Fréttablaðið - 16.05.2006, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 2006 5
Bretar eru ekki mikið gefnir
fyrir tannstöngulinn ef marka
má nýja könnun. Bretar nota
næstum hvaða áhald sem er til
að stanga úr tönnunum.
Samkvæmt nýrri könnun sem
gerð var í Bretlandi stefna yfir 60
prósent Breta tannheilsu sinni í
hættu með því að nota næstum
hvaða áhald sem er til að losa um
matarleifar úr tönnum sínum.
Meðal þeirra áhalda sem Bretarn-
ir grípa í eru skrúfjárn, eyrna-
lokkar, skæri, hnífar, kokteilpinn-
ar, lyklar, bréfaklemmur,
eldspýtur, naglaþjalir, pennar,
kort, gaflar og nálar. Þessi áhöld
geta skaðað bæði yfirborð tann-
anna og einnig góminn og leitt
þannig til sýkinga.
Önnur 23 prósent kjósa frekar
að láta matarleifarnar sitja fastar
á milli tannanna en það eykur lík-
urnar á andremmu og munnhols-
sýkingu.
Framkvæmdastjóri tannheilsu-
stofnunarinnar segir mikilvægt
að Bretar komist í kynni við tann-
þráð og tannstöngla.
Hættuleg tannhreinsun
Konur lesa í andlitssvip karla
í leit sinni að hinum eina og
sanna.
Nú hefur það endanlega verið
staðfest með rannsókn að konur
búa yfir einstæðum hæfileika til
að lesa í andlit karlmanna og sjá
þannig hvort þeir séu heppilegir
feður eða nýtast betur í einnar
nætur gaman.
29 konur skoðuðu myndir af 39
karlmönnum. Karlarnir voru
spurðir um áhuga á börnum og
samhliða var magn karlkynshorm-
óns mælt í líkama þeirra. Niður-
stöðurnar sýndu svo ekki var um
villst að konurnar voru mjög
glöggar að átta sig á því hvernig
manngerðir karlmennirnir voru
og hvort þeir hefðu áhuga á að
eignast börn eða ekki.
Þeir menn sem höfðu meiri
áhuga á börnum og langtímasam-
böndum virkuðu meira aðlaðandi
á konurnar. Þannig spilar áhugi
þeirra á barneignum stóran þátt í
því hversu sætir þeir eru taldir
vera. Frétt fengin af persona.is.
Lesið í and-
litssvipinn
Konur virðast hafa innbyggðan skynjara
þegar kemur að því að sjá hvort karlmenn
eru líklegir til langtímasambanda og barn-
eigna. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Vinnandi mæður í traustum
samböndum eru hraustastar
kvenna samkvæmt nýlegri
breskri rannsókn.
Rannsóknin var gerð á 1.200
konum frá 15 til 54 ára aldurs og
birtist í tímaritinu „Journal of
Epidemiology and Community
Health study“. Þar kom fram að
heimavinnandi konur eru líklegri
til að fitna en þær sem vinna úti.
23 prósent þeirra kvenna sem
unnu úti voru of feitar á móti 38
prósentum heimavinnandi
mæðra.
Rannsakendur báru saman
eldri rannsókn á heilbrigði kvenna
fæddar 1946 og var heilsa þeirra
við 26 ára aldur annars vegar og
54 ára hins vegar metin með
spurningalista. Greining á spurn-
ingalistunum sýndi að konur sem
við 54 ára aldur höfðu verið í sam-
búð, átt börn og verið í vinnu voru
mun ólíklegri til greina frá heilsu-
bresti en konur sem ekki höfðu
sinnt öllum þessum hlutverkum.
Rannsakendur telja þetta renna
stoðum undir það að þrátt fyrir að
streita geti orðið mikil hjá konum
sem bæði eru útivinnandi og eiga
börn séu langvarandi kostir þess
mun meiri. www.bbc.co.uk
Vinnandi
mæður
hraustastar
Streita getur orðið mikil hjá útivinnandi
mæðrum en heilsa þeirra er þrátt fyrir það
betri en heimavinnandi mæðra.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
í
t
o
n
/
S
Í
A