Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 12
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Íbúafjöldi: 1. desember 2005: 903
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002:
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 694
Fjöldi greiddra atkvæða: 613 (88,3%)
Listi Bæjarmálafélagsins Hnjúka (Á)
197 atkvæði - 2 fulltrúar
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
199 atkvæði - 2 fulltrúar
Listi Vinstri manna og óháðra (H)
202 atkvæði - 3 fulltrúar
Meirihlutasamstarf kjörtímabilið 2002-2006
er með Sjálfstæðisflokki (D) og Vinstri mönn-
um og óháðum (H).
Bæjarfulltrúar Á-lista:
Þórdís Hjálmarsdóttir
Valdimar Guðmannsson
Bæjarfulltrúar D-lista:
Ágúst Þór Bragason
Auðunn Steinn Sigurðsson
Bæjarfulltrúar H-lista:
Valgarður Hilmarsson
Jóhanna Guðrún Jónasdóttir
Hjördís Blöndal
KOSNINGAR 2006:
Efstu menn Á-lista,
Bæjarmálafélagsins Hnjúka:
1. Valdimar Guðmannsson bæjarfulltrúi
2. Jón Örn Stefánsson iðnverkamaður
3. Þórdís Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi
4. Erla Ísafold Sigurðardóttir mannfræðinemi
Efstu menn D-lista,
Sjálfstæðisflokks:
1. Ágúst Þór Bragason, formaður bæjarráðs
2. Kári Kárason, svæðisstjóri BM
3. Sigurlaug Markúsdóttir öryggisvörður
4. Valgerður Gísladóttir bókari
Efstu menn E-lista, Blönduóslista -
sameinaðs afls:
1. Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar
2. Héðinn Sigurðsson læknir
3. Jón A. Sæbjörnsson framkvæmdastjóri
4. Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri
BLÖNDUÓSBÆR
Valdimar Guð-
mannsson er efsti
maður Á-listans.
„Þetta leggst bara
vel í mig, listinn
samanstendur af
fólki úr ýmsum
áttum sem vill
hag bæjarins sem
bestan.“ Síðast
vantaði Á-listann fjögur atkvæði til
að ná þriðja manni, sem hann segir
takmarkið nú. Hann segir muninn á
listunum aðallega felast í forgangsröð-
un verkefna og áherslum í fjármálum.
„Við viljum til dæmis fara okkur hægar
í stórframkvæmdum en hinir, og leggj-
um áherslu á að bæjarfélagið losni úr
fjárhagslegri gjörgæslu ráðuneytisins.“
Leikskóla- og grunnskólamál
eru líka á forgangslista Á-listans og
Valdimar segir að það vanti ný störf
í bæinn og líka fólk. „Við höfum ekki
staðið vaktina nógu vel í því að ná til
okkar störfum.“
Hann segir allt opið um hvað taki
við að kosningum loknum. „Við skoð-
um alla kosti og látum málefnin ráða.“
Valdimar Guðmannsson Á-lista:
Takmarkið
er þrír menn
Valgarður Hilmarsson leiðir E-lista
Blönduóslistans en hann var oddviti
H-lista vinstri manna og óháðra síðast.
Hann segir muninn á listunum þann
að E-listinn hafi breiðari skírskotun.
„Það kom upp hugmynd um að ná
saman breiðum þverpólitískum lista
og það tókst mjög vel.“
Hann segir tíð meirihlutaskipti á
kjörtímabilinu hafa skaðað bæinn.
„Við þurfum sterkt afl sem gæti náð
meirihluta og fólk sem er tilbúið að
takast á við erfið verkefni og að vinna
saman af bjartýni og heilindum,“ segir
hann. E-listinn stillir
núverandi bæjar-
stjóra Jónu Fanneyju
Friðriksdóttur upp í
baráttusætið til að
freista þess að ná
meirihluta.
