarlagabrot og rangar
sakargiftir. Hinir piltarnir voru,
ýmist hver fyrir sig eða fleiri
saman, ákærðir fyrir fíkniefna-
lagabrot, innbrot, þjófnaði, eigna-
spjöll og umferðalagabrot. Má þar
nefna innbrot í húsnæði Extons -
Kastljóss, þar sem þeir stálu
ýmsum rafbúnaði og tölvubúnaði
að verðmæti á áttundu milljón, inn-
brot í Hagaskóla, þar sem stolið
var skjávarpa að verðmæti á annað
hundrað þúsund og bílþjófnað.
Gerir Tryggingamiðstöðin kröfu á
hendur þremur piltanna að upp-
hæð ríflega 4,5 milljónir vegna inn-
brotsins í Exton - Kastljós.
Ákæran er í þrettán liðum og
hefur Mikael Már játað sök í því
sem að honum snýr. jss@frettabladid.is
Afbrotagengi
sætir ákæru
Fimm menn voru ákærðir í gær fyrir margvísleg
afbrot. Fjórir eru ákærðir fyrir að reyna að smygla
ríflega fjórum kílóum af fíkniefnum til landsins.
PARÍS Mikael Már var að
koma frá París þegar hann var handtek-
inn í Leifsstöð með á fjórða kíló af amfet-
amíni í fölskum botni á ferðatösku.
AMSTERDAM Mikael Már fékk
þrjá tæplega tvítuga pilta til að flytja rúm-
lega hálft kíló af kókaíni frá Amsterdam
til Íslands.
LEIFSSTÖÐ Tollgæslan í Leifs-
stöð á Keflavíkurflugvelli hefur samtals
náð rúmlega fjórum kílóum af fíkniefnum
í þessum tveimur málum.
FRANKFURT Piltarnir þrír
höfðu viðkomu í Frankfurt á leiðinni til
landsins. Þar skiptu þeir efninu á milli sín
og földu innan klæða.
KEYPTU FÍKNIEFNIN Í EVRÓPU
NÆRING Rannsóknarstofa í næring-
arfræði (RÍN) hefur birt niður-
stöður úr rannsókn á mataræði níu
og fimmtán ára grunnskólanema
en þátttakendurnir voru 366.
Helstu niðurstöðurnar eru þær
að D-vítamínneysla er ekki nægj-
anleg en það er einkum rakið til lít-
illar lýsis- og fiskneyslu ungmenna.
Lítil fiskneysla getur einnig valdið
joðskorti en samkvæmt rannsókn-
inni fá 44 prósent fimmtán ára
unglinga minna joð en sem nemur
meðaltalsþörf. Brauð- og kornmeti
er ekki nægjanlega gróft og trefja-
ríkt, sem kemur fram í lítilli trefja-
neyslu og mikilli neyslu á viðbætt-
um sykri. Neysla á sykruðum
gosdrykkjum og öðrum sykruðum
drykkjum er mjög mikil og hefur
lítið breyst frá síðustu könnun.
Ávaxta- og grænmetisneysla er
um helmingur þess sem Lýðheilsu-
stöð ráðleggur og með því lægsta
sem gerist í Evrópu. Hún hefur þó
aukist frá síðustu rannsókn, sem
gerð var veturinn 1992-93. Önnur
jákvæð tíðindi eru stóraukin
vatnsdrykkja og flestir þátttak-
endur (áttatíu prósent) fóru eftir
ráðleggingum um neyslu mjólkur-
matar. Skýrslan bendir á að nær
tuttugu prósent íslenskra barna
og unglinga eru of þung og er í
skýrslunni hvatt til frekari
fræðslu um næringu. - gþg
Ungmenni borða of lítið af ávöxtum og grænmeti:
Drekka of mikið gos
��������������������
�������������������
�����������������������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������������������������
������������������ ��������� ���� ����������� �������������������� � ���� ���������
������������������������������
�
������������������ �������������� ��������������������������������������������
���������������������������������������������������� ������������
���������������������
FIMM ÁKÆRÐIR
Fjórir mannanna eru ákærðir fyrir fíkni-
efnasmygl en einn fyrir önnur afbrot.