Valgarður segir
listann leggja
mikið upp úr því að halda vel utan
um fjármál bæjarins áfram. „Staðan
hefur batnað mikið og útlit fyrir að
við getum komið ýmsum verkum í
framkvæmd sem hafa beðið.“
Valgarður Hilmarsson E-lista:
Stefnt á hreinan meirihluta
Ágúst Þór Bragason
fer fyrir D-listanum.
Hann segir talsverða
endurnýjun á listan-
um. „Það er mikið
af ungu þróttmiklu
fólki að koma til
starfa og mjög
góð stemning í
okkar hópi.“
D-listinn er í meirihlutasamstarfi
við H-lista en það hefur aðeins varað
í rúmt ár; áður var búið að reyna
samstarf D- og Á-lista og H- og Á-lista.
Samstarfið hefur verið árangursríkt að
sögn Ágústs. „Fjármál sveitarfélagsins
hafa til dæmis batnað verulega þannig
að nú er svigrúm til framkvæmda.“
Hann segir D-listann leggja áherslu
á fjölskyldumál. „Við þurfum að
endurskoða gjaldskrá leikskólans, til
að verða samkeppnishæf við önnur
sveitarfélög um fólk.“
Af öðrum áherslumálum nefnir
hann frekari uppbyggingu fjarnáms og
atvinnumál. „Það þarf alltaf að efla og
styrkja þá starfsemi sem hér er fyrir
auk þess að leita nýrra tækifæra.“
Ágúst Þór Bragason D-lista:
Komið svigrúm
til framkvæmda
Blönduósbær
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
KOSNINGAR Blönduósbúar hafa
búið við frekar óstöðugt stjórnar-
far á yfirstandandi kjörtímabili.
Þrír listar náðu mönnum inn í bæj-
arstjórn síðast og hafa allar útgáf-
ur af samstarfi verið reyndar
nema samsteypustjórn allra.
Nú síðast hafa D-listi sjálfstæð-
ismanna og H-listi vinstri manna
og óháðra verið í meirihluta en
ljóst að svo verður ekki áfram
hvað sem úrslitum kosninga líður,
sökum þess að H-listinn heyrir
sögunni til.
Marga af þeim lista er reyndar
að finna á Blönduóslistanum, sem
er þverpólitískt framboð sem
hefur það að markmiði að ná hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn og
teflir bæjarstjóranum fram í bar-
áttusætinu. Sú ráðstöfun mælist
misjafnlega fyrir hjá forystu-
mönnum hinna listanna og ljóst að
bæjarstjórinn tekur verulega
áhættu með þessu.
Annars virðast fjármál bæjar-
ins og atvinnumál vera helstu
kosningamálin, fjármálin hafa
verið erfið og bærinn undir eftir-
liti félagsmálaráðuneytisins. Hita-
veitan var seld á kjörtímabilinu og
vænkaðist hagur Strympu nokkuð
við það þannig að menn sjá fram á
bjartari tíma. Þó er enn glímt við
fólksfækkun og því nauðsynlegt
að skapa ný störf í bænum. - ssal
Pólitískur órói verið á kjörtímabilinu á Blönduósi:
Þrír meirihlutar
NISSAN PATHFINDER
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
PATHFINDER
HEFUR VINNINGINN!
Verðið á Nissan Pathfinder er frá 4.290.000 kr.
Það hefur líklega aldrei verið hagstæðara að kaupa sér alvöru
jeppa. Nissan Pathfinder blandar skemmtilega saman krafti
fjallajeppa eins og þeir gerast bestir og lipurð flottustu götubíla.
Útkoman hefur slegið eftirminnilega í gegn enda er sama hvaða
samanburð þú gerir, Pathfinder hefur vinninginn!
Líttu inn og reynsluaktu.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
16
3
7
Öllum Pathfinder sem keyptir
eru fylgja auka 32" dekk, húddhlíf
dráttarbeisli og olíukort frá
EGO með 50.000 kr. inneign!
230.000